Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 362
362. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss föstudaginn 29. desember 2006 kl. 10:00
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund, bauð fundarmenn velkomna og óskaði þeim gleðilegrar hátíðar.
1. Fundargerðir
· Nefnd um íþróttamannvirki, 26. fundur, 18. desember 2006 og 27. fundur, 22. desember 2006.
Bæjarráð tekur undir bókun nefndar um íþróttamannvirki en þar segir orðrétt: ?Í ljósi ofangreinda upplýsinga (Upplýsingar frá hönnuðum mannvirkisins) og þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað á sigi fargsins á fyrirhuguðu sundlaugarsvæði við Heppuskóla mælir nefndin með því að verkfræðingar leggi til aðra leið við grundun mannvirkja en þá sem upphaflega var áætlað að fara.?
Fundargerðir samþykktar.
· Stýrihópur vegna skólastefnu, 9. fundur, 19. desember 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 76. fundur, 20. desember 2006.
Hjalti gerði grein fyrir fundi í ráðuneytinu þann 28. desember þar sem fulltrúar sveitarfélagsins fengu drög að samningi í hendurnar.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd, 27. desember 2006.
Bæjarráð tekur undir með skólanefnd að hrinda af stað vinnu um úttekt á leikskólastarfi í líkingu við þá sem unnin var árið 2003. Einnig samþykkt að leita upplýsinga hjá öðrum sveitarfélögum um hvernig afleysingu í leikskóla er háttað.
Bæjarráð samþykkir að skólanefnd verði bakhjarl fyrirhugaðra breytinga í skólamálum.
Fundargerð samþykkt
2. Tillögur stýrihóps við gerð skólastefnu.
Formaður bæjarráðs bar upp eftirfarandi tillögu: Bæjarráð samþykkir tillögur stýrihóps, sem samþykktar voru á 9. fundi stýrihópsins 19. desember 2006, um skólastefnu og fyrirkomulag á stjórnunarþætti grunnskóla, tónskóla og leikskóla, dagsett 19. desember 2006. Björn Ingi lýsti yfir vonbrigðum með að stýrihópurinn hafi ekki komið með tillögu um fyrirkomulag millstjórnenda í sínum samþykktum. Einnig telur Björn Ingi að með þessari útfærslu verði engin breyting á stjórnskipulagi skólanna. Hjalti sagði það vera ljóst hvernig yfirstjórninni verði háttað og einnig að það verði hlutverk skólastjóranna að koma með tillögu um millistjórnendur. Þá sagði hann þetta vera grundvallarbreytingu á skipulagi skólamála og rakti þróun sl. 10 ár í þessum málaflokki. Guðrún og Reynir tóku undir orð Hjalta um stjórnunarþáttinn. Bæjarráð samþykkir að fela Stefáni að fara yfir skólastefnuna áður en hún kemur til afgreiðslu í bæjarstjórn. Tillaga formanns bæjarráðs var samþykkt með tveimur atkvæðum. Björn Ingi sagðist samþykkja liði A og C í tillögum stýrihóps en áskildi sér rétt til að gera athugasemdir við liði B og D. Í 9. fundargerð stýrihóps kemur fram að Halldóra Bergljót Jónsdóttir, fulltrúi D-lista í stýrihópi, áskilji sé rétt að leggja fram greinargerð um liði B og D í samþykktum stýrihóps og um leið að hún samþykki liði A og C.
3. Vaxtarsamningur Austurlands ? sjá gögn á, http://www.vidskiptaraduneyti.is/utgefid-efni/skyrslur/nr/2121.
Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við starfsmenn Þróunarstofu Austurlands og fór yfir málið í heild sinni. Björn Ingi gerði athugasemd við það að vaxtarsamningurinn hafi ekki verið tekinn til umræðu í bæjarstjórn. Bæjarráð vísar vaxtarsamningi til afgreiðslu í bæjarstjórn. Skrifað verður undir vaxtarsamning 4. janúar og fundað í bæjarstjórn 3. janúar 2007.
4. Ósk um endurnýjun á leyfi til reksturs gistiheimila og veitingastofa.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun á leyfi Frosts og Funa ehf. til reksturs gistiheimilis að Hofi 1 í Öræfum og leyfi til Ferðaþjónustu bænda á Brunnhól.
5. Umsögn um vínveitingaleyfi.
Bæjarráð samþykkir vínveitingaleyfi, sbr. umsókn.
6. Deiliskipulag í Haukafelli.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
7. Innsend erindi og til kynningar.
· Siglingastofnun, dags. 20. des. 2006, vegna samgönguáætlunar 2007-2010.
Tillaga Siglingastofnunar gerir ráð fyrir að því að 156 m.kr. verði lagðar í byggingu 100 metra stálþil á milli Álaugareyjar og Ískaja á árunum 2007 og 2008. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við drögin og vísar þeim til til hafnarstjórnar.
· Umhverfisstofnun dags. 15. des. 2006, vegna endurgreiðslu á minka- og refaveiðum.
Bæjarráð telur mikilvægt að umhverfisráðuneytið endurskoðu fyrirkomulag og endurgreiðslur vegna veiðanna með það að markmiði að gera þær markvissari og árangursríkari.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Menntamálaráðuneytið dags. 22. des. 2006 vegna fornleifaverndar.
Vísað til menningarmálnefndar.
· Dóms- og kirkjumálaráðuneytið dags. 27. des. 2006 umsögn um drög að nýrri reglugerð um stjórnsýsluumdæmi sýslumanna.
Bæjarráð ítrekar fyrri samþykktir sínar um andstöðu við fyrirhugaðar breytingar.
· Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum dags. 21. des. 2006. Fundargerð ársfundar frá 17. nóvember.
Til kynningar.
8. Önnur mál.
- Sigríður Kristinsdóttir kom á fundinn kl. 10:40 og fór yfir tilboð Óssins ehf. í Víkurraut 11 og 13. Bæjarráð samþykkir framlagt kauptilboð, dagsett 28. desember 2006. Sigríður vék af fundi kl. 11:10.
- Ásta gerði grein fyrir uppgjöri Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir árið 2006.
Fundi slitið kl. 12:20


