Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 340
340. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 27. júní 2006 kl. 10:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Helgi M. Pálsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Kosning formanns og varaformanns bæjarráðs
Lögð fram tillaga um Reyni Arnarson sem formann og Árni Rúnar Þorvaldsson sem varaformann.
Samþykkt með tveim atkvæðum og einn situr hjá.
2. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 147. fundur 20. júní 2006. Fundargerð samþykkt.
3. Ráðning forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Lagðar voru fram umsóknir frá eftirfarandi einstaklingum:
Ásmundur R. Richardsson, Fellsmúla 11, Reykjavík.
Björg Erlingsdóttir, Sundlaugarvegi 14, Reykjavík.
Gísli Þór Gunnarsson, Reykjavík
Hulda Sigurdís Þráinsdóttir, Hléskógum 1, Egilsstöðum.
Róbert Ferdinandsson, Lykkju 2, Reykjavík.
Tinna Kristbjörg Halldórsdóttir, Hallbjarnarstaðir, Egilsstöðum.
Lögð fram umsögn menningarmálanefndar frá 79. fundi nefndarinnar, föstudaginn 23. júní 2006. Menningarmálanefnd var sammála um að mæla með ráðningu Bjargar Erlingsdóttur. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Björgu Erlingsdóttur um ráðningu í starfið.
4. Ósk um umsögn á makaskiptum á landi innan Flateyjarjarða
· Bréf Landbúnaðarráðuneytisins dags. 12. júní 2006. Töluverð umræða skapaðist um málið. Kom fram að von er á fullrúum umhverfisráðuneytisins þann 10. júlí og ákveðið að taka málið upp þá í tengslum við umræðu um fyrirhugaðan Vatnajökulsþjóðgarð. Bæjarráð vísar málinu til umhverfisnefndar.
5. Beiðni um námsvist í tónlistarskóla utan lögheimilissveitarfélags.
Bæjarráð hefur áður fengið sambærilegar umsóknir og hafnað þeim. Því getur bæjarráð ekki tekið á umsókninni með öðrum hætti og hafnar henni.
6. Heimavist fyrir nemendur úr Öræfum
Lögð fram eftirfarandi bókun skólanefndar 26. júní sl.: “Skólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að ganga til samninga við Halldór Birgisson, eiganda húsnæðisins um að leigja það næsta skólaár. Nefndin samþykkir að heimavistin sé eingöngu fyrir nemendur sem koma úr Öræfum enda daglegur skólaakstur í aðrar sveitir. Þá samþykkir nefndin að foreldrar þeirra barna sem rétt eiga á að nýta vistina staðfesti með undirskrift sinni að þeirra barn muni nýta vistina næsta skólaár.” Bæjarráð samþykkir bókun skólanefndar að taka á leigu Bogaslóð 6 neðri hæð fyrir heimavist og felur starfsmanni að ljúka málinu í samræmi við umræður á fundinum.
7. Mötuneytismál Hafnar og Heppuskóla (Árni Rúnar vék af fundi undir þessum lið).
Lögð fram drög að samningi milli Sveitarfélagsins og Kaffi Hornsins í júní um áframhaldandi þjónustusamning. Lögð fram eftirfarandi bókun skólanefndar 26. júní sl. “Skólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að gengið verði til samninga við Kaffihornið fyrir næsta skólaár á þeim grundvelli sem kynntur var af starfsmanni nefndarinnar.” Bæjarráðs samþykkir drögin.
8. Tilnefning í stjórn Jöklaseturs ses.
Sveitarfélagið tilnefnir Hermann Hansson og Hjalta Þór Vignisson sem aðalmenn og Guðrúnu Ingimundardóttur og Reynir Arnarson til vara. Gert er ráð fyrir því að Hermann og Guðrún víxli sætum eftir tvö ár.
9. Vínveitingaleyfisumsókn
· Bréf Áslaugar Valsdóttur f.h. Humarhátíðarnefndar dags. 16. júní 2006.
Bæjarráð samþykktir útgáfu leyfisins.
10. Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis
· Bréf sýslumannsins á Höfn dags. 13. júní v. Hafnarness. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
11. Ósk um tölvukaup
· Bréf skólastjóra Hafnarskóla dags. 20. júní 2006. (Hjalti Þór Vignisson vék af fundi undir þessum lið). Starfsmönnum falið að fara yfir þörf grunnskólanna vegna tölvumála. Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar 2007.
12. Ósk um styrk vegna forleifarannsókna
· Tölvubréf Bjarna F. Einarssonar, dags. 16. júní 2006, vegna forleifarannsókna í Hólmi í Nesjum Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.
13. Innsend erindi og til kynningar
· Félagsmálráðuneytið, bréf dags. 6. júní 2006, vegna framlags úr Jöfnunarsjóði. Til kynningar.
· Varasjóður húsnæðismála, bréf dags. 13. júní 2006, um úthlutun framlaga vegna sölu félagslegra íbúða. Til kynningar.
· Samband íslenskra sveitarfélags, bréf dags. 14. júní 2006, boðun á 20. landsþing sambandsins. Til kynningar.
· Kristín Gísladóttir formaður Samkórs Hornafjarðar, bréf dags. 14. júní vegna styrks. Til kynningar.
· Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, bréf dags. 19. júní 200,6 um afgreiðslu byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar á byggingarleyfisumsókn vegna sundlaugar. Til kynningar.
· Bændasamtök Íslands ódagsett bréf – kynning. Bæjarráð vísar málinu til atvinnumálanefndar.
· Arngrímur Örn Hallgrímsson f.h. ritstjórnar Sveitarstjórnarmála, tölvubréf dags. 16. júní 2006, vegna upplýsinga um bæjarstjórn. Til kynningar.
14. Önnur mál
· Ómar Bjarki Smárason kom á fundinn kl. 11:00 og gerði grein fyrir framgangi jarðhitaleitar við Hoffell. Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram að bora allt að 500 metrum í borholu ASK 86 við Hoffell.
· Lagt fram fundarboð aðalfundar Þróunarfélags Austurlands sem verður nk. fimmtudag.
Bæjaráð samþykkir að Reynir Arnarson verði fulltrúi sveitarfélagsins í stjórn félagsins og Árni Þorvaldsson til vara. · Gerð grein fyrir að sex aðilar hafi tekið útboðsgögn vegna skólaaksturs.
Fundi slitið kl: 12:25.


