Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 337
337. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 18. maí 2006, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 66. fundur 10. maí 2006.
Bæjarráð tekur undir með byggingar- og skipulagsnefnd varðandi 3. lið.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 79. fundur 10. maí 2006.
Rætt um framkvæmd á dælingu.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 70. fundur 10. maí 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs 30. fundur 10. maí 2006.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um umsagnir á frumvörpum til laga
· Bréf samgöngunefndar Alþingis dags. 11. maí um frumvarp til laga um Flugmálastjórn Íslands 707. mál, heildarlög.
· Bréf samgöngunefndar Alþingis dags. 11. maí um frumvarp til laga um stofnun hlutafélags um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarrekstur flugmálastjórnar.
3. Innsend erindi og til kynningar
· Bréf Hrafnkels Ingólfssonar dags. 8. maí 2006 um úrbætur á umhverfi ofan við Hafnarbúðina.
Bæjarráð samþykkir að laga og snyrta Afkastahól og leggja gangstétt frá gatnamótum Bogaslóðar/Ránarslóðar að Hafnarbúð og vísar málinu til tækni og umhverfissviðs.
· ÍSÍ, bréf dags. 5. maí 2006 um samþykkt 68. íþróttaþings ÍSÍ.
Til kynningar.
· Foss, bréf dags. 9. maí 2006 um kjarasamninga.
Til kynningar.
4. Önnur mál
· Bæjarráð samþykkir að gerður verði samningur við Bjarna Hákonarson um slátt og hirðingu á opnum svæðum og felur tækni og umhverfissviði að vinna að málinu.
· Bæjarráð samþykkir að tekin verði bíll fyrir umsjónamann fasteigna á rekstrarleigu.
Fundi slitið kl. 10:50


