Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 357
357. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 21. nóvember 2006 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni R. Þorvaldsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Guðrún Júlía Jónsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 154. fundur 14. nóvember 2006.
Halldóra taldi ástæðu til að hafa áhyggjur af aðstöðu aldurshópsins sem náð hefur 16 ára aldri. Bent á að aðstæður aldurshópsins 16 – 20 ára verði teknar til umræðu á næsta fundi æskulýðs- og tómstundaráðs.
Fundargerð samþykkt
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 75. fundur 14. nóvember 2006.
Guðrún Júlía greindi frá viðræðum við embættismenn í heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti um þjónustusamning milli ráðuneytisins og sveitarfélagsins. Einnig fór hún yfir útreikninga ráðuneytisins um fjárframlög til nokkurra sveitarfélaga. Fram kom að ráðuneytið boði til næsta samningafundar um þjónustusamninginn. Bæjarráðsmenn lögðu áherslu á að þau gögn sem farið var með á samningafundinn við ráðuneytið væru mjög vel unnin.
Fundargerð samþykkt
· Gjafa og minningarsjóður Skjólgarðs 32. fundur 14. nóvember 2006
Reynir lagði áherslu á að halda þurfi til haga þeim tækjum sem keypt hafa verið inn á HSSA með fé úr gjafa- og minningasjóði. Tók Halldóra undir það. Einnig rætt um nauðsyn á eignaskrá og að gert verði ráð fyrir stofnbúnaðarkaupum til HSSA í fjárhagsáætlun.
Fundargerð samþykkt
· Skólanefnd Hornafjarðar 86. fundur 8. nóvember 2006.
Reglur um leikskóla verða teknar aftur fyrir á næsta fundi nefndarinnar þar sem tekin verður ákvörðun um gildistíma reglnanna. Halldóra gerði að umtalsefni skólatíma. Taldi hún enga röskun eiga að vera í tvo tíma fyrir hádegi og tvo tíma eftir hádegi, þ.e. að þá verði ekki tekin inn börn. Það trufli skólastarf hins vegar minna að taka börn inn í hádeginu. Bæjarráð óskar nemendum Hafnarskóla og Heppuskóla til hamingju með góðan árangur.
Fundargerð samþykkt
· Stýrihópur við gerð skólastefnu, 3. fundur 2. október og 4. fundur 19. október 2006.
Undir þessum lið var rætt um þá fundi sem eru að baki með starfsmönnum skólanna og fulltrúum foreldra. Halldóra sagði það sína skoðun að stýrihópurinn leggi fram í sinni vinnu heildstæðar tillögur um stjórnunarfyrirkomulag leikskóla, grunnskóla og tónskóla.
Fundargerðir samþykktar
2. Fjárhagsáætlun 2007 – viðhaldsáætlun og úthlutun stofnbúnaðar
Björn Imsland og Össur Imsland mættu á fundinn til að ræða tillögur tæknideildar að viðhaldi fasteigna sveitarfélagsins. Fram kom að mest áhersla er lögð á utanhússviðhald á næsta ári, um helmingur af heildarfjárhæð til viðhalds, sem er 20 millj. króna. Bæjarráð samþykkir fram lagðar tillögu að viðhaldsrömmum og samþykkir jafnframt að hækka viðhaldsrammann í 22,4 milljónir. Viðbótarfjármagni verði einkum varið til endurbóta utanhúss í Sindrabæ og aðgerða innanhúss í Krakkakoti. Við þessa umræðu voru einnig ræddar hugmyndir um sölu fasteigna í eigu sveitarfélagsins.
Undir þessum lið var rætt um tölvukost Nesjaskóla og óskir skólastjóra um endurbætur á honum. Bæjarráð samþykkir að útstöðvar verði samtals 22 í skólanum þannig að skólinn hafi heimild til að kaupa 8 tölvur á rekstrarleigu. Þegar endurnýja þarf 14 tölvur síðla næsta árs sem nú eru á rekstrarleigu verður ákvörðun um útstöðvar tekin til endurskoðunar. Bæjarráð samþykkir tillögur að stofnbúnaði deilda, dagsett 21. nóvember 2006.
Tillögum um viðhaldsramma, stofnbúnað og breytingu á rekstrarramma Nesjaskóla vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2007.
3. Erindi frá félagsmálaráð sbr. fundargerð 154. fundar
· Reglur um daggæslu í heimahúsum.
· Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum.
