Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 361
361. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 18. desember 2006 kl. 20:30.
Mætt: Árni R. Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri.
Árni setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Lagði hann fram tillögu að dagskrárbreytingu þannig að liður 5 í fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar um ósk um heimild til landskipta verði tekin fyrir sem sér liður í fundargerð bæjarráðs. Samþykkt.
1. Fundargerðir
· Stýrihópur við gerð skólastefnu 6. fundur 4.des .7. fundur 11.des 2006.
Árni las upp eftirfarandi bókun:
Í ljósi þess að hér eru til umfjöllunar tvær fundargerðir stýrihóps um skólastefnu og aðalumfjöllunarefni þeirra fundagerða er stjórnunarþáttur grunnskólanna hefur undirritaður ákveðið að víkja af fundi á meðan þær eru til umfjöllunar. Áður hefur komið fram að undirritaður hefur sagt sig úr stýrihóp um skólastefnu á grundvelli þess hæfi hans til þess að fjalla um stjórnunarþátt grunnskólanna er dregið í efa. Undirritaður vill árétta að það er eina ástæða þess að hann sagði sig úr stýrihópnum.
Undirritaður lýsir því þó yfir að hann telur sig ekki vanhæfan til þess að ræða aðra hluta fundargerða stýrihópsins á bæjarstjórnarfundum í framtíðinni. En til þess að liðka fyrir umræðum í bæjarráði um stjórnunarþáttinn í grunnskólunum ákveður undirritaður að víkja af fundi. Undirritaður lýsir ennfremur yfir fullum stuðningi við bókun meirihluta bæjarstjórnar á síðasta fundi hennar um stjórnunarþátt leikskólanna, þ.e. ekki sé ástæða til þess að taka það mál aftur á dagskrá að svo stöddu.
Árni Rúnar Þorvaldsson vék af fundi þegar hann hafði lesið upp bókunina og Guðrún Ingimundardóttir tók sæti hans.
Miklar umræður sköpuðust um stjórnunarþátt grunnskólana.
(Guðrún Ingimundardóttir vék af fundi kl. 21:10).
Fundargerðir samþykktar.
· Byggingar- og skipulagsnefnd 72. fundur 13 . desember 2006.
Björn Ingi Jónsson spurði um hvernig þeim 10 miljónum sem settar voru í lóðamál í fjárhagsáætlun 2007 skyldi ráðstafað. Hjalti svaraði því að kostnaðarhugmyndir byggðu á tillögum tækni- og umhverfissviðs og yrðu ráðstafað eftir að vinnu við endurskipulagningu á lóðum væri lokið.
Einnig rætt um efnistöku í landi Horns. Hjalti lagði til að unnið verði að gerð aðalskipulags í tengslum við þetta mál, vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót, göng undir Lónsheiði og ef til vill fleiri mál og samhliða því yrði unnið að gerð umhverfisskýrslu. Sagði hann frá því að hann hafi óskað eftir að Háskólasetrið á Hornafirði tæki að sér að vinna umhverfisskýrslu í tengslum við breytingar á aðalskipulagi.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 63 . fundur 11. desember 2006.
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við eigendur Náttúrulega ehf. um þjónustusamning um umhverfismál.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 72. fundur 12 . desember 2006.
Björn Ingi ræddi um fyrirkomulag við úthlutun íbúða og m.a. vöknuðu upp spurningar um af hverju úthlutanir væru færðar í trúnaðarbók. Einnig rætt um hvort leiguumsýsla á vegum bæjarins ætti ekki frekar heima hjá starfsmanni en nefnd.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 156. fundur12.desember 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki 25. fundur 11. desember 2006.
Björn Ingi óskaði eftir aðgangi að teikningum og upplýsingum um stöðu á hönnun sundlaugarmannvirkja. Hjalti gaf upplýsingar hönnun og teikningar. Einnig spurði Björn Ingi um hvaða stefnu eigi að taka með yfirborðsefni á aðalvelli Sindra.
