Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 344
344. fundur
Fundur haldinn í bæjarráð Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 22. ágúst 2006 kl. 10:00
Mættir: Reynir Arnarson formaður, Árni R. Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Bæjarráð Hornafjarðar 343. fundur 15. ágúst til samþykktar Fundargerð samþykkt eftir athugasemdir og breytingar sem gerðar hafa verið.
· Skólanefnd Hornafjarðar 84. fundur 16. ágúst 2006.
Björn Ingi spurðist fyrir umhugsanlegt miðakerfi hjá Kaffihorninu fyrir þá sem vilja fá viðbótarskammt í hádegisverði. Stefán greindi frá samtölum sínum við Ingólf G. Einarsson um þessi mál og að ekki liggi fyrir nein niðurstaða um hvort af slíku miðakerfi verði. Björn Ingi óskaði eftir frekari upplýsingum um skiptingu á leikskólum, þ.e. hversu mörg börn eru fyrir og eftir hádegi og aldur barnanna. Einnig veittar upplýsingar um breytingar á nemendafjölda í leik- og grunnskólum. Björn Ingi gerði að umtalsefni vinnu við skólastefnu og stöðu þeirra mála. Reynir fór einnig yfir þessi mál og næstu skref. Bæjarráð samþykkir að byggt verði á þeirri vinnu við skólastefnu sem þegar er lokið og að fulltrúar í stýrihópi verði þrír í stað fimm áður, þ.e. einn frá hverju framboði. Skipað verði í stýrihópinn á næsta fundi bæjarráðs. Fundargerð samþykkt
2. Minnispunktar frá ferð HÞV til Reykjavíkur
Bæjarstjóri fór yfir helstu atriði minnisblaðsins sem eru fundur með starfsmanni OneSystem um skjalavistun og rafræn fundarboð.
Fundur með Helga Björnssyni jöklafræðingi þar sem rædd var hugmynd um alþjóðlega ráðstefnu um jöklabreytingar sem haldin yrði á Höfn á næsta ári.
Fundur með fulltrúum Lánasjóðs sveitarfélag þar sem meðal annars var ræddur lántökukostnaður, þær breytingar sem orðið hafa og verða væntanlega í náinni framtíð.
Fundur með fulltrúum Hafnasambands sveitarfélaga vegna Hafnasambandsþings á Hornafirði í október nk. Árni greindi frá því undir þessari umræðu að Bæjarstjórn Hornafjarðar sé boðið að sitja þetta þing.
Einnig fundur með Sigurði Þráinssyni hjá landbúnaðarráðuneytinu vegna malartekju í Friðsæld og málefni Flateyjar á Mýrum. Bæjarráð samþykkir að vísa málefnum Friðsældar til byggingar- og skipulagsnefndar.
Fundur með Hafsteini Hafsteinssyni úr fjármálaráðuneytinu og Ásdísi Ingibergsdóttur úr dómsmálaráðuneytinu vegna neðstu hæðar í ráðhúsi. Stefán greindi frá því að áhugi væri hjá starfsmönnum málefna fatlaðra að fá neðstu hæðina fyrir starfsemi dagvistar og einnig var upplýst að Fiskistofa hafi áhuga á að leigja neðstu hæðina fyrir væntanlega starfsemi á Hornafirði. Kom sú ósk Fiskistofu eftir að hafa skoðað ýmsa kosti sem í boði eru á Höfn. Björn Ingi greindi frá samtölum við fjármálaráðherra um Vatnajökulsþjóðgarð og hugsanlegar höfuðstöðvar þjóðgarðsins á Höfn. Sagðist Björn Ingi sjá fyrir sér höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs á neðstu hæð í ráðhúsi.
