Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
214. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn. 5. júní 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Félagsmálaráð Hornafjarðar 93. fundur 27. maí 2003.
Fundargerð samþykkt.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 46. fundur 26. maí 2003.
Kristín spurðist fyrir um lóðarumsókn frá Sal ehf.
Bæjarstjóri upplýsti að erindið er í vinnslu hjá tæknideild og mun koma aftur inn á borð bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
Heilbrigðis- og öldrunarráð 42. fundur 4. júní 2003.
Bæjarráð þakkar höfðinglega gjöf til Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands.
Fundargerð samþykkt.
Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 50. fundur 22. maí 2003.
Fundargerð samþykkt.
Skólanefnd Hornafjarðar 50. fundur 21. maí 2003.
Fundargerð samþykkt.
Starfshópur um stofnun Jöklaseturs á Hornafirði 7. fundur 27. maí 2003.
Fundargerð samþykkt.
Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 51. fundur 26. maí 2003.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis
Sýslumaðurinn á Höfn vegna Kaffihornsins, bréf dags. 23. maí 2003.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis til reksturs veitingahúss og veisluþjónustu á Kaffi Horninu.
3. Endurskoðun leigusamnings
Bréf sýslumannsins á Höfn dags. 23. maí 2003.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og starfsmönnum að taka upp viðræður við sýslumann um málið.
4. Innsend erindi og til kynningar
Ungmennahús á Hornafirði – bréf áhugamannasamtakanna Hússins dags. 19. maí 2003.
Bæjarráð tilnefnir Friðrik Ingvaldsson í nefnd um stofnun og þróun Ungmennahúss.
Aðalfundur SSA – bréf dags. 21. maí 2003.
Til kynningar.
Úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda - Félagsmálaráðuneytið – bréf dags. 14. maí 2003.
Til kynningar.
Gögn frá SSA - bréf dags. 19. maí 2003.
Til kynningar.
5. Önnur mál
Ósk Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi vegna göngubrúar yfir Jökulsá í Lóni
Bæjarráð samþykkir framkvæmdaleyfið.
Ósk Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi til lagfæringar/nýbyggingar á vegi og varnargörðum við Kollumúlaveg
Erindinu er vísað til umhverfisnefndar Hornafjarðar. Einnig er óskað eftir gögnum frá Umhverfisstofnun um málið hið fyrsta.
Málefni Akureyjar SF-52
Halldóra vék af fundi við afgreiðslu þessa fundarliðar.
Stefnt er að afgreiðslu málsins sem fyrst að fenginni umsögn forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Lögð er áhersla á að niðurstaða í málinu liggi fyrir sem fyrst.
Stefán kynnti drög að leigusamningi, dags. 3. júní, á húsnæði fyrir dagvist fatlaðra
Halldóra og Albert viku af fundi við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð felur Stefáni að ganga frá leigusamningi í samræmi við fyrirliggjandi drög og umræður á fundinum. Kristín ítrekaði þörf á úttekt á húsnæði í eigu sveitarfélagsins og nýtingu þess.
Aðalfundur Norðuríss hf. boðaður miðvikudaginn 11. júní n.k. kl. 15:00
Bæjarstjóra falið að tlnefna fulltrúa á fundinn.
Bæjarstjóri sagði frá málþingi um þolmörk ferðamennsku í friðlandi á Lónsöræfum sem haldið verður í Nýheimum 12. júní n.k. Málþingið er á vegum Ferðamálaseturs Íslands, Ferðamálaráðs Íslands , Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri
Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn í Nýheimum 13. júní n.k.
Fundi slitið kl. 12:30