Árni sagði að í ljósi framkominna upplýsinga um stuðning við uppbyggingu knattspyrnuhúss þá væri ljóst að stefnt væri að því að leggja náttúrugras á aðalvöllinn.
Rætt um viðhald á íþróttavöllum.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd 82. fundur 22. nóv., 83. fundur 27. nóv., 84. fundur 6. des. og 85. fundur 13. des. 2006.
Bæjarráð leggur ríka áhersla á að fundargerðir berist strax að afloknum nefndarfundi.
Rætt um endurskoðun í stefnumótun í menningar- og safnamálum. Rætt um hugmyndir um árangursstjórnun í starfsemi sveitarfélagsins. Bæjarráð leggur áherslu á að fá tillögur um stefnu í menningarmálum frá nefndinni þegar drög liggja fyrir.
Rætt um Pakkhúsið og hvaða hlutverki það eigi að gegna.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um ráðstöfun á listaverkum í eigu bæjarins.
Björn Ingi spurðist fyrir um endurbætur á sýningu Byggðasafns og ástand Akureyjar. Hjalti gerði grein fyrir því að unnið hafi verið að því að loka Akurey og dæla vatni upp úr lestinni. Þá greindi Hjalti frá vinnu starfsmanna Menningarmiðstöðvar við endurbætur á sýningu við Gömlubúð.
Fundargerð samþykkt.
2. Lögheimilisskráning í frístundabyggð.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir ósk um skráningu um lögheimili í frístundabyggð. Ákvörðunin er tekin á grundvelli eldri laga um lögheimili enda hefur umsækjandi fasta búsetu í skipulagðri frístundabyggð. Ljóst er að dregist hefur úr hömlu að taka erindið fyrir.
Björn Ingi harmar einnig hversu lengi erindið hefur legið óafgreitt. Í ljósi þess að búið er að samþykkja breytingar á lögum um lögheimili ákveður hann að sitja hjá við afgreiðslu erindisins.
3. Drög að samningi um stofnun vatnsölufyrirtækis.
(Ari Þ. Þorsteinsson framkvæmdastjóri Frumunnar kom á fundinn undir þessum lið). Ari kynnti aðdraganda verkefnisins og kynnti viðræður við þýska fjárfesta um hugmynd um að byggja upp vatnsölufyrirtæki sem flytir út átappað vatn. Samningsdrögin gera ráð fyrir að sveitarfélagið tryggi fyrirtækinu vatn og fái á móti hlutdeild í fyrirrtækinu.
Í framhaldinu sköpuðust umræður um lengd samningsins og um verðmæti vatns. Ljóst er að mörgum spurningum er ósvarað. Bæjarráð óskaði eftir því að Frumkvöðlasetrið taki málið að sér. Ennfremur vöknuðu spurningar um það hvort sveitarfélagið ætti að vera samningsaðili að málinu og taldi rétt að kanna hug landeiganda til að taka þátt í svona verkefni.
4. Málefni slökkviliðsmanna.
Bæjarráð tekur vel í umsóknina og vísar afgreiðslu til starfsmanna.
5. Yfirlit yfir fjárhagsstöðu
Hjalti fór yfir fjárhagsstöðu þann 30. nóvember. Kom fram að gjöld og tekjur eru í góðu samræmi við áætlun. Samkvæmt yfirlitinu er rekstrar afgangur samstæðu fyrstu 11. mánuði ársins rétt rúmar 98 m.kr.
Björn Ingi spurðist fyrir um millifærslur. Einnig spurðist Björn Ingi fyrir um stöðu einstakra málaflokka. Hjalti svaraði fyrirspurnum.
