Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 356
356. fundur
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni R. Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd 71. fundur 6. nóvember 2006.
Hjalti greindi frá samtölum við eigendur Pylsubarsins. Bæjarráð tekur undir bókun byggingar- og skipulagsnefndar, liður 3. Framtíðarlóð fyrir pylsubarinn. Bæjarráð samþykkir að Pylsubarinn fái heimild til að vera með starfsemi næstu 5 ár á þeim stað sem húsnæði fyrirtækisins er nú staðsett. Hákon Valdimarsson kom á fundinn og fór yfir hugmyndir að svæði fyrir nýjan kirkjugarð. Bæjarráð tekur undir það að hraða þurfi þessari vinnu og lýsir yfir fullum vilja til viðræðna við sóknarnefnd. Í liðnum önnur mál á fundi nefndarinnar er rætt um þrengingar til að spyrna við hraðakstri. Bæjarráð tekur undir að huga þurfi að þessum málum og hvetur til þess að tekin verði umræða um hámarkshraða í þéttbýli. Einnig rætt um lóðamál og nauðsynlega vinnu sem þarf að fara í.
Fundargerð samþykkt
· Fundargerð aðalfundar Menningarráðs Austurlands 26. október 2006, send út í tölvupósti.
Til kynningar.
2. Samningur við Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu um vöruþróun og markaðssetningu í ferðaþjónustu.
Hjalti fór yfir fyrirliggjandi samningsdrög. Greindi hann frá tilurð samningsins og tengslum hans við klasaverkefni Frumkvöðlasetursins og ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu. Samningurinn gengur út á það að ferðaþjónustan og sveitarfélagið leggi krónu á móti krónu til þessa samnings. Það verði ekki greitt með vinnuframlagi. Lagt er til í drögunum að samningurinn gildi í 4 ár. Samkvæmt drögunum yrðu aðilar samningsins Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu og Sveitarfélagið Hornafjörður. Bæjarráð samþykkir að farið verði betur yfir þessi samningsdrög áður en samningurinn verður tekinn til endanlegrar afgreiðslu. Reynir lýsti því yfir að hann tæki ekki þátt í lokaafgreiðslu samningsins vegna tengsla við atvinnugreinina.
3. Þjónustusamningur um þjónustu við atvinnuleitendur
(Ólöf Guðmundsdóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Egilsstöðum var í síma undir þessum lið) Ólöf greindi frá því hvað í þessum samningi fælist og hvaða verkefni féllu á þá sem tækju að sér vinnu í samræmi við samninginn, í þessu tilfelli Sveitarfélagið Hornafjörð. Bæjarráð samþykkir að gera samning við Vinnumálastofnun um þjónustu við atvinnuleitendur sem hafi gildistíma frá 1. ágúst 2006 til loka árs 2007. Samningurinn felur í sér frumskráningu atvinnuleitenda, afhendingu atvinnutilboða og að koma á framfæri upplýsingum til atvinnuleitenda. Lagt er til að haldið verði vel utan um þann tíma starfsmanna sem fer í að sinna þessu starfi.
4. Fjárhagsáætlun 2007 – úthlutun stofnbúnaðar
Lögð fram tillaga að skiptingu stofnbúnaðarramma. Samþykkt að starfsmenn leggi fram nýja tillögu að skiptingu á næsta fundi og ganga út frá að 5 millj. fari í þennan fjárhagslið og að aukning verði tekin af óráðstöfuðu. Undir þessum lið var tekin fyrir ósk Nesjaskóla um fjölgun tölva (útstöðva) í skólanum, kaupa á nýjum netþjóni og þremur tölvuskjáum. Samþykkt að starfsmenn fari yfir þetta mál með skólastjóra og þjónustuaðila. Úthlutun stofnbúnaðar frestað til næsta fundar.
5. Samþykkt um hunda- og kattahald í sveitarfélaginu
Borgþór Freysteinsson kom á fundinn undir þessum lið og fór yfir breytingar sem gerðar hafa verið á reglugerðunum frá fyrstu drögum sem komu frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
Eftir yfirferð bæjarráðs var samþykkt um hundahald og samþykkt um kattahald vísað til umfjöllunar á vinnufundi bæjarstjórnar.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Ómar Antonsson, bréf til samgönguráðherra dags 6. nóvember 2006, um Austurfjörubryggju.
Vísað til hafnarstjórnar.
· Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 31. október 2006, um flutning vistunarmatsskrár til Landlæknisembættisins.
Vísað til þjónustuhóps aldraðra.
· Vímulaus æska, tölvubréf dags. 8. nóvember 2006, ósk um styrk til útgáfu upplýsingarits fyrir foreldra.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum, tölvubréf dags. 8. nóv. 2006, níundi ársfundur 17. nóvember n.k..
Fundurinn er haldinn í beinu framhaldi af fjármálaráðstefnu og er opinn öllum bæjarfulltrúum.
7. Önnur mál
Umsóknir um störf á tækni- og umhverfissviði sveitarfélagsins kynntar. Tvær umsóknir hafa borist. Einnig kynnt tilboð í verkfræðiþjónustu fyrir sveitarfélagið frá verkfræðistofunni Hönnun hf. annars vegar og Verkfræðistofu Jóns Guðmundssonar hins vegar. Starfsmönnum falið að fara yfir starfsumsóknir og tilboð í verkfræðiþjónustu og koma með tillögur.
- Árni Rúnar Þorvaldsson, Samfylkingunni, lagði fram eftirfarandi bókun:
„Í ljósi umræðu um hugsanlegt vanhæfi undirritaðs til þess að fjalla um stjórnunarþátt grunnskólanna á Hornafirði hefur undirritaður ákveðið að draga sig út úr starfi stýrihópsins.
Þegar fjallað er um stjórnunarþátt grunnskólanna er ljóst að vanda þarf til verka þar sem rekstur grunnskóla er stærsta einstaka verkefnið á hendi sveitarfélagsins. Því er mikilvægt að vel takist til með vinnu stýrihópsins. Ef þátttaka undirritaðs torveldar vinnu stýrihópsins er rétt að hann víki sæti svo það góða starf sem stýrihópurinn hefur unnið og það mikilvæga starf sem hann á eftir að vinna skaðist ekki.
Um leið og undirritaður harmar að ekki hafi tekist að ljúka vinnu við nýja skólastefnu á síðasta kjörtímabili vegna ósamstöðu vill undirritaður ítreka þá ósk sína að vinnu við nýja skólastefnu og stjórnunarþátt grunnskólans ljúki sem fyrst, skólastarfi í sveitarfélaginu til heilla. Í febrúar 2005 var haldið skólamálaþing þar sem umræða hófst með formlegum hætti um nýja skólastefnu og stjórnunarþátt grunn – og leikskóla. Niðurstaða er fengin í stjórnunarþátt leikskólanna en eftir er að klára skólastefnuna sjálfa og stjórnunarþátt grunnskólanna.
Það er ljóst að bið í óvissu um framtíðarskipulag í skólamálum er skólasamfélaginu á Hornafirði ekki til framdráttar og því leggur undirritaður nú sem endranær höfuðáherslu á að stýrihópurinn einhendi sér í að ljúka málum sem allra fyrst vegna þess að þau hafa nú þegar tekið alltof langan tíma. Við enga er að sakast í þeim efnum nema kjörna fulltrúa.“
- Kynntar nýjustu mælingar á heitu vatni á Hala í Suðursveit. Samkvæmt upplýsingum Ómars Bjarka Smárasonar jarðfræðings hefur nýlega mælst 93°C vatn á 630 metra dýpi.
Fundi slitið kl.13:30.


