Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 367
367. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 6. febrúar 2006 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni R. Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson..
Reynir setti fund, bauð fundarmenn velkomna og bauð nýjan starfsmann, Hauk Inga Einarsson, velkominn til starfa.
1. Fundargerðir
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 87. fundur24. janúar 2007.
Stefnumótun í menningarmálum verður tekin til lokaumræðu á næsta fundi nefndarinnar. Stofnskráin sömuleiðis.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um endurskoðun fjallskila 3. fundur þriðjudaginn 30. janúar 2007.
Fundað verður með nefndinni fyrir fund bæjarstjórnar síðar í dag.
Rætt um fjallskilasjóð hlutverk hans og tekjur sem fyrst og fremst verða framlög eða sektir vegna vangoldinna dagsverka. Einnig rætt um hlutverk landeigenda og fjáreigenda í fjallskilum.
Fundargerð samþykkt.
2. Humarhátíð
Bæjarráð samþykkir að hækka framlag til Humarhátíðar á þessu ári um kr. 300 þús. sem tekið verður af óráðstöfuðu fé bæjarráðs til styrkja. Jafnframt samþykkt að það verði skoðað í samráði við aðstandendur hátíðarinnar hvort aukið framlag sveitarfélagsins verði í formi starfsmanns sem sveitarfélagið legði til.
3. Innsend erindi og til kynningar
· Ríkiskaup, bréf dags. 23. janúar 2007, fyrirhuguð rammaútboð 2007.
Samþykkt að vísa þessu erindi til starfsmanna.
· Félagsmálaráðuneyti, bréf dags. 24. janúar 2007,breyting á reglum reikningsskila- og upplýsinganefndar.
Vísað til fjármálasviðs.
· Bjarni Skarphéðinn Bjarnason f.h. Jöklajeppa/Ís &ævintýra ehf., bréf dags. 26. janúar 2007, ósk um aðstoð sveitarfélagsins við að Vegagerðin leggi áfram fé til endurbóta á vegi að Jöklaseli.
Bæjarráð tekur undir ósk bréfritara og leggur áherslu á nauðsyn þess að greiður akvegur verði frá þjóðvegi 1 að Jöklaseli við Skálafellsjökul. Starfsmönnum falið að koma erindi þar að lútandi til Vegagerðarinnar og samgöngunefndar Alþingis.
· Samtök hernaðarandstæðinga, bréf dags. 28. janúar 2007, varðar friðlýsingu sveitarfélaga sem kjarnorkuvopnalaus svæði.
Sveitarfélagið Hornafjörður samþykkir að lýsa sveitarfélagið kjarnorkuvopnalaust svæði og tekur undir kröfu um útrýmingu allra kjarnorkuvopna í heiminum.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 29. janúar 2007, niðurstöður úr rannsókninni „Ungt fólk“ 2006. Vefslóð: http://www.menntamalaraduneyti.is/nyrit/nr/3897.
Vísað til skólanefndar og æskulýðs- og tómstundaráðs.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 30. janúar 2007, frumvörp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða.
Vísað til starfsmanna sem verði í samráði við bæjarráðsmenn um málið.
· Landgræðsla ríkisins, bréf dags. 30. janúar 2007, framkvæmd landbóta- og landnýtingarátætlunar fyrir Laxárdal í Nesjum.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með þau málalok um að landbóta- og landnýtingaráætlun fyrir Laxárdal í Nesjum verði látin gilda áfram. Bæjarráð telur jafnframt nauðsynlegt að endurskoða samþykkt um búfjárhald.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 31. janúar 2007, undanþága frá lögum um grunnskóla.
Vísað til skólanefndar.
4. Önnur mál
- Umhverfisnefnd Alþingis, bréf dags. 1. febrúar 2007 ósk um umsögn um frumvarp til laga um Vatnajökulsþjóðgarð 395. mál heildarlög. Samþykkt að vísa gerð umsagnar til starfsmanna sem verða í samráði við fulltrúa í bæjarráði.
- Umhverfisnefnd Alþingis, bréf dags. 1. febrúar 2007 ósk um umsögn um tillögu til þingsályktunar um friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum, 65. mál. Vísað til starfsmanna.
- Ásta greindi frá því að álagningarseðlar fyrir fasteignagjöld hafa verið sendir út til gjaldenda. Fram kom að fasteignagjöld verða nær óbreytt á milli áranna 2006 og 2007.
Fundi slitið kl. 11:25


