Bæjarráð
Fundargerð bæjarráð 349
349. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 25. september 2006 kl. 16:00.
Mætt: Árni R. Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.
Árni setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 26. fundur 18. september 2006.
Hjalti greindi frá umræðum um lífræna framleiðslu og alþjóðlega þróun í þá átt. Þessu þurfi menn að fylgja eftir í okkar sveitarfélagi. Einnig greindi hann frá umræðum um rannsókna- og þróunarsjóð. Bæjarráð samþykkir að vísa til fjárhagsáætlunargerðar 2007 ákvörðun um framlög til kynningar á samfélaginu, sbr. 5. lið á dagskrá atvinnumálanefndar. Undir 7. lið, önnur mál, er rætt um ?möguleika á fjölgun opinberra starfa í samvinnu við ríkið?. Bæjarráð tekur undir þessa bókun atvinnumálanefndar, samþykkir að fela starfsmönnum að fara yfir þetta mál og undirbúa fyrir frekari umræðu. Einnig bent á að framboðin ræði þessi mál við viðkomandi þingmenn.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 84. fundur 18. september 2006.
Rætt um dælingu og stöðu þess máls. Tilraunadælingu er ekki lokið og ekki verið skrifað undir samning. Björn Ingi spurðist fyrir um losun efnis í Mikleyjarál, nýtingu á rörum hafnarinnar og vinnuframlag hafnarstarfsmanna vegna dælingar. Fram komi í svari Helga að þessari losun í Mikleyjarál, sem aðeins var framkvæmd á útfalli, hafi verið hætt en annað í fyrirspurn Björns Inga er í vinnslu hafnarstarfsmanna. Hvað varðar fyrirspurn Páls Guðmundssonar undir liðnum önnur mál í fundargerð er upplýst að til þess að hægt verði að landa hér afla úr aðkomubátum þurfi að koma á fót löndunargengi sem tæki slík verkefni að sér. Rætt hefur verið við aðila um mögulega lausn. Helgi kynnti bréf Sveins Sighvatssonar, dagsett 5. apríl 2006, þar sem gerð er grein fyrir breyttum forsendum vegna framkvæmda við Bátstangabryggju.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 20. september 2006
Fundargerð fylgdi ekki útsendum gögnum og því samþykkt að hún verði tekin af dagskrá þessa fundar.
· Skólanefnd Hornafjarðar 85. fundur 19. september 2006.
Greint frá viðræðum við þann verktaka sem sér um mötuneyti fyrir Hafnarskóla og Heppuskóla. Fram kom hjá honum að samningur til lengri tíma, t.d. fimm ára, gæti skipt hann miklu máli og hann þannig lagað rekstur sinn að breyttum aðstæðum. Elín taldi ekki tímabært að gera slíkan samning núna og tók undir það að slíkt verði að gera á grundvelli útboðs. Árni var þessu sammála. Einnig rætt um OECD skýrsluna og hvort hún geti nýst fyrir okkar skólasamfélag.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 9. september 2006
Árni spurðist fyrir um söfnun á fernum. Því svarað að það mál sé í vinnslu og stefnt að samningi við umf. Sindra sem tæki þá að sér þessa söfnun samkv. ákv. greiðslum. Kynntar hugmyndir um jarðgerðarvél. Starfsmenn munu leita nánari upplýsinga um það mál, ræða við fyrirtæki á staðnum sem skila mestum lífrænum úrgangi á urðunarsvæðið í Lóni og í framhaldi af því verði tekin ákvörðun um næstu skref. Einnig rætt um urðunarsvæði í Lóni og umgengni um það.
Fundargerð samþykkt.
2. Vaxtarsamningur
Elín gerði grein fyrir stöðu málsins og hvatti til þess að sveitarfélagið taki þátt í vaxtarsamningnum en um leið að við gætum þess að huga að okkar hlut. Einnig var greint frá því að stefnt sé að undirritun viljayfirlýsingar um vaxtarsamninginn á fundi SSA sem haldinn verður á Höfn í lok næstu viku. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirrita þá viljayfirlýsingu en að öðru leyti verði málinu vísað til fjárhagsáætlunar.
3. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2006
Ásta fór yfir stöðuna og greindi frá helstu breytingum frá upphaflegri fjárhagsáætlun 2006. Bæjarráð samþykkir 2,5 m.kr. aukaframlag til Jöklasýningar. Skv. því og framlögðu minnisblaði, dags. 21. sept. 2006, skilar samstæðureikningur 9,3 m.kr. betri afkomu en fyrri áætlun gerði ráð fyrir. Áætlaðar skatttekjur hækka um 7,4%. Um 4/5 þeirrar hækkunar stafar af hærri greiðslum úr Jöfnunarsjóði. Einnig kom fram að sjóðurinn stendur undir um 30% af heildarskatttekjum sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir að fjárveiting til framkvæmda verði skipt eftir verkefnum skv. minnisblaði 25. sept. 2006. Bæjarráð samþykkir framlagt minnisblað, dags. 21. sept. 2006, með áorðnum breytingum og vísar endurskoðun á fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar.
4. Deiliskipulag - Fjárhúsavík
Engar athugasemdir komu fram við auglýsingarferlið. Helgi fór yfir umsagnir Heilbrigðiseftirlits Austurlands, Umhverfisstofnunar og Fornleifanefndar. Samþykkt að vísa deiliskipulaginu til bæjarstjórnar.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Haust - , bréf dags 15. september 2006, aðalfundarboð.
Samþykkt að Björn Emil Traustason verði fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundi og til vara verði Guðrún Ingimundardóttir.
· SSA, tölvupóstur, dags. 21. sept. 2006, varðandi aðalfund.
Samkv. útsendum gögnum á sveitarfélagið rétt á 7 fulltrúum á aðalfund SSA.
6. Önnur mál
- Kynnt bréf Sigurðar Guðmundssonar, dags. 22. október 2006 þar sem hann býður sveitarfélaginu að kaupa 6 myndir eftir Bjarna Henriksson. Samþykkt að vísa erindinu til menningarmálanefndar. Einnig samþykkt að erindinu verði svarað í samræmi þessa afgreiðslu.
- Greint frá samkomulagi við Ingólf Einarsson, eiganda Kaffihornsins. Samkomulagið felur í sér að nemendur Heppuskóla geta keypt aukaskammta af hádegisverði á kr. 300 pr./skammt, staðgreitt. Einnig greint frá fyrirkomulagi hádegisverðar og því nýmæli að bjóða upp á ávaxtabita/grænmetisbita eftir aðalmáltíð.
- Greint frá erindi Skaftárhrepps þar sem þess er óskað að sveitarfélagið greiði fyrir sérkennslu vegna nemanda sem þar stundar nám. Nokkrar umræður sköpuðust um greiðslur með nemendum sem stunda nám utan lögheimilissveitarfélags. Björn Ingi lagði áherslu á að ná þurfi samkomulagi um skólamálin á milli þessara tveggja sveitarfélaga áður en þau verði endanlega gerð upp. Samþykkt að vísa til skólaskrifstofu sem afgreiði málið í samræmi við umræður á fundinum.
- Hjalti greindi frá bréfi Sigrúnar Kapitólu Guðrúnardóttur vegna fyrirspurnar um áframhaldandi leigu á tjaldmiðstöð. Starfsmönnum falið að ræða við viðkomandi.
Fundi slitið kl. 18:40


