Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 352
352. fundur
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni R. Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd 70. fundur 11. október 2006.
Bæjarstjóra falið að ræða við landbúnaðarráðuneytið vegna efnistöku í Friðsæld, sbr. 2. lið í fundargerð nefndarinnar. Samþykkt að taka 3. og 4. lið fundargerðar sem sérlið á næsta fundi bæjarráðs. Árni spurðist fyrir um lóð fyrir Íslandspóst. Hjalti greindi frá fyrirhuguðum fundi með forsvarsmönnum fyrirtækisins föstudaginn 20. okt. Samþykkt að taka til frekari meðferðar lönd fyrir frístundabændur.
Fundargerð samþykkt
· Menningarmálanefnd 81. fundur, 11. október 2006.
Hjalti greindi frá því að aðsókn að söfnum sé dræmari í ár en vonir stóðu til. Svipuð og hún var sl. sumar. Rætt um safn Sverris Scheving Thorsteinssonar og lögð áhersla á að niðurstaða fáist í það mál. Bæjarráð óskar eftir umsögn tækni- og umhverfissviðs vegna aðgengismála í söfnum og öryggismál þeirra.
Fundargerð samþykkt
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 737. fundur 27. september 2006. Til kynningar.
Samþykkt að vísa til starfsmanna fræðslu- og félagssviðs að afla upplýsinga um drög skólamálanefndar að stefnumótun sambandsins í skólamálum. Rætt um 11. lið í fundargerðinni þar sem fjallað er um gatnagerðagjöld. Talin ástæða að fylgjast með þessu máli.
· Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga, 20. landsþing 27. september 2006. Til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2007
Lagt fram minnisblað til bæjarráðs, dagsett 17. október 2006, fjárhagsáætlun 2007 - forsendur. Bæjarráð samþykkir forsendur fjárhagsáætlunar 2007 og vísar þeim til bæjarstjórnar. Samþykkt að veita framkvæmdastjóra fjármálasviðs heimild til að breyta 1. drögum að römmum stofnana vegna breytinga á leikskólagjöldum og mötuneytisgjöldum á milli funda bæjarráðs. Einnig samþykkt að breyta launalið hjá grunnskólakennurum vegna lækkunar á kennsluskyldu frá og með 1. ágúst 2007 úr 27 í 26 kennslustundir. Samþykkt að vísa rekstrarrömmum til stofnana eftir ofangreindar breytingar. Samþykkt að hafa 15 millj. króna á launabreytingareikningi. Samþykkt að hafa 5 millj. króna á liðnum óráðstafað. Lagt til að halda vinnufund í bæjarstjórn á undan fyrri umræðu um fjárhagsáætlun 2007. Bæjarstjóra falið að gera tillögu að dagsetningu fundarins.
3. Samningur um tjaldstæði
Lagður fram núgildandi samningur við Þjónustumiðstöð SKG (leigutaki) um rekstur tjaldstæðis. Samþykkt að fela bæjarstjóra að ganga til samninga.
4. Ósk um athugsemdir við umhverfismat samgönguáætlunar 2007-2018
· Samgönguráðuneytið 5. október 2006. Þar sem skýrslan er 66 blaðsíður er þess óskað að þeir sem vilja fá hana útprentaða hafi samband við bæjarskrifstofu.
Bent á að athugasemdir þurfi að berast ráðuneytinu fyrir 20. nóvember. Samþykkt að taka þetta mál aftur fyrir í bæjarráði óski fulltrúar eftir að gera athugasemdir.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Vegagerðin, bréf dags. 20. september 2006, vegna lausagöngu búfjár á Hornafirði.
Upplýst að Einari Þorvarðarsyni umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á Reyðarfirði hefur verið falið að vera samstarfsaðili við sveitarfélagið í þessu máli. Bæjarstjóra falið að hafa samband við Einar Þorvarðarson og koma málinu af stað.
· Viljayfirlýsing sveitarfélaga á Austurlandi um að komu að vaxtarsamningi, undirrituð 6. október 2006 á aðalfundi SSA á Hornafirði.
Rætt um samninginn og næstu skref.
· Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember, Menntamálaráðuneytið og Stofnun Árna Magnússonar, bréf dags. 3. október 2006.
Bréfi vegna dags íslenskrar tungu vísað til skólanefndar, skólanna og Menningarmiðstöðvar.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, tölvubréf dags. 11. október 2006, fundir Verkefnisstjórnar 50+. Til kynningar
Bréfið greinir frá fundarröð verkefnastjórnar til að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði.
· SSA, tölvubréf dags. 11. október 2006, kynningarfundur Skipulagsstofnunar á Höfn 26. október 2006. Til kynningar
Samþykkt að koma erindinu á framfæri við byggingar- og skipulagsnefnd.
6. Önnur mál
- Bréf frá fasteignasölunni Hrauni, dags. 10. október 2006, þar sem óskað er eftir rökstuðningi við höfnun sveitarfélagsins á kaupum á íbúð Vigdísar Ragnarsdóttur. Starfsmönnum falið að svara bréfinu með viðeigandi rökstuðningi. (Árni vék af fundi undir þessum lið.)
- Hjalti greindi frá hugmyndum starfsmanna að breyttu skipulagi á tækni- og umhverfissviði sveitarfélagsins. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram með þessar hugmyndir.
Fundi slitið kl. 18:35


