Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 342
342. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 1. ágúst 2006 kl. 10:00. Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, og Helgi M. Pálsson. Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 71. fundur 6. júlí 2006.
Sagt frá fundi bæjarstjóra og framkvæmdastjóra HSSA með landlækni þann 24. júlí s.l. um læknamál.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd 59. fundur 10. júlí 2006.
Liður 3 varðandi makaskipti á landi innan Flateyjarjarða tekin fyrir sem sér liður, sjá lið 5.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki 20. fundur 18. júlí 2006.
Fundargerð samþykkt.
2. Framkvæmdir við íþróttamannvirki – greiðsluáætlun og áhrif á 3ja ára áætlun rekstur
Farið yfir áætlun um uppbyggingu sundlaugar og íþróttavallar. Lagt fram minnisblað frá framkvæmdastjórum, dags. 1. ágúst 2006, varðandi framkvæmdir og áhrif á 3ja ára áætlun. Bæjarráð leggur til að áfram verði unnið út frá fyrirliggjandi teikningum og áætlunum, en leggur til að skoðaðir verði áfram möguleikar á frestun einstakra áfanga.
3. 6 mánaða uppgjör bæjarsjóðs
Uppgjörið sýnir að reksturinn er í góðu samræmi við áætlun.
4. Endurskoðun á fjárhagsáætlun
Fram kom að endurskoðun á fjárhagsáætlun er hafin. Lagt var fram yfirlit um fjárútlát og sölu eigna sem ekki var gert ráð fyrir við gerð fjárhagsáætlunar.
5. Ósk um umsögn á makaskiptum á landi innan Flateyjarjarða
Lögð fram bókun umhverfisnefndar frá 59. fundi nefndarinnar, þann 10. júlí 2006. Varðandi makaskipti á landi innan Flateyjarjarða vill bæjarráð taka eftirfarandi fram:
Bæjarráð hvetur til þess að við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs verði frá upphafi allt land Heinabergsjarðarinnar, sem liggur ca. 200 metra norðan byggðalínu, innan þjóðgarðs þó þannig að hefðbundnar nytjar haldist. Hvað varðar umsögn um makaskipti innan Flateyjarjarða hvetur bæjarráð Landbúnaðarráðuneytið að kynna sér til hlítar staðhætti og eignarhald umrædds lands áður en ákvarðanir eru teknar. Bæjarráð telur að miðað við fyrirliggjandi hugmyndir um mörk Vatnajökulsþjóðgarðs sé ekki þörf á makaskiptum á þessum jörðum þar sem umrætt land í eigu Óla Þorleifs Óskarssonar kemur ekki til með að falla undir þjóðgarð.
6. Áætlun um fundi bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda haustið 2006 – sent í tölvupósti
Til kynningar.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Brunabót, bréf dags. 10. júlí 2006, vegna ágóðahlutagreiðslu 2006.
Ágóðahluti Sveitarfélagsins Hornafjarðar er kr. 7.236.000
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 18. júlí 2006, vegna upplýsinga um málefna innflytjenda hjá einstökum sveitarfélögum.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 13. júlí 2006, vegna ítrekunar á beiðni um endurskoðun á samningi um leigu á eignarhlutum í Hafnarbraut 27, Hornafirði.
Bæjarstjóra falið að ganga til viðræðna við sýslumann.
Seyðisfjarðarkaupstaður, bréf dags. 25. júní , um framtíðarlausn sorpmála á Austurlandi.
Vísað til umhverfisnefndar.
8. Önnur mál
· Vínveitingaleyfisumsóknir
· Kaffihornið, umsókn Ingólfs G. Einarssonar dags. 8. júní 2005 Samþykkt.
· Veitingaskáli við Jökulsárlón, umsókn Einars B. Einarssonar dags. 1. júní 2006 Samþykkt.
· Hjalti gerði grein fyrir fundi sem hann átti með sendiherra Svíþjóðar sl. sunnudag. Þá gerði hann grein fyrir hugmynd um að halda stóra ráðstefnu á Höfn um jökla á næsta ári.
· Björn Ingi vakti athygli á að rétt væri að ýmsar heimsóknir t.d. opinberra aðila mætti vera sýnilegri. Hann óskaði einnig eftir að vinnu við innleiðingu á rafrænum gögnum t.d. fundarboðum og fylgiskjölum yrði hraðað.
Fundi slitið kl: 12:00.


