Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 347
347. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 12. september 2006 kl. 10:00
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni R. Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson, Björg Erlingsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
- Heilbrigðisnefnd Austurlands 63. fundur 31. ágúst 2006.
Til kynningar
2. Innsend erindi og til kynningar
- Landbúnaðarráðuneytið, bréf dags. 28. ágúst 2006, um skýrslu Votlendisnefndar.
Vísað til atvinnumálanefndar og umhverfisnefndar
- Þorbjörg Arnórsdóttir f.h. Þórbergsseturs, tölvubréf dags. 3. september 2006, um hátíðarþing í Þórbergssetri.
Vísað til menningarmálanefndar
- Samband íslenskra sveitarfélaga, tölvubréf dags 4. september 2006, um opnun skrifstofu sambandsins í Brussel.
Til kynningar.
- Starfshópur um lífræna byggðaþróun, bréf dags. 4. september 2006, um skýrslu um lífræna framleiðslu, stöðu hennar og þýðingu fyrir byggðaþróun og atvinnulíf á Íslandi.
Vísað til atvinnumálanefndar
- Samband íslenskra sveitarfélaga, Svandís Ingimundardóttir þróunar og skólafulltrúi, tölvubréf dags. 5. september 2006, um verkefnið Okkara lív sum eldri.
Vísað til þjónustuhóps aldraðra
- Fjárlaganefnd Alþingis, bréf dags. 5. september 2006, um fundi með sveitarstjórnarmönnum.
Til kynningar.
- Tómas Gunnarsson lögfræðingur, bréf dags. 8. september 2006, athugasemdir frá Grími Björnssyni um Kárahnjúkavirkjun, dags. 14. febrúar 2002.
Til kynningar.
3. Önnur mál
- Björg Erlingsdóttir, nýráðinn forstöðumaður Menningarmiðstöðvar, boðin velkomin til starfa.
- Gerð grein fyrir samskiptum við félagsmálaráðuneytið vegna málefna fatlaðra, sbr. bréf dagsett 6. september 2006. Bæjarráð sammála því að halda áfram viðræðum við félagsmálaráðuneytið á þeim forsendum sem voru kynntar.
- Gerð grein fyrir svörum skólastjórnenda vegna fyrirspurnar Björns Inga Jónssonar á 346. fundi bæjarráðs.
- Eftirtalin voru kosin varamenn í stýrihóp vegna skólastefnu: Lilja Hrund Harðardóttir frá B-lista, Anna María Ríkharðsdóttir frá S-lista og Björn Ingi Jónsson frá D-lista. Nokkrar umræður spunnust um þau atriði sem til umræðu eiga að vera í stýrihópnum, svo sem stjórnunarþátt leik- og grunnskóla, fagleg störf í skólum o.fl.
- Kynnt að Össur Imsland, starfsmaður á tækni- og umhverfissviði hafi sagt upp störfum frá og með 15. september. Bæjarstjóra falið að auglýsa fyrst starf framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs áður en aðrar stöður verða auglýstar á sviðinu.
- Að loknum hefðbundnum fundarstörfum var haldið í skoðunarferð í Sælgætisgerðina Freyju við Víkurbraut.
Fundi slitið kl. 10:47


