Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 350
350. fundur
Mætt: Árni R. Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Árni setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 151. fundur 26. september 2006.
Rætt um samskipti félagsmálaráðs við Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Fundargerð samþykkt
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 20. september 2006.
Rætt um halla á rekstri stofnunarinnar sem lítur út fyrir að verða mun minni en gert var ráð fyrir á tímabili. Rætt um væntanlegan fund sem verður á morgun (4. okt.) í heilbrigðisráðuneytinu þar sem farið verður yfir þjónustusamninginn og næstu skref í viðræðum aðila um framlengingu á samningnum. Elín og Árni greindu frá umræðum á landsþingi Sambands ísl. sveitarfélaga um þjónustusamninga um þennan málaflokk og stöðu sveitarfélaganna í þeim efnum. Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við Félag íslenskra heimilislækna og fyrirhuguðum fundi með formanni félagsins. Einnig rætt um stöðu og útlit í læknamálum.
Fundargerð samþykkt
· Nefnd um íþróttamannvirki, 21. fundur 18. júlí 2006, 22. fundur 7. september 2006 og 23. fundur 14. september 2006.
Rætt var um orð Flosa Sigurðssonar, verkfræðings hjá VST, sem sagði á fundi nefndarinnar að það styttist mjög í það að ekki verði hægt að synda í kerinu á landsmóti að ári. Einnig sagði hann lágmarkstíma fyrir sig á púðanum (farg) vera fjóra mánuði og æskilegur tími um eitt ár. Hjalti sagðist ekki vilja útiloka það að synt verði í kerinu á landsmóti 2007. Björn Ingi sagði það enn vera markmiðið að synt verði í kerinu á landsmótinu. Tók hann undir þau orð að það mætti ekki verða til að auka kostnað við framkvæmdina.
Fundargerðir samþykktar.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2006 – gögn sér
Lögð fram endurskoðuð fjárhagsáætlun. Eftir síðasta fund bæjarráðs barst tilkynning frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um 13,1 m.kr. aukningu á framlögum sjóðsins (tekjujöfnunarframlag og framlag vegna fasteignaskatts). Skatttekjur sveitarfélagsins og niðurstaða rekstrarreiknings A-sjóðs batna sem því nemur. Skatttekjur ársins 2006 eftir endurskoðun eru því áætlaðar kr. 884.470.000.-
3. Fjárhagsáætlun 2007
Talsverð umræða fór fram um drög að forsendum fjárhagsáætlunar. Einnig rætt um fyrstu drög að fjárhagsáætlun 2007 miðað við fram lagðar forsendur. Einnig voru lögð fram drög að fjárhagsáætlun aðalsjóðs frá 2007-2015.
4. Greinargerð um þjóðgarðsmál – gögn sér
Halldóra Bergljót Jónsdóttir, fulltrúi sveitarfélagsins í ráðgjafarnefnd um Vatnajökulsþjóðgarð, var í síma undir þessum lið. Kom fram að nefndin ljúki störfum í þessum mánuði og síðasti fundur nefndarinnar verði haldinn á Hornafirði. Umræður spruttu um stjórnskipulag þjóðgarðsins, uppbyggingu á þjónustuneti, göngustígum og göngubrúm og samgöngum að þjóðgarði. Fram hafa komið þrjár hugmyndir frá umhverfisráðuneytinu um stjórnarfyrirkomulag Vatnajökulsþjóðgarðs sem eru þessar:1. Vatnajökulsþjóðgarður er ríkisstofnun undir yfirstjórn umhverfisráðherra, 2. Yfirstjórn – byggðasamlög, 3. Umhverfistofnun – byggðasamlög. Bæjarráð sammála því að með ákveðinni útfærslu sé leið 2. besti kosturinn. Samþykkt að stefna að vinnufundi bæjarstjórnar um þetta mál. Bæjarráð samþykkir framlagða greinargerð með áorðnum breytingum. Samþykkt að senda frá sér kaflann um forgangsröðun framkvæmda til umhverfisráðuneytisins.
5. Framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í landi Horns
· Svarbréf Umhverfisstofnunar og Haust
Samþykkt að óskað verði eftir umsögn frá Skipulagsstofnun.
6. Kosning fulltrúa sveitarfélagsins í ráðgjafarnefnd um Skaftafellsþjóðgarð
Meirihluti bæjarráðs samþykkir að Guðrún Ingimundardóttir verða aðalfulltrúi í stað Halldóru B. Jónsdóttur. Björn Ingi benti á að ekki hafi borist erindi um útskiptingu á fulltrúa sveitarfélagsins í ráðgjafarnefndinni þó hann segist skilja afstöðu meirihlutans. Þá telur hann óæskilegt hve aðilar tengdir ferðaþjónustunni í sveitarfélaginu hafi þarna mikil ítök. Hjalti sagði að í grunninn væri það þannig að sveitarfélagið skipi fulltrúa í nefndina en ekki umhverfisráðuneytið. Árni telur ekkert athugavert við þessa málsmeðferð meirihlutans.
7. Ósk um framtíðarlóð fyrir pylsubarinn
· Bréf LJA og HK dags. 21.september 2006.
Samþykkt að vísa erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar.
8. Ósk um staðfestingu á lóð fyrir reykköfunargám
· Borgþór Freysteinsson eldvarnaeftirlitsmaður, bréf dags. 21. september 2006.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að staðsetningu reykköfunargáms á hjallasvæði við Fjárhúsavík. Erindinu vísað til umræðu í byggingar- og skipulagsnefnd.
9. Ósk um umsögn bæjarráðs á brunavarnaáætlun sveitarfélagsins
· Borgþór Freysteinsson eldvarnaeftirlitsmaður, bréf dags. 25. september 2006, skýrslan hefur verið send út í tölvupósti til allra aðalmanna í bæjarstjórn.
Borgþór Freysteinsson og Steinþór Hafsteinsson komu á fundinn og gerðu grein fyrir skýrslunni. Fram kemur að brunavarnir og eldvarnaeftirlit eru í góðu horfi í sveitarfélaginu en huga þurfi betur að mengunarvörnum. Jafnframt kemur fram að töluverðar endurbætur þurfa að verða á bifreiðum slökkviliðs á næstu árum. Samþykkt að vísa skýrslunni til bæjarstjórnar.
10. Málefni Þórbergsseturs
Bæjarráð tekur undir að Þórbergssetri beri að fá sambærilegar fjárveitingar frá ríkinu og hin tvö rithöfundasetrin á landinu, Gljúfrasteinn og Skriðuklaustur.
Vísað til menningarmálanefndar.
11. Innsend erindi og til kynningar
· Samband ísl. Sveitarfélaga, bréf dags 20. september 2006, niðurstaða gerðadóms um kostnaðarskiptingu stofnkostnaðar sjúkrastofnana.
Vísað til heilbrigðis- og öldrunarráðs.
· Landskerfi bókasafna hf., tölvubréf dags. 25. september 2006, framkvæmdastjóraskipti.
Vísað til menningarmálanefndar.
· SSA, árgjöld sveitarfélaga á Austurlandi til SSA 2006.
Til kynningar
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 22. september 2006, um reglur um ráðstöfun aukaframlags úr Jöfnunarsjóði vegna íbúafækkunar.
Til kynningar
12. Önnur mál
· Lögð fram drög að samningi um fernusöfnun milli sveitarfélagsins og UMF Sindra. Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn.
· Lögð fram drög að samningi um ruslatínslu á milli sveitarfélagsins og UMF Sindra. Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn. Undir þessum tveimur liðum var rætt um að æskilegt væri að staðsetja gáma eða annað til að taka við umbúðum frá þeim sem vilja losa sig sjálfir við umbúðirnar. Greiðslan fyrir umbúðirnar rynni eftir sem áður til Umf. Sindra.


