Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 360
360. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 11. desember 2006 kl. 16:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni R. Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Samþykkt var breyting á dagskrá.
1. Fundargerðir
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 86. fundur 5. desember 2006.
Árni spurði um fund sem bæjarstjóri átti í Siglingastofnun þann 6. desember sl. Hjalti gerði grein fyrir fundinum og ræddi m.a. samskipti við Gáma- og tækjaleiguna, áætlanir um framkvæmdir á vegum Hornafjarðarhafnar og einnig um landbrot við Ósland. Reynir greindi frá því að starfsmenn hafnarinnar væru að skoða bryggjuna á Óslandi með tilliti til nýtingar á henni vegna ferðaþjónustu sem er í skoðun. Ennig rætt um losun á uppdældu efni og hvaða heimild verktaki við dælingu hefur til að losa efni með þeim hætti sem gert hefur verið með hluta efnisins. Einnig rætt um rafmagn á Austurfjörum.
Fundargerð samþykkt.
Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga 738. fundur 20. október 2006.
Árni vakti athygli á 13. lið fundargerðarinnar þar sem rætt er um endurskoðun á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og tilfærslu verkefna sem tengjast öldruðum. Sagði Árni þetta skipta máli fyrir okkar sveitarfélaga.
2. Fjárhagsáætlun 2007
Ásta fór yfir þær breytingar sem orðið hafa á áætluninni eftir fyrri umræðu. Rekstur A-hluta hækkar um 7.550.000.- sem er m.a. vegna amnings við Ferðamálafélagið um markaðssetningu sveitarfélagsins utan annatíma, 3,0 m.kr., meiriháttar viðhald hækkar um 2,2 m.kr., viðhorfskönnum á vegum fyrirtækisins Capacent meðal íbúa í sveitarfélaginu 1,15 m.kr. og Vaxtasamningur Austurlands 1,2 m.kr. Framkvændir í A-hluta verða 270 m.kr. og lántaka 200 m.kr. Einnig var lagður fram listi yfir framkvæmdir í A og B hluta samtals 318 m.kr. Hjalti greindi frá væntanlegri þróun á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins næstu 3 árin þegar tekið hefur verið mið af fyrirhuguðum framkvæmdum. Bæjarráð samþykkir framlagða fjárhagsáætlun og vísar henni til annarrar umræðu í bæjarstjórn. Einnig var lögð fram fjárhagsáætlun Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fyrir árið 2007. Bæjarráð bendir á að halli stofnunarinnar verður samkvæmt áætlun þessari 14,5 milljónir króna. Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlun Heilbrigisstofnunar Suðausturlands og vísar henni til bæjarstjórnar.
3. Reglur um daggæslu í heimahúsum í Sveitarfélaginu Hornafirði
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri mætti á fundinn undir dagskrárlið 3 og 4. Samþykkt að þeir dagskrárliðir verði teknir sem liður 1 og 2 á dagskránni. Bæjarráð samþykkir reglur um daggæslu í heimahúsum.
4. Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum
Bæjarráð samþykkir reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum með þeim breytingum að síðasta málsgrein töluliðar 10. d fellur niður.
5. Hringvegur um Hornafjarðarfljót
Gögn frá Skipulagsstofnun er varða hringveg um Hornafjarðarfljót, dagsett 5. desember
Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við vegamálastjóra og starfsmann Vegagerðarinnar varðandi málið. Erindunum Skipulagsstofnunar vísað til byggingar- og skipulagsnefndar og starfsmanna.
6. Ósk um umsögn á endurnýjun leyfis til reksturs hótels og gististaðar
Bréf sýslumannsins á Höfn dags. 5. desember vegna Hótel Skaftafells.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
7. Innsend erindi og til kynningar
- Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 28. nóvember 2006, um útsvarsprósentu tekjuársins 2007.
Starfsmaður sér um að senda tilkynningu til Sambandsins.
- SSA, tölvubréf dags. 4. desember 2006, um árgjald til SSA 2007.
Ásta greindi frá því að gert hafi verið ráð fyrir þessu framlagi í fjárhagsáætlun ársins 2007.
- SSA, tölvubréf dags. 6. desember 2006, um vaxtarsamning.
Ásta greindi frá því að gert hafi verið ráð fyrir þessu framlagi í fjárhagsáætlun ársins 2007.
- Skipulagsstofnun, afrit af bréfi dags. 5. desember 2006, vegna tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998-2018, efnistökusvæði við Falljökulsvísl.
Til kynningar.
8. Önnur mál
- Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við Samgönguráðuneytið, Vegagerðina og Landsflug vegna flugmála. Í þeim samtölum var komið á framfæri alvarlegum athugasemdum um hvernig rekstraraðili hafi staðið sig að undanförnu. Einnig gerði Hjalti grein fyrir samtölum sínum við forstjóra Ernis sem tekur við flugi milli Reykjavíkur og Hornafjarðar um næstu áramót.
- Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við forsvarsmenn KHB og 11-11 búðanna og fleiri um verslunarmál á Hornafirði. Eftirfarandi bókun var samþykkt: Bæjarráð bendir á að núverandi ástand skaðar samfélagið. Íbúum svæðisins er haldið í algerri óvissu um framhaldið og mikilvægt er að þeir aðilar sem bera ábyrgð á þessari atburðarrás skýri sjónarmið sín og fyrirætlanir og axli ábyrgð gagnvart samfélaginu sem þeir starfa í.
- Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við Vegamálastjóra um hugsanleg göng undir Lónsheiði. Einnig rætt um fyrirhugaðar lagfæringar á veginum í Hvalnes- og Þvottárskriðum. Fundarmenn sammála um að göng undir Lónsheiði séu eini raunhæfi kosturinn þegar litið er til öryggis vegfarenda og tryggra samgangna. Einnig stytti sú framkvæmd leiðina á mili Suðaustur- og Austurlands um 12 km.
- Verkfræðiþjónusta fyrir sveitarfélagið. Hjalti gerði grein fyrir tilboðum Hönnunar hf annars vegar og Verkfræðiþjónustunnar ehf. hins vegar. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Verkfræðiþjónustu ehf. (Ásta vék af fundi undir þessum dagskrárlið.)
Fundi slitið kl. 17:55


