Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 351
351. fundur
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni R. Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Samþykkt að taka umsókn um framkvæmdaleyfi vegna grjótnáms við Falljökulkvísl fyrir sem 5. lið og liðurinn innsend erindi til kynningar falli út.
1. Fundargerðir
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 61. fundur 28. september 2006.
Í fundargerð er m.a. fjallað um grjótnám við Falljökulkvísl sem tekið verður fyrir sem sérliður (5. liður). Nokkur umræða spannst um rotþrær í sveitarfélaginu og frágang á þeim. Einnig rætt um námur, sbr.1. lið í fundargerð, tilskilin leyfi fyrir efnistöku og hvort námur þessar séu allar á aðalskipulagi. Kostnaði við fjölgun á gámum vegna flokkunar á úrgangi í dreifbýli er vísað til fjárhagsáætlunar 2007. Vinnu við skjólgirðingu og skjólbeltarækt á urðunarsvæði í Lóni er vísað til fjárhagsáætlunar 2007. Starfsmönnum jafnframt falið að gera nú þegar tilraun með færanlega girðingu til að hefta fok á urðunarsvæði.
Fundargerð samþykkt
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjaraðar 82. fundur 28. september 2006.
Minniháttar endurbótum, sbr. fundargerð, er vísað til starfsmanna en að öðru leyti er endurbótum á íþróttamannvirkjum vísað til fjárhagsáætlunar 2007.
Fundargerð samþykkt
· Stýrihópur við gerð skólastefnu, 2. fundur 21. september og 3. fundur 2. október 2006.
Rætt um samráðsvettvang um stjórnunarþátt grunnskólanna, sbr. fundargerð. Björn Ingi spurði hvort ekki væri verið að koma upp of fjölmennum hópi til að fjalla um þessi mál en sagði jafnframt samráð vera mikilvægt. Árni lagði áherslu á að samráðsvettvangur væri nauðsynlegur til að fara yfir þessi mál, einn fulltrúi kæmi frá hverjum skólanna þriggja auk eins fulltrúa frá foreldrum til að fara yfir stjórnunarþáttinn með stýrihópnum.
Fundargerðir samþykktar
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 64. fundur 27. september 2006.
Til kynningar
2. Fjárhagsáætlun 2007 - gögn send í tölvupósti
Farið yfir álagningarreglur fasteigna, þjónustugjöld og gjaldskrár, sbr. yfirlitsblað 10.10 2006. Einnig lagt fram minnisblað dags. 10. okt. 2006 um forsendur tekna og gjalda. Starfsmönnum falið að vinna samkvæmt fram lögðum gögnum við fjárhagsáætlunargerðina.
3. 110 ára afmæli Hafnar
Vísað til menningarmálanefndar.
4. Beiðni um að taka spildu út úr jörðinni Borgarhöfn, Lækjarhús, í sveitarfélaginu Hornafirði.
· Bréf Sigríðar Kristinsdóttur hjá Regula lögmannsstofu, dags. 12. september 2006.
Bæjarráð samþykkir þessa beiðni fyrir sitt leyti.
5. Framkvæmdaleyfi vegna grjótnáms við Falljökulkvísl
Um er að ræða land (Sandfell) í eigu landbúnaðarráðuneytisins sem samþykkir að veita leyfi til grjótnáms á umbeðnu svæði, sbr. bréf dagsett 4.október 2006, ef tilskilin leyfi fást. Helgi lagði áherslu á að leyfi til grjótnáms verði veitt þar sem nauðsynlegt sé að verja land á þessu svæði fyrir ágangi vatna. Nauðsynlegt sé að vinna þarna á meðan lítið sé í ánum. Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi til grjótnáms við Falljökulkvísl að því gefnu að jarðrask verði sem minnst.
6. Önnur mál
- Hjalti gerði grein fyrir tillögum að dagsetningum funda í október, nóvember og desember. Samþykkt að næsti bæjarstjórnarfundur verði þriðjudaginn 7. nóvember og bæjarráð fundi næst 17. október kl. 16:00.
- Samþykkt að auglýsa húseign sveitarfélagsins Austurbraut 10 til sölu.
- Rætt um nýtingu á grasi á Sindravöllum og öðru jarðefni sem til fellur vegna fyrirhugaðra framkvæmda á íþróttasvæðinu. Nokkrar hugmyndir ræddar um nýtingu á þessu efni. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að þessu máli.
- Rædd hugmynd um flutningsstyrki til fyrirtækja sem flytja vilja starfsemi sína hingað í sveitarfélagið. Bæjarráð er jákvætt fyrir því að skoða þetta en slíkt verði þó ekki gert án skilyrða.
- Hjalti greindi frá stöðu mála vegna starfsmannahalds á tækni- og umhverfissviði sveitarfélagsins. Einnig fór hann yfir hugmyndir að breyttu skipulagi á sviðinu. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna að útfærslum.
- Samþykkt að bæjarstjóri óski eftir viðræðum við utanríkisráðuneyti og forsætisráðuneyti um málefni Ratsjárstofnunar annars vegar og aðgerða vegna mengunar á Stokksnesi hins vegar.
Fundi slitið kl. 12:20


