Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 217
217. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn. 3. júlí 2003, kl 10:00
Mætt voru: Einar Karlsson, Reynir Arnarson, Friðrik Ingvaldsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einar Karlsson stjórnaði fundi.
Einnig: Inga Jóna Halldórsdóttir og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Félagsmálaráð Hornafjarðar 95. fundur 24. júní 2003.
Fundargerð samþykkt.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 48. fundur 27. júní 2003.
Friðrik tók undir 5 lið Önnur mál varðandi að upplýsingar vanti á heimasíðu sveitarfélagisins um málefni hafnarinnar.
Fundargerð samþykkt.
Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 51. fundur 26. júní 2003.
Fundargerð samþykkt.
Skólanefnd Hornafjarðar 51. fundur 16. júní 2003.
Bæjarráð samþykkir ósk leikskólastjóra um sérstakan dag til símenntunar og felur skólaskrifstofu að skipuleggja hann í samráði við leikskólastjóra. Bæjarráð ræddi málefni Óla priks og óskar eftir afstöðu skólanefndar varðandi rekstur skólans.
Fundargerð samþykkt.
2. Umsóknir um vínveitingaleyfi
Ís og ævintýri – Bjarni Sk. Bjarnason – umsókn dags. 10. apríl 2003.
Bæjarráð samþykkir útgáfu vínveitingaleyfis fyrir Ís og ævintýri ehf.
Fosshótel Vatnajökull – Renato Grunenfelder – umsókn dags. 14. maí 2003.
Bæjarráð samþykkir endurnýjun vínveitingaleyfis fyrir Fosshótel Vatnajökul.
3. Ósk um umsögn á útgáfu/endurnýjun rekstrarleyfis
Sýslumaðurinn á Höfn vegna Þóru V. Jónsdóttur Skálafelli, bréf dags. 23. júní 2003.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis til reksturs gistingar í heimahúsi og nýtt leyfi til reksturs gistiskála í nafni Kistugils ehf.
Sýslumaðurinn á Höfn vegna Maríu Rósar Valgeirsdóttur Hraðbúð Esso – bréf dags. 20. júní 2003.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis tilreksturs veitingahúss í Hraðbúð Esso í Nesjum.
Sýslumaðurinn á Höfn vegna reksturs Jóns Benediktssonar á veitingastofu/greiðasölu í þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli – bréf dags. 30. júní 2003.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis tilreksturs veitingastofu/greiðasölu í þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli.
4. Gjaldskrá hafnarinnar 2003
Friðrik fór yfir nokkrar smávægilegar breytingar sem hann telur æskilegt að gera á texta gjaldskrárinnar m.a. að tilgreina skýrar mælieiningar. Reynir upplýsti að ekki yrði tekið farþegagjald á þessu ári.
Bæjarráð samþykkir fram lagða gjaldskrá fyrir Hornafjarðarhöfn.
5. Ósk um samþykki á framsali á lóð
Bréf Búmanna dags. 20. júní 2003.
Bæjarráð samþykkir að Búmenn kt. 660499-2299 framselji lóðarréttindin að Víkurbraut 32 til Sveins Sighvatssonar kt. 160941-4059 á meðan á framkvæmdartíma stendur.
6. Ósk um aukafjárveitingu til sundlaugar
Bréf Hauks H. Þorvaldssonar dags. 24. júní 2003.
Bæjarráð samþykkir 300.000 kr. viðbótarfjárveitingu til Sundlaugar Hafnar til kaupa á yfirbreiðslu og verður sú fjárhæð tekin af liðnum óráðstafað af fjárhagsáætlun 2003. Bæjarráð telur æskilegt að erindi sem þetta komi við gerð fjárhagsáætlunar ársins.
7. Uppgjör gatnagerðargjalda Miðbæjar
Ásta lagði fram minnisblað dags. 2. júlí s.l. með tillögu að uppgjöri. Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur fjármálastjóra að ganga frá málinu.
