Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 345
345. fundur
Fundur haldinn í bæjarráð Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 29. ágúst 2006 kl. 10:00
Mætt: Elín Magnúsdóttir, Árni R. Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.
Árni setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 25. fundur 21. ágúst 2006.
Undir þessum lið var greint frá því að starfsmenn Vinnumálastofnunar komi til viðræðna við starfsmenn sveitarfélagsins miðvikudaginn 30. ágúst.
Hjalti fór yfir umræður í nefndinni um hlutverk atvinnumálanefndar í þróun atvinnulífs. Nefndin leggur áherslu á að hennar hlutverk snúi fyrst og fremst að atriðum eins og rannsóknum og þróun, menntun o.fl. þáttum sem eru hluti af grunngerð samfélagsins
Rætt var um fjallskil og lagt til að þau verði tekin til endurskoðunar í vetur. Of skammur tími sé til að fara í þá vinnu fyrir haustið.
Fundargerð samþykkt
Félagsmálaráð Hornafjarðar 149. fundur 22. ágúst 2006.
Starfsmaður nefndarinnar hefur verið í sambandi við Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna. Ekki ljóst um komu starfsmanna hennar hingað.
Fundargerð samþykkt
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 83. fundur 22. ágúst 2006.
Rætt um dýpkun innan hafnarinnar, losun á uppdældu efni úr höfninni, hvar sé best að koma því fyrir, og framgang við dælingu. Ræddar tafir á framkvæmdum við Bátstangabryggju. Ýmislegt hefur tafið að verktaki hafi getað sinnt sinni vinnu. Ekki er komið að því að beita dagsektum. Upplýst að greiðslur til verktaka eru eftir framvindu verksins.
Björn Ingi benti á að rætt hafi verið um að björgunarskipinu Ingibjörgu hafi verið ætlaður staður innst í höfninni. Helgi sagði það enn vera á dagskrá og unnið að því.
Fundargerð samþykkt
2. Skipun í stýrihóp vegna vinnu við skólastefnu
Bæjarráð samþykkir að eftirtaldir skipi stýrihópinn: Elín Magnúsdóttir formaður stýrihóps, Árni Þorvaldsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Hópurinn verði kallaður saman sem fyrst. Rætt um tímamörk o.fl. atriði sem snúa að starfi stýrihópsins. Hópnum falið að koma með tillögur. Björn Ingi lagði áherslu á að vinnu stýrihópsins ljúki fyrir næstu áramót.
3. Innsend erindi og til kynningar
· Hafnasamband sveitarfélaga, bréf dags.15. ágúst 2006, tilkynning um hafnasambandsþing.
· Hafnasamband sveitarfélaga, bréf dags.15. ágúst 2006, boð til bæjarstjórnar að sitja hafnasambandsþing á Höfn 12. og 13. október n.k..
· Reykjavíkurborg - menntasvið, bréf dags. 15. ágúst 2006, samþykkir beiðnar um námsvist utan lögheimilissveitarfélags.
Vísað til framkvstj. fræðslu- og félagssviðs.
· Jafnréttisstofa, bréf dags. 17. ágúst 2006, um jafnréttisnefndir sveitarfélaga.
Málinu vísað til félagsmálaráðs.
4. Önnur mál
Greint frá umsókn nemanda með lögheimili utan sveitarfélagsins í Tónskóla A-Skaft. Bæjarráð samþykkir að fyrir þurfi að liggja samþykkt lögheimilissveitarfélags umsækjanda um greiðslu á hlut sveitarfélagsins í námskostnaði, sbr. útreikninga skólastjóra Tónskóla A-Skaft. þann 28. ágúst 2006, áður en heimild verður veitt til að innrita nemandann.
Stefán afhenti yfirlit yfir skiptingu skólatíma leikskólabarna og fjölda barna þann 25. ágúst 2006, sbr. fyrirspurn Björns Inga Jónssonar á 344. fundi bæjarráðs. Undir þessum lið var einnig rætt um innra starf leikskólanna og fjölda menntaðra leikskólakennara. Árni lagði til að bæjarráð færi saman í heimsókn í leikskólana á næstunni. Var það samþykkt.
Rætt um hugsanlega sölu á fasteignum í eigu sveitarfélagsins. Starfsmönnum falið að kanna möguleika á því og vinna tillögur þar að lútandi. Inn í þessa umræðu blandaðist einnig umræða um leigukjör á eignum sveitarfélagsins sem leigðar eru til ýmissa mannfagnaða o.fl.
Fundi slitið kl. 11:20