6. Ósk um heimild til landskipta v/Reyðarár í Lóni
(Hjalti vék af fundi undir þessum lið). Samþykkt.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, bréf dags. 5. des. 2006, v. aðkomu sjóðsins að uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Greint frá því í svari Jöfnunarsjóðs að hann geti ekki komið að sundlaugarframkvæmdum á Höfn enda íbúafjöldi í sveitarfélaginu yfir viðmiðunarmörkum (>2000 íbúar).
· Jöfnunarsjóður sveitarfélaga,bréf dags. 5. des.. 2006, svar við erindi um jöfnunarframlag til reksturs grunnskóla.
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs samþykkir að við útreikninga á jöfnunarframlögum til reksturs grunnskóla verði tekið tillit til endurskipulagningar á skólahaldi í sveitarfélaginu með þeim hætti að skólar verði næstu fimm árin reiknaðir út eins og var fyrir breytingu (lokun Hrollaugsstaðaskóla).
· Jöfnunarsjóður sveitarfélagana, bréf dags. 5. des.r 2006 , viðbótarframlag vegna náms fatlaðs nemanda.
Jöfnunarsjóður samþykkir umsókn um viðbótarframlag.
· Kristín Arna Sigurðardóttir verkefnastjóri,bréf dags. 6. desember2006, ósk um styrk v.
Þjóðahátíð Austurlands.
Vísað til félagsmálaráðs
· Sýslumaðurinn á Höfn ,bréf dags. 8.desember 2006 v.endurnýjun leyfis til reksturs gistiheimilis og veitingarstofu Brunnhól Mýrum.
Frestað til næsta fundar.
· Félagsmálaráðuneytið ,bréf dags 7.desember 2006 .
Til kynningar.
· Umhverfisráðuneytið bréf dags 11. desember 2006 svar við erindi vegna. breytingu á aðalskipulagi.
Vísað til byggingarfulltrúa.
· Menntamálaráðherra ,bréf dags 7. desember 2006 varðar bæklinginn “Góð lýsing í skólum”
Vísað til skólanefndar.
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands ,bréf dags 10. desember 2006 varðar eftirlitsgjöld og framlög 2007.
Til kynningar.
8. Önnur mál
· Hjalti lagði fram tilboð Óssins ehf. í fjöleignarhúsin nr. 11 og 13. við Víkurbraut. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna við tilboðsgjafa og leggja tillögur fyrir bæjarráð.
· Björn Ingi lýsti yfir ánægju með framgöngu Skinneyjar – Þinganess varðandi stuðning við uppbyggingu íþróttamannvirkja. Tóku aðrir bæjarráðsmenn undir það. Árni Rúnar las upp eftirfarandi bókun sem var samþykkt:
Bæjarráð Hornafjarðar þakkar og fagnar því að stjórn Skinneyjar – Þinganess hefur lýst yfir vilja til þess að koma að uppbyggingu mannvirkja sem efla samfélagið enn frekar. Í bréfi frá fyrirtækinu, dags. 15. des. 2006, kemur fram að sú hugmynd hafi kviknað í framhaldi af heimsókn stjórnar USÚ, að Skinney – Þinganes og Sveitarfélagið Hornafjörður tækju höndum saman um að reisa knattspyrnuhús í líkingu við það hús sem byggt var upp í Kaplakrika í Hafnarfirði. Það er sérstakt ánægjuefni þegar einkafyrirtæki og opinberir aðilar taka höndum saman um verkefni líkt og þetta með það að markmiði að bæta og styrkja samfélagið. Ekki þarf að efast um það að hér er komin lausn til framtíðar fyrir allt íþróttalíf á Hornafirði. Knattspyrnumenn fá tækifæri til þess að æfa við bestu hugsanlegu aðstæður allt árið um kring. Aðrar íþróttagreinar munu einnig njóta góðs af þessari framkvæmd þar sem tímum í íþróttahúsinu fyrir aðrar íþróttgreinar mun fjölga með tilkomu knattspyrnuhússins.
Fundi slitið kl. 23:30


