Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 353
353. fundur
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni R. Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Forstöðumenn mæta á fund bæjarráðs
Forstöðumenn mættu hver og einn á fundinn, fóru yfir rekstrarramma 2007 og komu með ábendingar, ræddu óskir um stofnbúnað og tölvukost, viðhald og endurbætur húsnæðis.
Mætt voru: Björg Erlingsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, Þorvaldur J. Viktorsson, Pálína Þorsteinsdóttir (í síma), Snæfríður Svavarsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Jóhann Morávek (einnig tekið fyrir bréf skólastjóra, dagsett 20. okt. 2006), Þórgunnur Torfadóttir, Maren Sveinbjörnsdóttir, Jón Kristján Rögnvaldsson, Haukur Þorvaldsson. Einnig gerðu Stefán og Ásta grein fyrir áætlunum skólaskrifstofu og bæjarskrifstofu. Bæjarráð vísar áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2007 til starfsmanna.
2. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd 27. fundur, 16. október 2006.
Björn Ingi gerði að umtalsefni samgöngumál á milli Hafnar og Reykjavíkur. Hjalti greindi frá samskiptum við Flugfélagið Erni um þeirra fyrirætlanir varðandi flugið. Rætt var um sérleyfishafa í akstri og hvernig þau mál horfi við. Einnig rædd gæðastýring í sauðfjárrækt, sbr. umræður í atvinnumálanefnd. Þá var rætt um atvinnulífssýningu í tengslum við ungmennalandsmót á næsta ári. Fram kom hugmynd um að fá hóp fólks úr atvinnulífinu til að sjá um það mál.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð 152. fundur 12. október 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn 85. fundur, 17. október 2006.
Björn Ingi óskaði eftir að fá drög að samningi vegna dælingar í Hornafjarðarhöfn. Upplýst að þeim verði komið til bæjarráðs áður en til undirskriftar kemur. Einnig rætt um útselda vinnu hafnarstarfsmanns við mælingar fyrir Siglingastofnun og framkvæmdir á Suðurfjörum. Árni spurðist fyrir um öryggismál vegna bryggju á Austurfjörum. Það mál er ekki ljóst samkvæmt svari bæjarstjóra.
Fundargerð samþykktar.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 74. fundur 18. október ásamt fundargerð Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs sama dag.
Björn Ingi spurðist fyrir um 9 mánaða uppgjör HSSA. Hjalti og Ásta greindu í þessu sambandi frá samskiptum við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti um fjármál HSSA. Árni vakti athygli á 2. lið fundargerðar gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs þar sem rætt var um hugsanlegar breytingar á nafni á minningarkorti og kvittunarblaði Skjólgarðs.
Fundargerðir samþykkar.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 62. fundur 16. október 2006.
Hjalti greindi frá samskiptum við starfsmann Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja og embættismenn í utanríkisráðuneytinu vegna PCB mengunar á Stokksnesi.
Fundargerð samþykkt.
· Haust, fundargerð aðalfundar2006 til kynningar ásamt stofnsamningi og skýrslu stjórnar. Til kynningar.
3. Heppulóð, umsókn Esjars Stefánssonar
Með vísan til umsagnar byggingar- og skipulagsnefndar og menningarmálanefndar hafnar bæjarráð umsókninni.
4. Framtíðarlóð fyrir pylsubarinn
Með vísan til umsagnar byggingar- og skipulagsnefndar hafnar bæjarráð umsókninni.
5. Ósk um kaup á hlutafé
· Bréf Ara Þorsteinssonar f.h. Frumkvöðlaseturs Austurlands., dags. 12. október 2006.
Ósk um kaup á óseldu hlutafé að upphæð kr. 1.942.778.- samþykkt. Aðrir hlutahafar eru hvattir til að bregðast við á sama hátt.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 11. október 2006 um tilraunaverkefnið „Hreyfing fyrir alla“.
Vísað til heilbrigðis- og öldrunarráðs og æskulýðs- og tómstundaráðs.
· SSA, tölvubréf dags. 12. október 2006, upplýsingar frá aðalfundi 2006, ársreikningur 2005 (http://www.ssa.is/upload/ársreikningur%20ssa%202005.pdf), samþykktir fundarins og kosningar í nefndir (http://www.ssa.is/fundagerdir.asp.)..
Til kynningar.
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 12. október 2006 um breytingar á leigusamningi.
Samþykkt.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, bréf dags. 17. október 2006 um ráðstefnuna „Landupplýsingar 2006“.
Til kynningar.
· Landeigendur í Öræfum, bréf dags. 10. október 2006, um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs.
Til kynningar.
· Félagsmálanefnd Alþingis,bréf dagsett 19. október 2006,ósk um umsögn um frumvarp til laga um lögheimili og skipulags- og byggingarlög, 220.mál.
Vísað til starfsmanna.
· Félagsmálanefnd Alþingis,bréf dagsett 19. október 2006, ósk um umsögn um frumvarp til laga um gatnagerðargjald, 219. mál.
Vísað til starfsmanna.
7. Önnur mál
- Bréf frá Guðbrandi Jóhannssyni, dags. 19. október 2006, vegna þeirra skilyrða sem Hornafjarðarflugvöllur þarf að uppfylla til að teljast alþjóðlegur flugvöllur.
Kom fram í máli bæjarstjóra að Hornafjarðarflugvöllur gegni mikilvægu öryggishlutverki vegna nálægðar við flugumferð smærra véla frá Evrópu. Til að geta þjónað millilandaflugi fyrir almenna flugumferð þurfi umtalsverðar endurbætur á flugvellinum samkvæmt reglugerð nr. 361/2005 um flugvernd sem byggir á reglugerð Evrópuþingsins. (Reglugerðin verður send öllum bæjarfullrúum og liggur frammi í afgreiðslu ráðhúss fyrir þá sem vilja kynna sér málið.)
Fundi slitið kl. 14:10


