Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 339
339. fundur
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson og Helgi M. Pálsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna, sérstaklega nýja fulltrúa.
1. Fundargerðir
· Byggingar og skipulagsnefnd 67. fundur 7. júní 2006.
Bæjarráð samþykkir lóðarúthlutun vegna sundlaugar.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 146. fundur 29. maí 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Framkvæmdanefnd um íþróttamannvirki 17. fundur 31. maí 2006.
Fundargerð samþykkt.
· HAUST 62. fundur 8. júní 2006
Til kynningar.
2. Framkvæmdir við íþróttamannvirki
Gerð grein fyrir að samkvæmt nýjustu útreikningum verkfræðinga þá er hefur kostnaðaráætlun vegna sundlaugarframkvæmda hækkað talsvert og er nú 420 miljónir króna. Á 98. fundi bæjarstjórnar þann 6. apríl s.l. var samþykkt að heildarkostnaður við framkvæmdina yrði 330 miljónir. Bæjarráð áréttar því að meðan bæjarstjórn hefur ekki tekið ákvörðun um annað að þá sé það viðmiðunartalan varðandi uppbyggingu á sundlaugarframkvæmdum. Bæjarráð felur starfsmönnum að kanna möguleika á fjármögnun vegna kostnaðar við sundlaugarframkvæmd eins og hún liggur fyrir hjá hönnuðum. Leitað verði leiða til að lækka þennan kostnað á þess að það komi niður á gæðum verksins. Stefnt verði að því að sundlaugarkerið verði notað til keppni á unglingalandsmóti árið 2007.
3. Staða fjármála hjá bæjarsjóði Hornafjarðar og HSSA 30. apríl 2006
Rekstrargjöld bæjarsjóðs voru samtals 239 miljónir en tekjur samtals 291 miljón fyrstu fjóra mánuði ársins. Rekstur málaflokka er í góðu samræmi við fjárhagsáætlun. Tekjur HSSA voru alls 117,5 miljónir en gjöld um 116 miljónir. Áætlun HSSA er í samræmi við fjárhagsáætlun.
4. Vatnajökulsþjóðgarður
Lagt fram minnsblað, dags 8. júní, varðandi þjóðgarðsmál. Þar eru listuð upp ýmis atiriði sem rætt er um í tengslum við hugsanlega stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs, s.s. verndarstig, fyrirkomulag reksturs og stjórnunar, yfirstjórn þjóðgarðsins, áætlun um uppbyggingu mannvirkja og þjónustubygginga, stofn- og rekstrarkostnaður og annað er varðar samskipti sveitarfélags og þjóðgarðs.
5. Málefni Íslandspóst
Starfsmenn gerðu grein fyrir fundi sem þeir áttu með fulltrúum Íslandspóst um fyrihugaðar framkvæmdir fyrirtækisins. Kom fram að Íslandspóstur fer fram á að sveitarfélagið endurskoði afstöðu sína til afstöðu fyrirhugaðs húss að Vesturbraut.
Bæjarráð felst á fyrir sitt leiti að húsið snúi eins og tillaga arkitekta gerir ráð fyrir, byggingin verði færð í bundna byggingarlínu og takmörk verði á innkeyrslu að lóð.
Erindinu vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
6. Ósk um endurnýjun vínveitingaleyfis – Kaffi Hornið
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
7. Ósk um umsagnir um endurnýjun rekstrarleyfa
· Vegna veitingahúss/stofu í Þórbergssetri
Bæjarráð áréttar að þau fjárframlög sem fylgja samningi sveitarfélagsins og Þórbergsseturs verði ekki notuð með neinum hætti í tengslum við rekstur á samkeppnisgrundvelli, sem rekinn kann að verða í tengslum við starfsemi Þórbergsseturs
Að öðru leiti gerir bæjarráð ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
· Vegna gistingar að Breiðabólstað/Hala
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
8. Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Samþykkt.
9. Fundartími bæjarráðs
Samþykkt að hafa fundi bæjarráðs á þriðjudögum kl. 9-11.
10. Innsend erindi og til kynningar
· Framleiðnisjóður landbúnaðarins, bréf dags. 31. maí 2005.
Kom fram að sjóðurinn hafi ákveðið að styrkja verkefnið Veturinn í ríki Vatnajökuls um 1,5 miljónir króna. Eins hefur borist styrkur upp á 360 þús frá NORA til þess að afla samstarfsaðila fyrir verkefnið í Grænlandi og Færeyjum
· Forseti Íslands ódagsett þakkarbréf.
Til kynningar.
· SSA tölvubréf dags. 6. júní v. fjölda fulltrúa á aðalfundi SSA 6-7. október n.k..
Til kynningar
· Landgræðsla ríkisins, bréf dags. 8. júní 2006 vegna framkvæmda landbóta- og landnýtingaráætlunar fyrir Laxárdal í Nesjum.
Gerð grein fyrir samskiptum sveitarfélagsins við landgræðsluna og upprekstraraðilum í Laxárdal. Bæjarstjóra falið að svara erindi landgræðslunnar í samræmi við umræður á fundinum.
11. Önnur mál
· Lagt fram bréf frá Steini Þórhallssyni, ódags. Starfsmönnum falið að tala við Stein. Bæjarstjóra falið að tala við Stein vegna erindisins í samræmi við umræður á fundinum.
· Gerð grein fyrir útboðsgögnum og skipulagi vegna skólaaksturs.
Fundi slitið kl. 13:00


