Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 341
341. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 11. júlí 2006 kl. 10:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Helgi M. Pálsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 81. fundur 23. júní 2006.
Gerð grein fyrir að bæjarstjóri og formaður hafnarstjórnar hitti fulltrúa Siglingarstofnunar á fundi í Reykjavík vegna dælingarmála á næstu dögum. Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 79. fundur 23. júní 2006.
Kom fram að í skipulagsskrá Þórbergsseturs er gert ráð fyrir að einum fulltrúi frá Menningarmiðstöð Hornafjarðar í stjórn.
Hjalti upplýsti að hugmynd hafi komið fram á aðalfundi Jöklaseturs að halda stóra ráðstefnu um jökla næsta haust.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 83. fundur 26. júní 2006.
Björn Ingi spurðist fyrir um breytingar á leikskólunum. Upplýst var að ekki er gert ráð fyrir auknum útgjöldum vegna þessa. Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 80. fundur 28. júní 2006.
Samþykkt að taka ósk ráðsins, um aukafjárveitingu vegna starfsmanns til að sinna félagsstarfi fyrir ungt fólk í félagsmiðstöð og framhaldsskóla, fyrir sem sér lið.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 18.fundur, 8. júní 2006 og 19. fundur, 26. júní 2006.
Starfsmenn gerðu grein fyrir vinnu sem fram hefur farið varðandi hönnun. Bæjarráð ítrekar bókun sína frá síðasta fundi að bæjarstjórn hafi ekki samþykkt aukin útgjöld til sundlaugarframkvæmda. Fundargerði samþykktar.
· Húsnæðisnefnd 69. fundur, 4. júlí 2006.
Fundargerðir samþykktar.
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 22. fundur, 5. júlí 2006.
Töluverðar umræður sköpuðust um fjallskil og fjallskilasjóð.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd, 68. fundur,5. júlí 2006.
Bæjarráð samþykkir að taka umsókn Íslandspósts um fyrirkomulag byggingar á lóðinni að Vesturbraut 6 og deiliskipulag við Fjárhúsavík fyrir sem sér lið. Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um aukafjárveitingu vegna starfsmanns til að sinna félagsstarfi fyrir ungt fólk í félagsmiðstöð og framhaldsskóla
Lögð fram samantekt frá starfsmanni æskulýðs- og tómstundaráð sem gerir ráð fyrir að aukafjárveitingin nemi kr. 139.500.
Samþykkt að vísa beiðninni til fjárhagsláætlunargerðar 2007.
3. Útboð í skólaakstur 2006 – 2011.
Gerð grein fyrir útboði vegna skólaakstur. Fimm aðilar buðu í verkið, samtals sex tilboð. Tveir aðilar buðu í heildarverkið. Kostnaðaráætlun var 124.576.938,- Kom fram að umtalsverð kostnaðarhækkun mun verða á skólaakstri.
Samþykkt að ganga til viðræðna við lægstbjóðanda, Guðbrand Jóhannsson, en heildartilboð hans var 164.224.760,-.
4. Deiliskipulag vegna Vesturbrautar 6
Bæjarráð samþykkir að farið verði í vinnu við breytingar á deiliskipulagi vegna Vesturbrautar 6.
5. Deiliskipulag við Fjárhúsavík
Lögð var fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Fjárhúsvík sem unnin hefur verið af tækni- og umhverfissviði. Samþykkt er að auglýsa tillöguna.
Bæjarráð óskar eftir kostnaðaráætlun varðandi gatnagerð og fl.
6. Yfirlit yfir kaupleiguíbúðir
Lagt fram yfirlit yfir kaupleiguíbúðir.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Brunabót, bréf dags. 27. júní 2006, vegna styrktarsjóðs EBÍ. Til kynningar.
· Safnaráð, upplýsingar um styrkumsóknir. Vísað til menningarmálanefndar.
· Félagsmálaráðuneytið, tölvupóstur dags 4. júlí 2006, varðandi beiðni um styrk úr Framkvæmdasjóði fatlaðra Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 8. júní 2006, vegna umsóknar um greiðslu framlags vegna skólaakstur úr dreifbýli sem sækja skóla í Skaftárhreppi. Til kynningar.
· Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 30. júní 2006, vegna frumvarpa um skipulags- og byggingarmálefni. Málinu vísað til byggingar- og skipulagsnefndar. Til kynningar.
8. Önnur mál
· Lagt fram bréf frá skólastjóra Hafnarskóla, dags. 5. júlí 2006, varðandi beiðni um að fækka kennslustundum til að fjölga tölvum í Hafnarskóla vegna aukinnar sérkennslu. Bæjarráð samþykkir framlagða beiðni þar sem breytingin kemur ekki til með að hafa áhrif á heildarútgjaldarramma Hafnarskóla árið 2006. Bæjarráð ítrekar fyrri bókun um úttekt á tölvumálum skólanna.
Fundi slitið kl: 12:25.


