Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 338
338. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 30. maí 2006 kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi M. Pálsson.· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 58. fundur, 15. maí 2006.Lagt fram tilboðsblað dags. 17. maí 2006 frá Náttúrulega ehf. vegna kynningarefnis um átak í flokkun sorps. Halldóra Bergljót er hlynnt verkefninu en finnst eðlilegt að ný bæjarstjórn taki ákvörðun um málið. Fundarmenn sammála um verkefnið en vísar málinu til næstu bæjarstjórnar. Halldóra Bergljót hvetur til eyðingu á gróðri á gangstéttum.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 145. fundur, dags. 16. maí 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar, 78. fundur, dags. 17. maí 2006.
Rætt um viðhald á Gömlubúð og Akurey og þróun fjármála. Einnig var rætt um söfn Sverris Schevings.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 16. fundur, dags. 17. maí 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð, 79. fundur, dags. 22. maí 2006.
Össur Imsland mætti á fundinn og rætti stöðu vinnuskólans í sumar. Kristín spyr hvort prentun á sumarbækling hafi verið boðin út og hvort að einhver þörf sé fyrir hann fyrst hann kemur ekki út fyrir en 1. júní. Haukur mætti á fundinn og svaraði spurningunum.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd, 68. fundur, dags. 23. maí 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd, 82. fundur, dags. 24. maí 2006.
Halldóra Bergljót telur að það fyrirkomulag sem gildir í mötuneytismálum í Nesjaskóla varðandi pöntun/afpöntun á mat eigi að gildia einnig fyrir Hafnar og Heppuskóla. Stefán kynnti vinnu vegna útboðs á skólaakstri. Rætt var um vinnu við skólastefnu.
Bæjarráð samþykkir beiðni Nesjaskóla um aukinn stuðning. Halldóra Bergljót telur eðlilegt að vinna eigi að skipun fagstjóra með það að markmiði að kostnaður rúmist innan fjárhagsáætlunar.
Fundargerð samþykkt.
· Atvinnumálanefnd, 23. fundur, dags. 24. maí 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 80. fundur, dags. 24. maí 2006.
Fundargerð samþykkt.
2. Umsókn um vínveitingaleyfi
Umsókn frá Hótel Eddu í Nesjum . Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfið en áréttar að umsagnir aðila verða að liggja fyrir áður en leyfið er veitt.
3. Umsókn um uppsetningu skilta
Bréf Hákonar Valdimarssonar byggingarfulltrúa dags. 19. maí vegna umsóknar Halldórs Birgissonar dags. 11. maí 2006 um leyfi til uppsetningar auglýsingaskilta við gatnamót Vesturbrautar/Hafnarbrautar innan lóðarmarka Videoleigunnar og Vesturbrautar/Silfurbrautar sbr. meðfylgjandi uppdráttur. Bæjarráð samþykkir uppsetningu skiltanna.
4. Styrkbeiðni frá Samkór Hornafjarðar
Tölvubréf Kristínar Gísladóttur dags. 24. maí 2006 þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 150 þúsund til ferðar Samkórs Hornafjarðar til Noregs.
Bæjarráð samþykkir kr. 50.000.-.
5. Jarðhitaleit
Helgi fór yfir málið og sagði að fundur hefði verið með Rarik og landeigendum Miðfells varðandi jarðhitaleit við Miðfell. Sagði hann að mikill áhugi væri hjá Rarik að bora 1000 m. tilraunaholu með vinnslu í huga og einnig sagði hann að til stæði að gera nýjan samning varðandi málið.
6. Samningur við Litlahorn ehf.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Aðalheiður Borgþórsdóttir, framkv.stj. LungaA vegna ungmenni á aldrinum 16-25 ára, dags.18. maí 2006.
Bæjarráð samþykkir að framlag vegna Lunga verði með sama hætti og sl. ár.
· Sláturfélagið Búi, bréf dags. 23. maí 2006, vegna aðalfundar.
Hjalta Þór Vignissyni falið að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
· Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, dags. 24. maí 2006, vegna tilkynningar um endanlegt framlag vegna nýbúafræðslu á fjárhagsárinu 2006.
Til kynningar.
8. Önnur mál
· Bréf fá Laufey Helgadóttur dags. 26. maí 2006 varðandi greiðslu fyrir heimavist. Bæjarráð samþykkir að erindið sér afgreitt á sama hátt og erindi foreldra barna úr Öræfum.
· Halldóra Bergljót spyr um starfsmann háskólaseturs. Stefán upplýsti stöðu mála.
· Halldóra Bergljót óskar efir því að sent verði bréf til Flugmálastjórnar þar sem óskað er eftir upplýsingu um þá þætti sem þarf að uppfylla við Hornafjarðaflugvöll til að hann geti tekið á móti minni farþegaþotum og einkaþotum erlendi frá.
· Kristín þakkar kærlega fyrir samstarfið á liðnum fjórum árum. Bæjarráð tekur undir þakkir. Framkvæmdastjórar þakka sömuleiðis fyrir samstarfið.
Fundi slitið kl. 12:20


