Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 365
365. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 23. janúar 2006 kl. 10:00
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Lagði hann til að fundargerð 28. fundar nefndar um íþróttamannvirki verði tekin fyrir undir 1. lið á dagskrá. Var það samþykkt.
1. Fundargerðir
- Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 29. fundur 15. janúar 2007.
Fundargerð samþykkt
- Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 87. fundur 16. janúar 2007.
Fram kom að Vogarbryggja, sbr. fundargerð, er bryggjan framan við hafnarvogina. Halldóra gerði að umtalsefni nýjan viðlegukant vestan Álaugareyjarbryggju og lóð sem tengist nýju bryggjusvæði. Lagði hún áherslu á að það þurfi að vera á hreinu hvaða lóð fylgir bryggjunni.
Fundargerð samþykkt
- Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 78. fundur 17. janúar 2007.
Rætt um drög frá heilbrigðisráðuneyti að þjónustusamningi vegna heilbrigðis- og öldrunarmála og hvaða forsendur þurfi að vera til staðar áður en samningar geti haldið áfram. Einnig rætt um nafn á húsnæði hjúkrunarheimilisins, hvort það eigi að fá nafnið Skjólgarður eða ekki og hvort það nafn verði heilbrigðisstofnuninni til framdráttar eða hugsanlega til trafala. Guðrún vildi vekja nafnið Skjólgarður til vegs og virðingar. Halldóra hvatti til að þetta verði gert í fullri sátt við alla þá sem málið varðar. Einnig rætt um uppsafnaðan halla stofnunarinnar og hvernig hann er til kominn.
Fundargerð samþykkt
- Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 73. fundur 16. janúar 2007.
Rædd salan á Víkurbraut 11 og 13. Halldóra óskaði eftir yfirliti um fjölda íbúða í eigu sveitarfélagsins. Upplýst að samtals eru 47 kaupleiguíbúðir á Höfn, þar af 43 í eigu sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt
- Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 78. fundur 17. janúar 2007.
Fundargerð samþykkt
- Stjórn Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs 33. fundur 20. desember 2006.
Fundargerð samþykkt
- Þjónustuhópur aldraðra 14. fundur 13. desember 2006.
Fundargerð samþykkt
- Samband íslenskra sveitarfélaga, 739. fundur 8. desember 2006.
Til kynningar
Nefnd um íþróttamannvirki, 28. fundur 22. janúar2007.
Bæjarráð tekur undir eftirfarandi bókun nefndar um íþróttamannvirki um val á gerviefnum í hlaupa- og kastbrautir: „Nefndin samþykkir samhljóða að taka tilboði frá Polytan Gmbh DK að upphæð kr. 23.671.300.”Einnig tekur bæjarráð undir bókun nefndarinnar um jarðvegsskipti sem hljóðar svo: „Samþykkt samhljóða að bjóða jarðvegsskipti út sér.”
Bæjarráð sammála því að fara þá leið með grundun mannvirkis sem samþykkt var í nefndinni, sbr. eftirfarandi bókun: „Nefndin samþykkir að sundlaugarmannvirki verði grunduð þannig að grafið verði niður á fast og skipt um allan lausan jarðveg undir mannvirkjunum.” Einnig er tekið undir bókun nefndarinnar þar sem rætt er um misvísandi upplýsingar frá VST og kostnað við grundun mannvirkisins.
Fundargerð samþykkt
2. Breytingar á fyrirkomulagi álagningar fasteignagjalda 2007
Bæjarráð samþykkir meðfylgjandi breytingar á fyrirkomulag álagningar fasteignagjalda 2007.
3. Reglur um afslátt af fasteignaskatti
Bæjarráð samþykkir meðfylgjandi reglur um afslátt á fasteignaskatti til elli-og örorkulífeyrisþega.
4. 3ja ára áætlun
Ásta fór yfir áætlunina og svaraði fyrirspurnum. Halldóra ræddi framkvæmdir og spurði hvernig aðrar framkvæmdir en ný íþróttamannvirki skiptist. Upplýst að skipting annarra framkvæmda liggi ekki fyrir.
3ja ára áætlun vísað til bæjarstjórnar.
5. Fundarplan nefnda janúar –júní 2007
Hjalti lagði fram yfirlit og tillögur um fundi nefnda fyrrihluta árs 2007.
6. Green Globe
Bæjarráð samþykkir að taka ekki þátt í byggðasamlagi um Green Globe.
7. Samningur um vatnsfyrirtæki
Hjalti greindi frá stöðu mála.
8. Styrkumsóknir til bæjarráðs – gögn áður send fyrir utan meðfylgjandi umsóknir.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi styrki:
Björgunarfélag Hornafjarðar: 250 þús.
Ferðafélag Austur-Skaft.: 100 þús.
Bær í Öræfum – fornleifarannsóknir: 200 þús.
Fornleifafræðistofan v. rannsókna í Hólmi: 200 þús.
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands: 250 þús.
Ungmennafélagið Máni vegna söguritunar: 200 þús.
Fimleikadeild Sindra vegna kaupa á áhöldum: 200 þús.
Félagsstarf aldraðra í Öræfum: 50 þús.
Óráðstafað af heildarfjárhæð til styrkja: 580 þús.
Samtals: 2.030 þús.
9. Innsend erindi og til kynningar
· Byggingarannsóknir, bréf desember 2006, fyrirhuguð breyting á útgáfu vísitöluritsins Byggingarvísitölur.
Til kynningar
· Gísli Sverrir Árnason, bréf dags. 5. janúar 2007, kynning á þjónustu.
Til kynningar
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 7. janúar 2007, varðar lengda viðveru fatlaðra grunnskólanema.
Vísað til skólanefndar og félagsmálaráðs.
· Brunamálastofnun, bréf dags. 8. janúar 2007, um ítrekun á upplýsingum um reykkafara.
Vísað til starfsmanna tækni- og umhverfissviðs.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, bréf dags 15. janúar 2007, Brännpunkt i Norden 2007, norræna skólamálaráðstefnan 10. og 11. maí 2007 á Hótel Nordica.
Vísað til skólanefndar. Halldóra spurði hvaða styrki fulltrúar fengju til að fara á ráðstefnuna.
10. Önnur mál
- Rætt um Víkurbraut 11 og 13 og lausn á húsnæðismálum leigjenda. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
- Greint frá því að þann 25. janúar nk. verði stofnuð í Reykjavík landssamtök landeigenda.
- Afhent drög að samningi um þjónustu við fatlaða, dags. 22. janúar 2007.
Fundi slitið kl. 12:20


