Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 368
368. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 13. febrúar 2007 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Lagði hann til að 30. fundargerð nefndar um íþróttamannvirki verði tekin til umfjöllunar undir liðnum fundargerðir og var það samþykkt.
1. Fundargerðir
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 65. fundur 5. febrúar 2007.
Haukur Ingi greindi frá því að auglýstar verði tvær stöður veiðimanna (refa og minka) á allra næstu dögum. Einnig greindi Haukur frá fyrirhuguðum aðgerðum vegna flokkunar á sorpi. Þá var rætt um umgengni á gámavellinum á Höfn og nauðsynlegar merkingar á ruslagámum.
Fundargerð samþykkt
· Nefnd um íþróttamannvirki, 30 fundur, 12. febrúar 2007
Undir þessum lið kynnti Haukur Ingi tilboð í girðingu til að girða af athafnasvæði íþróttamannvirkja. Bæjarráð heimilar kaup á girðingu á því verðtilboði sem borist hefur. Einnig rætt um hvort ráða eigi tímabundið verkefnisstjóra til að stýra vinnu við framkvæmdir á íþróttasvæðum. Bæjarráð sammála um að sá kostur verði skoðaður og felur nefnd um íþróttamannvirki að koma með tillögu þar að lútandi á næsta fundi nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga 740. fundur til kynningar.
Halldóra óskaði upplýsinga um erindi (tölvupóst) bæjarstjóra til framkvæmdastjóra Sambandsins vegna þjóðlendumála. Hjalti greindi frá innihaldi erindisins þar sem óskað er eftir styrk frá Sambandinu til bænda vegna málarekstrar fyrir dómstólum út af þjóðlendumálum. Bæjarráð tekur undir bókun sem fram kemur í lið 18 í fundargerð. Einnig rætt um breytingu á framlagi vegna húsaleigubóta, sbr. 17. lið í fundargerð.
2. Ósk um styrk
· Böðvar Þór Unnarsson, bréf dag. 2. febrúar 2007, ósk um styrk til gerðar sjónvarpsþáttar um forleifarannsóknir að Bæ í Öræfum.
Bæjarráð hafnar umsókn.
3. Innsend erindi og til kynningar
· AP-almannatengsl, bréf dags. 2. febrúar 2007, rafhlöðuátak.
Vísað til umhverfisnefndar. Fram kom spurning um hvað verði um uppsafnaðar rafhlöður á endanum. Fékkst ekki svar við þeirri spurningu.
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 2. febrúar 2007, námsferðir á vegum sambandsins.
Til kynningar.
· Ríkisendurskoðun, bréf dags. 2. febrúar, stjórnsýsluendurskoðun á HSSA samningi.
Til kynningar.
· Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, bréf dags. 5. febrúar 2007, vegna stjórnar Vaxtarsamnings Austurlands.
Til kynningar
· Intergrative Meeting of Friends, bréf dags. 2. febrúar 2007, ósk um að taka á móti hópi fatlaðra hlaupara 11. júní n.k.
Samþykkt að koma til móts við þessar óskir, vísað til æskulýðs- og tómstundafulltrúa.
· 100 ára fæðingarafmæli Svavars Guðnasonar 2009, minnisblað Hermanns Hanssonar dags. 6. febrúar 2007.
Bæjarráð sammála um að leggja þessu verkefni lið. Bæjarstjóra falið að ræða við forstöðumann Menningarmiðstöðvar og gera tillögu til bæjarráðs.
· Vegaslóðar að skriðjöklum í sveitarfélaginu, bréf Ragnars Frank Kristjánssonar dags. 5. febrúar 2007.
Lagt fram yfirlit frá september 2006 um hugmyndir bæjarstjórnar um uppbyggingu þjóðgarðsvega. Bæjarstjóra falið að ræða við Ragnar Frank með þessar hugmyndir að leiðarljósi.
· Samband íslenskra sveitarfélaga, tölvubréf dags. 7. febrúar 2007, námskeið um að taka þátt í evrópskum verkefnum.
Halldóra taldi mikilvægt að sveitarfélagið eigi fulltrúa á slíkum námskeiðum. Erindinu vísað til starfsmanna.
· Samgöngunefnd Alþingis, bréf dags. 7. febrúar 2007. frumvarp til vegalaga, 437. mál, heildarlög, ósk um umsögn. Slóð:http://www.althingi.is/altext/133/s/pdf/0548.pdf.
Vísað til starfsmanna.
· Dóms og kirkjumálaráðuneytið, bréf dags. 6. febrúar 2007 um stjórnsýsluumdæmi sýslumanna og lögregluumdæmi lögreglustjóra nr. 66/2007.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir samtölum sínum við lögreglumenn. Bæjarstjóra falið að ræða við sýslumanninn á Eskifirði um sýn embættisins á framkvæmdina og hvort ræða þurfi við dómsmálaráðherra í framhaldinu.
4. Önnur mál
- Greint frá tillögum að skipan skólastjórnar sameinaðs grunnskóla á Hornafirði.
- Lögð fram umsögn um frumvarp til stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Starfsmönnum falið að senda umsögnina til umhverfisnefndar Alþingis þegar bæjarráðsmenn hafa sent inn sína athugasemdir.
- Halldóra lagði til að gerð verði bókun um göng undir Lónsheiði. Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun: Í tengslum við kynningu samgönguráðherra á nýrri samgönguáætlun lýsir bæjarráð yfir ánægju sinni með að göng undir Lónsheiði eru komin á áætlun. Sú framkvæmd sé eina raunhæfa samgöngubótin á þessu svæði enda Hvalnes- og Þvottárskriður eini farartálminn sem eftir er á þjóðvegi 1. Lögð er áhersla á að undirbúningur framkvæmda hefjist sem fyrst.
Fundi slitið kl. 12:15