8. Leigusamningur um jörðina Sandfell - aðgengi
Bæjarráð samþykkir fram lagðan leigusamning um jörðina Sandfell þar sem í lið 8.5 er kveðið á um að leigutökum sé skilt að veita eigendum og umráðamönnum aðliggjandi jarða nauðsynlegan umferðarétt á hverjum tíma.
9. Innsend erindi og til kynningar
SAF bréf dags. 13. júní 2003.
Bæjarráð bendir á, að nýlega hafi verið samþykkt samræmd gjaldskrá fyrir útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins m.t.t. markaðsleigu.
Til kynningar.
UST – 2 bréf dags. 13. júní 2003.
Til kynningar.
Félag tónlistarskólakennara bréf dags. 18. júní 2003.
Til kynningar.
SSA – bréf dags. 19. júní 2003.
Til kynningar.
Erindi frá hrossabændum í Ægissíðu.
Bæjarráð felur bæjarsjóra og tæknideild bæjarins að ganga frá samningi við hrossabændur í Ægissíðu um afnot af Hjallasvæðinu.
10. Önnur mál
Ásta kynnti bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga dags. 1. júlí sl. þar sem samþykkt er að veita sveitarfélaginu 100 milljón kr. lán. Annars vegar af eigin ráðstöfunarfé sjóðsins 33 milljónir með breytilegum 4,5% vöxtum og hins vegar af endurlánafé sjóðsins 67 milljónir með 5,32% föstum vöxtum. Bæði lánin eru til 15 ára og bundin vísitölu neysluverðs.
Bæjarráð samþykkir að taka ofangreind lán frá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að upphæð100 milljónir. Lánin eru verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs. Lánstíminn er 15 ár og lánin verða tryggð með skatttekjum sveitarfélagsins.
Beiðni frá Skafta Ottesen um að fá að halda dansleiki á Veitingahúsinu Víkinni 3., 4. og 5. júlí n.k. til kl 04:00.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda beiðni.
Beiðni frá Skapta Ottesen um að fá að selja áfengi í tengslum við veitingasölu á bryggjunni á Humarhátíðinni.
Bæjarráð veitir leyfið að því tilskyldu að fullnægjandi salernisaðstaða sé til staðar og að samráð verði haft við humarhátíðanefn varðandi skipulag. Leyfið gildir fyrir föstudagskvöldið 4. júlí frá kl. 18:00 - til 03:00 og laugardagskvöld, 5. júlí frá kl. 18:00 - til 04:00.
Umsókn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga
umsókn frá Gísla R. Sumarliðasyni um tækifærisleyfi til áfengisveitinga á humarhátíð dags. 1. júlí sl.
Bæjarráð veitir leyfið að því tilskyldu að fullnægjandi salernisaðstaða sé til staðar. Leyfið gildir fyrir föstudagskvöldið 4. júlí frá kl. 18:00 - til 03:00 og laugardagskvöld, 5. júlí frá kl. 18:00 - til 04:00.
Umsókn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga
umsókn frá Fast Fodd á Íslandi ehf um tækifærisleyfi til áfengisveitinga á fjórðungsmóti hestamanna á Stekkhól dags. 1. júlí sl.
Bæjarráð veitir leyfið að því tilskyldu að fullnægjandi salernisaðstaða sé til staðar. Leyfið gildir fyrir 3-6. júlí frá kl. 11:00 - til 03:00 í Stekkhól og 4.-6. júlí frá kl. 18:00 til kl. 03:00 í tjaldi á mótssvæði.
Kynnt var bréf frá Galdri ehf. dags. 30. júní sl. þar sem bent er á að samningur á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Hátíðni hf. um lénið hornafjordur.is er ekki lengur í gildi. Galdur ehf. óskar eftir því að fá að kynna fyrir bæjarráði hugmyndir um nýjan vef fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð.
Bæjarsjóra falið að koma á fundi milli bæjarráðs og Galdurs ehf..
Fundi slitið kl. 12:55


