Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 358
358. fundur
Mætt: Árni R. Þorvaldsson varaformaður og Elín Magnúsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Stefán Ólafsson.
Árni setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 28. fundur 21. nóvember 2006.
Rætt um fyrirhugað samstarf við Vegagerðina um lausagöngu búfjár og girðingar meðfram þjóðvegum. Elín fagnaði að kominn væri skriður á þetta mál. Kynnt erindisbréf fyrir nefnd um endurskoðun fjallskila. Einnig kynnt erindisbréf vegna nefndar til að fjalla um 110 ára afmæli Hafnar og atvinnulífssýningu í tengslum við Ungmennalandsmót. Ákveðið að skipa í nefndirnar á næsta fundi bæjarstjórnar og afgreiða erindisbréf þeirra.
Rætt um gæðastýringu í landbúnaði og athugasemdir atvinnumálanefndar um vinnulag Landgræðslunnar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að kynna sér málið til hlítar og gera viðeigandi ráðstafanir.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 24. fundur 1. október 2006.
Árni gerði athugasemd við það hversu seint þessi fundargerð hafi borist bæjarráði. Lagði hann áherslu á að fundargerðir nefnda færu til bæjarráðs strax á næsta fundi ráðsins eftir nefndarfund. Hjalti sagði að samkvæmt nýlegum mælingum sigi sundlaugarpúðinn enn.
Fundargerð samþykkt.
2. Samningur við Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu um markaðssetningu og vöruþróun
Framlögð drög að samningi samþykkt og honum vísað til bæjarstjórnar.
3. Vínveitingaleyfisumsókn
· Umsókn Hólmars Kristinssonar v. Víkurinnar
Samþykkt.
4. Ósk um framkvæmdaleyfi og aðalskipulagsbreytingu vegna lagningar ljósleiðara í sveitarfélaginu
· Bréf Landsnets, dagsett 20. nóvember 2006
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Capacent, ódagsett bréf, varðar bæjar- og sveitarfélagskannanir.
Samþykkt að láta framkvæma slíka könnun. Málinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
· Haust, afrit bréfs til Olíufélagsins ehf. vegna skráningar og eftirlitsgjalda bensínstöðva á Austurlandi.
Til kynningar.
6. Önnur mál
· Stefán gerði grein fyrir samningafundi í félagsmálráðuneytinu þann 24. nóv. síðastliðinn vegna þjónustusamnings um málefni fatlaðra. Sagði hann góðan gang hafa verið í þeim viðræðum.
· Lagt fram aðalfundarboð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands þann 30. nóvember 2006. Bæjarráð tilnefnir Reynir Arnarson sem fulltrúa sveitarfélagsins.
· Lögð fram ályktun frá fundi í æskulýðs- og tómstundaráði frá 27. nóvember sl varðandi að málefni ungmenna 16 ára + verði fundinn farvegur þannig að þau fái notið sín enn meira en nú er með því að virkja frumkvæði þeirra og leiðtogahæfileika. Samþykkt að taka málefni ungmenn 16 ára og eldri fyrir sem sérlið á næsta fundi bæjarráðs.
· Afhent ályktun frá stjórnendum grunnskólanna til stýrihóps um skólastefnu, skólanefndar og bæjarstjórnar þess efnis að ljúka stefnumótunarvinnu hið fyrsta.
· Kynnt að rektor Háskóla Íslands verði í heimsókn á Hornafirði þann 29. nóvember til að kynna sér rekstur Háskólasetursins á Hornafirði og fleira. Rætt um skipan í stjórn Háskólasetursins og hugmyndir að breytingum á því, bæði fjölda fulltrúa og frá hvaða stofnunum þeir komi hver og einn.
Fundi slitið kl. 18:15


