Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 215
215. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn. 19. júní 2003, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Halldóra B. Jónsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Inga Jóna Halldórsdóttir, Valur Sveinsson og Ólafía Gísladóttir sem ritaði fundargerð.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Aldursforseti bæjarráðs setti fund og í framhaldi af kosningum á síðasta bæjarstjórnarfundi bar hún fram tillögu um Halldóru B Jónsdóttur sem formann bæjarráðs og Elínu Magnúsdóttur sem varaformann. Samþykkt..
1. Fundargerðir
Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar. fundur 12. júní 2003.
Liður 1 – lóð fyrir olíubirgðageymslu.
Lögð er áhersla á að formleg lóðarumsókn verði lögð fram til afgreiðslu í bæjarráði.
Fundargerð samþykkt.
Félagsmálaráð Hornafjarðar 94. fundur 10. júní 2003.
Fundargerð samþykkt.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 47. fundur 11. júní 2003.
Fundargerð samþykkt.
Umhverfisnefnd Hornafjarðar 37. fundur 11. júní 2003.
Liður 1 – drög að náttúruverndaráætlun.
Bæjarráð tekur undir bókun nefndarinnar um skamman tíma til umsagnar og að ekki hafi verið haft samráð við hagsmunaaðila. Bæjarráð hvetur einnig til að lokatillagan verði send út til umsagnar og að Umhverfisstofnun kynni bæjarstjórn Hornafjarðar og öðrum hagsmunaaðilum á svæðinu náttúruverndaráætlunina á opnum fundi, áður en henni verður vísað til þingsályktunar í haust.
Liður 3 – vegabætur/varnargarðar á Kollumúlavegi í Lóni
Bæjarráð veitir framkvæmdaleyfið með þeim skilyrðum um efnistöku sem fram koma í umsögn Einars Þórarinssonar eftirlitsráðgjafa Umhverfisstofnunar á Austurlandi.
Fundargerð samþykkt.
Starfshópur um stofnun Jöklaseturs á Hornafirði 8. fundur 6. júní 2003.
Fundargerð samþykkt.
Ritnefnd Skaftfellings 8. fundur 6. júní 2003 til kynningar.
Fundargerð samþykkt.
2. Umsóknir um endurnýjun vínveitingaleyfa
Helga Erlendsdóttir v. Árnanes/Þorpið ums. dags. 19. febrúar 2003.
Einar Björn Einarsson v. Jökulsárlóns ums. dags. 7. apríl 2003.
Sigurbjörn Karlsson v. Smyrlabjörg, ums. dags. 2. júní 2003.
Bæjarráð samþykkir endurnýjun vínveitingaleyfa fyrir ofangreinda staði.
3. Umsókn um tækifærisvínveitingaleyfi
• Björn Ingi Jónsson f.h. Humarhátíðarnefndar,ums. dags. 31. júní 2003.
Bæjarráð veitir leyfið að því tilskyldu að fullnægjandi salernisaðstaða sé til staðar. Leyfið gildir fyrir föstudagskvöldið 4. júlí frá kl. 18:00 - til 03:00 og laugardagskvöld, 5. júlí frá kl. 18:00 - til 04:00.
4. Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis
• Sýslumaðurinn á Höfn vegna Guðveigar Bjarnadóttur, Bölta, bréf dags.10. júní 2003.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun rekstrarleyfis til Guðveigar Bjarnadóttur á Bölta.
5. Ósk um umsögn á útgáfu reksturs veitingastofu/greiðasölu
• Sýslumaðurinn á Höfn vegna Olíufélagsins, Hraðbúð Essó í Nesjum, bréf dags.4 júní 2003.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis tilreksturs veitingastofu/greiðasölu í Hraðbúð Esso í Nesjum.
6. Ósk um yfirtöku afnotaréttar á lóð Skyndi-Bitans ehf.
• Hraun v. Matargatsins ehf., bréf dags. 10. júní 2003.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við yfirtöku afnotaréttarins en tæknideild falið að skoða lóðarleigusamninginn með tilliti til tímamarka.
7. Óskir um styrki
Bókaútgáfan Hólar, bréf dags. 23. maí 2003.
Bæjarráð telur ekki unnt að verða við styrkbeiðninni.
Hið íslenska biblíufélag, bréf dags. 2. júní 2003.
Bæjarráð telur ekki unnt að verða við styrkbeiðninni.
8. Innsend erindi og til kynningar
Framkvæmdasjóður fatlaðra – aðalúthlutun 2003.
Til kynningar.
Afrit af bréfi landgræðslustjóra til landbúnaðarráðuneytisins um framlag vegna fyrirhleðslna
á Suður – og Suðausturlandi, bréf dags. 10. júní 2003.
Bæjarráð Hornafjarðar tekur undir varnaðarorð landgræðslustjóra varðandi brýnar aðgerðir í fyrirhleðslumálum í sýslunni einkum við Jökulsá í Lóni þar sem veltur á dögum eða vikum um framkvæmdir.
Félagsmálaráðuneytið,v/ ársreikninga sveitarfélaga, bréf dags. 10. júní 2003.
Fram kom að ársreikningur sveitarfélagsins hefur verið sendur ráðuneytinu.
Úrvinnslusjóður – skilagjald á ökutækjum, bréf dags. 10. júní 2003.
Til kynningar.
Umboðsmaður barna – Skýrsla um málþingið: Skundum á Þingvöll, bréf dags. 10. júní 2003.
Til kynningar.
9. Önnur mál
Breyting á deiliskipulagi á Kirkjubraut 9
Valur kynnti breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar Kirkjubraut 9.
Bæjarráð samþykkir að grenndarkynna fram lagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar.
Störf í tengslum við svæðisvinnumiðlun
Inga Jóna fór yfir kostnað sveitarfélagsins við sérstök verkefni á vegum svæðisvinnumiðlunar Austurlands sem stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs samþykkti. Verði ráðið í öll störf sem samþykkt voru mun kostnaður sveitarfélagsins verða á bilinu 2 – 2,5 milljónir.
Afsal forkaupsréttar á Sæmundi SF 85
Bæjarráð asalar sér forkaupsrétti að fiskiskipinu Sæmundi SF 85.
Reynir talaði um skurði frá Hafnarbraut í leirusvæði sem skapaði hættu og væri til óprýði. Tæknideild falið að skoða málið fyrir næsta ár með það í huga að loka skurðinum.
Rætt var um umgengni á lóðum og tæknideildinni falið að hafa samband við þá aðila sem ekki hafa staðið sig í umgengismálum.
Fundi slitið kl. 11:55


