Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 355
355. fundur
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni R. Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Níu mánaða uppgjör bæjarsjóðs
Ásta fór yfir útsend gögn, gerði grein fyrir stöðunni og svaraði spurningum. Sagði hún að staðan væri góð og reksturinn væri í samræmi við fjárhagsáætlun.
2. Fjárhagsáætlun 2007 – gögn áður send
Lagt fram minnisblað um álagningareglur, dags. 7. nóv. 2006. Bæjarráð samþykkir framlagt minnisblað. Nokkur umræða varð um bókhaldslega útfærslu styrkja vegna menningarmála. Samþykkt að starfsmenn fari yfir þetta mál og komi með tillögu á milli umræðna um fjárhagsáætlun. Bæjarráð samþykkir 200 þ.kr. breytingar á rekstrarrömmum frá fyrri samþykkt og vísar fjárhagsáætlun 2007 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3. Innsend erindi og til kynningar
· Skógræktarfélags Íslands, bréf dags. 25. október 2006, ályktun frá aðalfundi.
Vísað til umhverfisnefndar og byggingar- og skipulagsnefndar. Reynir minnti á að ýmislegt hafi verið gert í sveitarfélaginu í þessum efnum, svo sem skógræktarsvæði við Drápskletta o.fl.
· Brunabót, bréf dags. 26. október 2006, ágóðahlutur EBÍ. Til kynningar
· Risør kommune, tölvupóstur 31. október 2006, tilkynning um vinabæjamót 1.-3. júní 2007.
Lagt til að hvert framboð sendi einn fulltrúa og að auki fari einn til tveir starfsmenn sveitarfélagsins.
· SSA, tölvupóstur 1. nóvember 2006, um fjármagn til bættrar þjónustu við innflytjendur.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, tölvubréf dags. 3. nóvember 2006, ráðstefna um málefni grunnskóla á Nordica hóteli 25. nóvember 2006.
Vísað til skólanefndar.
· Fjármálaráðstefna sveitarfélag - dagskrá.
Lagt til að aðalmenn í bæjarstjórn sitji ráðstefnuna, bæjarstjóri og framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
4. Önnur mál
- Lögð fram umsókn frá Vegagerðinni, dags. 6. nóvember 2006, um endurnýjun á framkvæmdaleyfi við Staðará í Suðursveit. Bæjarráð samþykkir endurnýjun á leyfinu.
· Breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Á fundi byggingar- og skipulagsnefndar var eftirfarandi bókað: „Kynntar voru fyrirhugaðar breytingar á gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998-2018. Breytingin felst í því, að sett er inn svæði fyrir efnistöku vestan við Falljökulskvísl, í landi Sandfells í Öræfum fyrir allt að 50.000 m3. Svæðið er um 3,5 km. norðaustan þjóðvegar nr. 1. Nefndin gerir ekki athugasamdir við fyrirhugaðar breytingar á aðalskipulaginu.” Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingar- og skipulagsnefndar og vísar málinu til bæjarstjórnar.
- Lénið og vefurinn hornafjordur.is. Vegna fréttar í Ríkisútvarpinu sl. laugardag er það áréttað að lénið hornafjordur.is er eign sveitarfélagsins en vefur með sama nafni eign Hátíðni. Samkomulag hefur verið á milli þessara tveggja aðila um vefmál. Það samkomulag hefur verið kært til samkeppnisyfirvalda sem ekki hafa kveðið upp úrskurð. Bæjarráð samþykkir að starfsmenn fari yfir vefmálin, vinni ákveðna þarfagreiningu og komi með tillögur um málið. Samþykkt að fá starfsmenn Hátíðni og Galdurs á fund bæjarráðs við fyrstu hentugleika.
- Lögð fram tillaga um að ljúka framkvæmdum við óinnréttaðan hluta Nýheima. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á kr. 2.222.000. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti þessa framkvæmd og um leið að teknir verði til þess fjármunir sem ætlaðir voru til framkvæmda á þessu fjárhagsári.
Fundi slitið kl.12:07.