3. Flugmál
Rætt um núverandi flugvélakost og of lítinn áreiðanleika í flugsamgöngum til Hornafjarðar um nokkurt skeið og áhrif þessa á ferðaþjónustu og ýmsa aðra starfsemi í sveitarfélaginu. Bæjarstjóra falið að hafa samband við samgönguráðherra og Vegagerðina og fara yfir þessi mál áður en gengið verður til samninga um flug til Hornafjarðar. Leggja þurfi áherslu á áreiðanleika flugrekstraraðila og flugvélar sem búnar eru jafnþrýstiklefum.
4. Gjaldskrá fyrir mötuneyti Nesjaskóla
Samþykkt að gjaldskrá fyrir mötuneyti Nesjaskóla hækki um sömu prósentutölu og matarskammtar í Hafnarskóla og Heppuskóla.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Jón P. Þorsteinsson bréf dags. 14. ágúst 2006, vegna tilboðs í skólaakstur 2006-2011. Bæjarstjóra ásamt starfsmönnum falið að svara bréfinu.
· Menningarráð Austurlands , bréf dags. 14. ágúst 2006, aðalfundarboð. Fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfundinum verða Árni Þorvaldsson, Hermann Hansson og Hjalti Þór Vignisson.
· Foss, bréf dags. 14. ágúst 2006, vegna 41. þings BSRB.
· Sisimiut kommune, tölvubréf 23. febrúar 2006, boð á 250 ára afmæli. Samþykkt að senda ekki fulltrúa sveitarfélagsins í þetta boð. Jafnframt samþykkt að senda Sisimiut kommune góðar kveðjur í tilefni afmælisins.
· Þróunarfélag Austurlands, bréf dags. 16. ágúst 2006, vegna hækkunar félagsgjalds ofl..
6. Önnur mál
Stefán greindi frá því að þann 19. og 20. ágúst hafi þurft að loka sundlauginni vegna skorts á starfsfólki. Starfsmaður sem vera átti á vakt veiktist skyndilega og enginn var til staðar til að leysa hann af. Allir þeir sem með skömmum fyrirvara geta gengið í þetta starf voru uppteknir við önnur störf eða voru utan svæðis. Ekki er ásættanlegt að aðrir en þeir sem hafa til þess tilskilin réttindi og þekkingu taki á sig ábyrgð á sundlaug. Þessi ráðstöfun hafi verið óhjákvæmileg en jafnframt bagaleg. Starfsmanni falið að senda út fréttatilkynningu um málið.
Bæjarráð samþykkir að greiðslur til tveggja fagstjóra í grunnskólum og ritstjóra skólanámskrár grunnskólanna verði greiddar af fjárhag skólaskrifstofu skólaárið 2006 – 2007 enda rúmist það innan fjárhagsáætlunar skrifstofunnar. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2007.
Rætt um húsvörslu í Hrollaugsstöðum og fyrirkomulag þeirra mála. Einnig greint frá skilum og frágangi leigutaka á húsnæðinu. Starfsmönnum falið að koma með tillögur um húsvörslu og önnur atriði sem snúa að þessu húsnæði og öðru sambærilegu.
Kynnt var undirritað bréf frá tíu ferðaþjónustuaðilum í Suðursveit og Mýrum, dags. 19. ágúst sl. þar sem þeir benda á að hagsmunir heildarinnar séu hafðir að leiðarljósi við ákvarðanatöku um val á vegstæði yfir Hornafjarðarfljót og mæla vegna þess með leið 2 eða 3, þ.e. syðstu leiðirnar samkv. fyrirliggjandi tillögum.
Farið yfir húsnæðismál Jöklasýningar. Bæjarstjóra falið að reyna að lækka kostnað.
Björn Ingi gerði að umtalsefni aðstöðu fyrir móttöku sorps og hugsanlega flokkun á því. Helgi greindi frá stöðu þessa máls og hugmyndir um næstu skref.
Reynir velti upp hugmynd um að gera heimavist Nesjaskóla að skólabúðum. Hvatti hann til þess að leggja vinnu í þetta mál. Var samþykkt að skoða þetta mál. Einnig var rætt um núverandi samning við rekstraraðila Edduhótels.
Fundi slitið kl. 12:25