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir reglunum. Einnig fór hann yfir þær athugasemdir sem fram hafa komið hjá starfandi dagmæðrum. Undir umræðum um reglurnar lagði Halldóra til að umsóknarfrestur fyrir börn í leikskóla verði miðaður við 6 mánaða aldur en ekki 9 mánaða aldur eins og er samkvæmt núgildandi reglum. Einnig spurði Halldóra um biðlista eftir leikskólaplássum. Bæjarráð samþykkir að vísa reglum um daggæslu í heimahúsum og reglum um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum til áframhaldandi vinnu starfsmanna og umfjöllunar í félagsmálaráði. Tekið verði mið af þeim breytingum sem lagðar voru til á fundinum. Bæjarráð óskar eftir að reglur um niðurgreiðslur verði kostnaðarmetnar.
4. Efnistaka í landi Horns – svar Skipulagsstofnunar
Bæjarráð vísar svarinu til byggingar- og skipulagsnefndar og óskar eftir áliti nefndarinnar um nýtingu á efni úr umræddum námum.
5. Þjónustusamningur sveitarfélagsins Hornafjarðar og félagsmálaráðuneytisins um málefni fatlaðra
Farið yfir stöðuna í viðræðum sveitarfélagsins og félagsmálaráðuneytisins eins og hún er og þær tillögur sem fram hafa verið settar um fjárhagslega hlið samningsins. Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram viðræðum við félagsmálaráðuneytið á þeim forsendum sem kynntar voru á fundinum. Lögð er áhersla á að niðurstaða samningaviðræðna liggi fyrir sem fyrst.
6. Breytingar á tækni- og umhverfissviði
Bæjarstjóri fór yfir drög að breyttu skipulagi á tækni- og umhverfissviði. Lagði hann til að þessi breyting á sviðinu verði samþykkt. Undir umræðum um skipulagsbreytingar sagði Halldóra að hún hafi á sínum tíma verið á móti því að leggja niður stöðu framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs og á þeirri skoðun væri hún enn. Sú fækkun hafi komið niður á starfsemi í yfirstjórn sveitarfélagsins. Hjalti benti á að með fækkun í yfirstjórn hafi m.a. verið leitað sparnaðarleiða til að vega upp á móti miklum framkvæmdum. Bæjarráð samþykkir tillögur að breytingum á tækni- og umhverfissviði og vísar þeim til bæjarstjórnar
7. Ráðning í starf framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum um ráðningu framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissvið. Leggur hann til að Haukur Ingi Einarsson verði ráðinn til starfsins. Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra.
8. Innsend erindi og til kynningar
· Menningarráð Austurlands, bréf dags. 6. nóvember 2006, v. hlutdeildar sveitarfélaga í kostnaði v. samnings um menningarmál milli sveitarf. á Austurlandi, menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis.
Samþykkt að greiða kr. 564.414 samkvæmt samningi um samstarf ríkis og sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál. Útborgun er háð samþykki annarra sveitarfélaga á Austurlandi.
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 9. nóvember s.l., svar við erindi bæjarstjóra um fjármagn til að byggja upp fjarskipti í sveitarfélaginu.
Í bréfinu kemur fram að starfsmenn fjarskiptasjóðs muni funda með sveitarfélögum á næstu vikum og mánuðum til að gera grein fyrir verkefnum sjóðsins er snýr að háhraðatengingum.
9. Kosningar (breyting á dagskrá)
Kosning í stýrihóp vegna skólastefnu. Samþykkt að Anna María Ríkharðsdóttir verði aðalmaður í stýrihópi og Torfi Friðfinnsson verði varamaður.
10. Önnur mál
· Farið yfir reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla, dagsett 21. nóvember 2002. Vísað til umræðu í skólanefnd.
· Lagt fram bréf, dags. 16. nóvember, frá NorðurBragði þar sem boðað er til aðalfundar félagsins þann 23. nóvember. Bæjarráð samþykkir að Reynir Arnarson fari með atkvæði Sveitarfélagsins Hornafjarðar á fundinum.
· Lagt fram bréf, dags. 20. nóvember, frá Erni Eriksen þar sem óskað er eftir heimild til landaskipta vegna Reynivalla III. Bæjarráð samþykkir landaskiptin.
· Rætt um svör Flugmálastjórnar vegna fyrirspurna um að minni þotur á leið milli landa geti lent á Hornafjarðarflugvelli.
· Rætt um afgreiðslu á erindum til fjárlaganefndar.
Fundi slitið kl.13:25


