Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 366
366. fundur
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 158. fundur 23. janúar 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 86. fundur10. janúar 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 89. fundur 24. janúar 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs og tómstundaráð Hornafjarðar 85. fundur 22. janúar 2007.
Björn Ingi gerði að umtalsefni málefni 16+, hvað hafi gerst í þessu máli. Gerð var grein fyrir þeim atriðum sem til skoðunar hafa verið, meðal annars hugsanlegt húsnæði.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um endurskoðun fjallskila 2. fundur þriðjudaginn 23. janúar 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 29. fundur 25. janúar 2007.
Töluverð umræða skapaðist um framkvæmd við íþróttavöll, tafir sem hafa orðið og framhald framkvæmdanna.
Fundargerð samþykkt.
2. Kaup á 2 íbúðum á Silfurbraut 4
Ásta lagði fram kauptilboð í tvær íbúðir á Silfurbraut 4. Eigendur íbúðanna eru þau Jóhannes Danner/Vigdís Ragnarsdóttir og Árni Þorvaldsson/Ragnhildur Einarsdóttir.
Björn Ingi sagði það sína skoðun að sveitarfélagið ætti nú þegar nóg af íbúðum. Óskaði hann eftir stefnu í þessum málum. Bæjarráð samþykkir kauptilboðin með 2 atkvæðum, Björn Ingi sat hjá við afgreiðslu málsins. Jafnframt samþykkir bæjarráð að taka 90% lán hjá Íbúðalánasjóði vegna kaupanna, verðtryggt með 3,5% vöxtum. Ásta sagði að til væri stefna frá fyrra bæjarráði um húsnæðismálin þar sem gert var ráð fyrir að fækka íbúðum í eigu sveitarfélagsins og unnið væri eftir henni. Undir þessum lið var einnig gerð grein fyrir stöðu húsnæðiskerfisins eftir söluna á Víkurbraut 11 og 13 og kaup á þessum tveimur íbúðum. Sagði Ásta skuldir kerfisins þá hafa lækkað um kr. 55 millj. króna.
Hjalti benti á að það eina sem stæði nú út af vegna kaupanna á Víkurbraut væri aðalskipulags-breytingin sem gera þarf samfara breyttri notkun á því húsnæði. Aðalskipulagsbreytingin er sá fyrirvari sem væntanlegir kaupendur gera við kaupin. Menn voru sammála því að salan á Víkurbraut 11 og 13 og sala á öðru húsnæði hafi komið hreyfingu á húsnæðismarkaðinn.
3. Gerð umhverfisskýrslna vegna nýs vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót
Þorvarður Árnason mætti á fundinn og fór yfir vinnu við umhverfismat áætlana og hlutverk sveitarfélagsins í því ferli. Meðal annars fór hann yfir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Einnig lagt fram minnisblað bæjarstjóra tengt umræðuefninu og því ferli sem fram undan er. Fram kom það sjónarmið að vanda þurfi þessa vinnu en um leið að hraða henni eins og kostur er.
4. Ósk um leyfi til að nýta land í eigu sveitarfélagsins vegna skoðunarferða með ferðamenn
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umbeðna nýtingu svæðisins. Björn Ingi benti á að annar aðili hafi þegar fengið heimild til að nýta umrætt svæði. Var undir það tekið.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Samgöngunefnd Alþingis, bréf dags. 17. janúar 2007, ósk um umsögn á frumvarpi til hafnarlaga 366. mál , gjaldskrár, neyðarhafnir, EES-reglur o.fl. , þingskjal á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/133/s/0398.html.
Vísað til hafnarstjórnar.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 17. janúar 2007, Skýrsla menntamálaráðherra til Alþingis um framkvæmd skólahalds í grunnskólum skólaárin 2001/2002, 2002/2003 og 2003/2004. Skjal á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/133/s/0295.html.
Vísað til skólanefndar.
· Varasjóður húsnæðismála, bréf dags. 17. janúar 2007, rekstrarframlög til sveitarfélaga vegna rekstrarhalla félagslegra íbúða vegna ársins 2006.
Til kynningar.
· Haust, tölvubréf dags. 20. janúar 2007, bréf til eftirlitsskyldra fyrirtækja og stofnana, upplýsingar um breytta gjaldskrá og breyttan gildistíma starfsleyfa.
Bæjarstjóri lagði til að óskað verði eftir samanburði við gjaldskrá annarra heilbrigðiseftirlita á landinu.
· Kvenréttindafélag Íslands, tölvubréf dags. 23. janúar 2007, 100 ára afmæli félagsins.
Til kynningar.
· Saman-hópurinn, bréf dags. 25. janúar 2007, ósk um styrk.
Styrkumsókn hafnað.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 23. janúar 2007, eftirfylgni könnunar á starfsemi leikskóla sem gerð var á síðasta ári.
Vísað til skólanefndar.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 23. janúar 2007, Æskulýðsrannsóknirnar Ungt fólk, stefnumótun í málefnum barna og ungs fólks.
Vísað til skólanefndar og æskulýðs- og tómstundaráðs.
· Siglingastofnun, bréf dags. 22. desember 2007, úttekt á slysavörnum í höfnum.
Vísað til hafnarstjórnar.
· Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 22. janúar 2007, ósk um umsögn á reglugerð um takmarkanir á tóbaksreykingum og reglugerð um smásölu tóbaks.
Vísað til starfsmanna.
6. Önnur mál
Fundi slitið kl. 12:20


