Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 348
348. fundur
Mætt: Árni R. Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.
Árni setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 69. fundur 13. september.
Í 3. lið fundargerðar er fjallað um leigu á löndum og samninga um leigu. Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að fara yfir samninga um leigu á löndum í eigu sveitarfélagsins. Þeim verði og falið að koma með tillögur um endurúthlutun, leiguverð o. fl. þætti sem málið varða.
Rætt um “gestahús” o. fl. hús sem reist eru á lóðum í bænum og hvort ekki þurfi að sækja um leyfi fyrir slík hús, sbr. fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar.
Í framhaldi af umfjöllun byggingar- og skipulagsnefndar samþykkir bæjarráð að taka fyrir sem sérlið á fundi bæjarráðs beiðni Vegagerðarinnar um efnistöku í Falljökulskvísl.
Fundargerð samþykkt
Félagsmálaráð Hornafjarðar 149.fundur 12. september 2006.
Undir þessum lið kom Maren Sveinbjörnsdóttir inn á fundinn og gerði grein fyrir starfsemi málefna fatlaðra og hvernig það starf samtvinnast annarri starfsemi félagsþjónustunnar. Einnig rætt um þjónustusamning við félagsmálaráðuneytið vegna þessa málaflokks.
Fundargerð samþykkt.
Menningarmálanefnd Hornafjarðar 80. fundur 13. september 2006.
Fundargerð samþykkt.
Stýrihópur við gerð skólastefnu 1. fundur 8. september 2006.
Árni greindi frá þeirri vinnu sem hafin er og næstu skrefum. Nefndin hefur ekki enn sett sér endanleg tímamörk um hvenær hennar vinnu verði lokið. Elín lagði áherslu á að þessi vinna verði sameiginlegt verk allrar bæjarstjórnarinnar. Björn Ingi sagðist vilja skoða sem langtímaplan að setja upp eina stjórn fyrir leikskóla og þá hvort það geti verið fjárhagslega hagkvæmt. Hann sagðist þó alls ekki leggja til að fólki verði sagt upp til að hagræða. Mikilvægt sé þó að kanna hagræðingarmöguleika ef aðstæður til breytinga koma upp. Elín lagði áherslu á að leikskólunum verði nú tryggður friður til að sinna innra starfinu. Einnig rætt um hvort stjórnunarþátturinn eigi að vera inni í skólastefnunni eða ekki. Árni tók undir orð Elínar.
Fundargerð samþykkt.
2. Húsvarsla á Hrollaugsstöðum
Bæjarráð samþykkir að auglýsa stöðu húsvarðar í Hrollaugsstöðum. Um er að ræða 25% starf. Framkvæmdastjórum falið að ganga frá starfslýsingu.
3. Innsend erindi og til kynningar
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, bréf dags. 6. september 2006, vaxtarsamningur fyrir Austurland.
http://www.idnadarraduneyti.is/media/Rafraen_afgreidsla/austurlandLowRes.pdf.
Vísað til atvinnumálanefndar.
4. Önnur mál
- Samþykkt að næsti fundur bæjarráðs verði kl. 16:00 mánudaginn 25. sept.
Fundi slitið kl. 11:24


