Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 359
359. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 5.desember 2006 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni R. Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson. Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Samþykkt var breyting á dagskrá.
Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 155. fundur 28. nóvember 2006.
Fundargerð samþykkt
· Skólanefnd Hornafjarðar 87. fundur 29. nóvember 2006.
Bæjarráð samþykkir þá breytingu á dagskrá að taka Reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla og Reglur fyrir leikskólana á Hornafirði sem sérliði (6. og 7. liður) á fundinum.
Fundargerð samþykkt
· Æskulýðs og tómstundaráð Hornafjarðar 84. fundur 27. nóvember 2006.
Fundargerð samþykkt
· Stýrihópur við gerð skólastefnu 5. fundur 13. nóvember 2006.
Fundargerð samþykkt
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 65. fundur 22. nóvember 2006.
Til kynningar.
2. Félagslíf ungmenna 16 ára+
Undir þessum lið mættu á fundinn Haukur H. Þorvaldsson, Eyjólfur Guðmundsson, Jón Kristján Rögnvaldsson og Ragnhildur Borgarsdóttir. Haukur gerði grein fyrir þeirri vinnu og umræðum sem fram hafa farið um málefni þessa aldurshóps undanfarin ár og því sem til umræðu hefur verið í sveitarfélaginu undanfarnar vikur. Fram kom í máli hans að reynslan af ungmennahúsum vítt og breitt um landið væri upp og ofan. Útdeildi hann vinnuskjali þar sem farið er yfir rekstur og hugsanlega þátttakendur við starfsemi ungmennahúss á Hornafirði. Eyjólfur taldi að hér væru 150 ? 200 manns sem þyrftu annars konar þjónustu en ungmenni á grunnskólaaldri. Þetta ætti að vera samstarfsverkefni framhaldsskólans og sveitarfélagsins. Jón Kristján benti á að húsnæði fyrir þennan aldurshóp mætti einnig nýta fyrir fólk af erlendum uppruna, þá á öðrum tímum en þeim sem ungmennin nýttu það. Ragnhildur taldi það vera mikilvægt að þessi aldurshópur hefði húsnæði fyrir sína starfsemi þar sem ungmennin kæmu að skipulagningu og starfi ásamt öðrum. Einnig rætt um hvort og á hvaða hátt mætti nýta Nýheimana undir þessa starfsemi. Eyjólfur var með efasemdir um það, m.a. vegna þeirrar starfsemi sem er þar langt fram á kvöld, svo sem kennsla. Nýheimar geti því ekki alltaf verið opnir fyrir þessa starfsemi. Formaður þakkaði gestum fyrir komuna og þá vinnu sem innt hefur verið af hendi.
3. Ósk um breytingu á skráningu fasteignar
· Bréf Ásbjörns Þórarinssonar dags. 22. nóvember 2006.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
4. Ósk um heimild til landskipta vegna Reyðarár í Lóni
· Bréf Guðrúnar Ingólfsdóttur og Ingólfs Ásgrímssonar dags. 27. nóvember 2006.
(Hjalti vék af fundi undir þessum dagskrárlið.) Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Deloitte, bréf dags. 20. nóvember 2006, varðar endurskoðun ársreiknings og gerð ársreiknings.
Samþykkt að Lárus Finnbogason hjá Deloitte verði endurskoðandi sveitarfélagsins.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 21. nóvember 2006, svar við erindi bæjarstjóra um stuðning við byggingu íþróttamannvirkja á Höfn.
Bæjarstjóra falið að undirbúa fundarherferð í menntamálaráðuneytið og önnur ráðuneyti varðandi ýmis mál.
· Samningur um kaup á afnotarétti á tölvutækum myndkortum, landlíkani og hæðarlínum milli sveitarfélagsins og Loftmynda ehf.
Til kynningar.
6. Reglur fyrir leikskólana á Hornafirði
Björn Ingi sagðist vilja sjá inn í þessum reglum ákvæði sem kveði á um að leikskólunum beri að leitast við að fara eftir óskum foreldrafélags um skólatíma. Reglurnar samþykktar, eins og þær komu frá skólanefnd með gildistöku 1. janúar 2007, með öllum greiddum atkvæðum. Björn Ingi samþykkti reglurnar með þeim fyrirvara að samráð verði haft við foreldrafélag leikskólanna um skólatíma.
7. Reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla
Reglurnar með áorðnum breytingum samþykktar samhljóða.
8. Önnur mál
· Ásta greindi frá breytingu á fyrirkomulagi álagningar fasteignagjalda. Bæjarráð heimilar að samningi við Gjaldheimtu Austurlands varðandi innheimtu fasteignagjalda verði sagt upp og innheimtan flutt í ráðhúsið.
· Samþykkt að borgarafundur verði haldinn þriðjudaginn 12. desember nk. Fundurinn verði fyrst og fremst um fjárhagsáætlun.
· Björn Ingi lagði fram eftirfarandi bókun:.
Jarðgöng undir Lónsheiði.
Bæjarráð Hornafjarðar vill beina þeim tilmælum til samgönguráðherra og samgöngunefndar Alþingis að í stað þess að ætla 200 milljónir króna til lagfæringar á veginum um Hvalnes- og Þvottárskriður, eins og nú er áætlað í Samgönguáætlun, þá verði þeir fjármunir notaðir til að hefja undirbúning á gerð jarðgangna undir Lónsheiði. Þjóðvegur 1 um skriðurnar er stórvarasamur og öllum ljóst að ekki er um framtíðarvegstæði að ræða með öllu því grjóthruni og skriðuföllum sem þar eru. Einnig er Hvaldalur þekkt veðravíti. Mikilvægt er að sem fyrst verði unnið að framtíðarlausn á þessum vegkafla.
Bókunin samþykkt.
Hjalti greindi frá því að hann hafi óskað eftir fundi með vegamálastjóra vegna vegarins í Hvalnes- og Þvottárskriðum og jarðganga undir Lónsheiði. Fundarmenn tóku undir þessa bókun.
· Björn Ingi vakti athygli á þeim breytingum sem verða á verslunarmálum í mars nk. þegar verslunin 11-11 lokar. Þetta þurfi bæjarráð að ræða enda alvörumál. Hjalti greindi frá því að hann hafi óskað eftir viðræðum við forsvarsmenn Kaupáss og KHB.
Fundi slitið kl. 13:55


