Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 354
354. fundur
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð 153. fundur 24. október 2006.
Fundargerð samþykkt
· Húsnæðisnefnd 71. fundur 24. október 2006.
Bæjarráð tekur undir áður samþykkt minnisblað um kaupleiguíbúðir, dagsett 3. maí 2006 þar sem stefnt sé að sölu á íbúðum í eigu sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs og tómstundaráð 83. fundur 23. október 2006.
Halldóra spurðist fyrir um sundlaugaframkvæmdir. Stefán sagði að vika til hálfur mánuður væri þar til hönnun lýkur. Enn er sig á malarpúðanum og því óvíst hvenær hægt verður að fjarlægja hann.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2007
Lögð fram fjárhagsáætlun 2007 sem verður til umfjöllunar á vinnufundi bæjarstjórnar þann 2. nóv. nk. þar kemur m.a. fram að rekstrarafgangur A og B hluta er 30,5 m.kr., handbært fé er 171 m.kr., fjárfestingar 394 m.kr., tekin verða ný langtímalán 288 m.kr. og afborganir langtímalána verði 114,2 m.kr.
3. Ósk um umsögn á tillögu Vegagerðarinnar að matsáætlun umhverfisáhrifa hringvegar um Hornafjarðarfljót
· Bréf Skipulagsstofnunar dags. 24. október 2006
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu Vegagerðarinnar að matsáætlun vegna hringvegar um Hornafjarðarfljót dags. í október 2006 og vísar málinu til umfjöllunar í bæjarstjórn.
4. Framtíðarlóð fyrir pylsubarinn – ný umsókn
· Bréf Lars Jóhanns Andréssonar og Hólmars Kristmundssonar dags. 22. október 2006.
Erindinu vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
5. Ósk um álit á aðstöðu fyrir ferðaþjónustu
· Bréf Elvars Unnsteinssonar og Hauks Þ. Sveinbjörnssonar dags. 25. október 2006.
Bæjarráð tekur jákvætt undir erindið og felur starfsmönnum að ræða við umsækjendur.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Foss, bréf dags. 20. október 2006, v. trúnaðarmanna Foss hjá sveitarfélaginu. Til kynningar.
· Kask, bréf dags. 23. október 2006, tilkynning um niðurstöðu útboðs á innanlandsflutningum. Til kynningar. Bæjarráð felur starfsmönnum að skoða málið með tilliti til lækkunar á flutningskostnaði.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 20. október 2006, um ársfund Umhverfisstofnunar og Náttúruverndarnefnda 10. nóvember 2006.
Bæjarstjóra falið að tilnefna fulltrúa
7. Önnur mál
· Halldóra spurðist fyrir um stöðu starfsmannamála tæknideildar. Stefán svaraði að málið væri í vinnslu.
· Greint frá því að Þóra Jónsdóttir, búsett á Skálafelli í Suðursveit, hafi verið ráðin sem húsvörður að Hrollaugsstöðum.
Fundi slitið kl.11:53.


