Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
213. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn. 22. maí 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 44. fundur 15. maí 2003.
Rætt var um lið 7 í fundargerðinni þar sem byggingrnefnd leggur til að lóð nr. 9 við Kirkjubraut verði felld út sem byggingalóð.
Bæjarráð telur að nýta eigi lóðina sem byggingalóð.
Rætt var um gámaeiningar sem sótt hefur verið um að reisa við Hótel Skaftafell og Hótel Smyrlabjörg. Bæjarráð heimilar uppsetningu eininganna með því skilyrði að af þessum einingum verði innheimt öll eðlileg gjöld s.s. fasteignaskattur og byggingarleyfisgjöld.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 92. fundur 13. maí 2003.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 48. fundur 14. maí 2003.
Fundargerð samþykkt.
· Launanefnd sveitarfélaga 187. fundur 14. maí 2003 – til kynningar
2. Endurnýjun á vínveitingaleyfi
· Flugleiðahótel – Hótel Edda Nesjaskóla.
Bæjarráð samþykkir endurnýjun vínveitingaleyfis fyrir Flugleiðahóteli - Hótel Eddu, Nesjaskóla.
3. Deiliskipulag á Lönguhólum
Helgi Már kynnti deiliskipulag fyrir Lönguhóla. Fram kom að deiliskipulagstillaga svæðisins var auglýst. Ekki bárust formlegar athugasemdir við framkvæmdirnar.
Bæjarráð staðfesti deiliskipulagið.
Bæjarráð samþykkir að stækka deiliskipulagsreitinn að lóðarmörkum við Vesturbraut og Norðurbraut, málinu vísað til endanlegrar yfirferðar hjá Skipulagsstofnun.
4. Ósk um umsögn á drögum að náttúruverndaráætlun
· Erindi Umhverfisstofnunar dags. 13. maí 2003 (drögin eru á vef Umhverfisstofnunar)
Bæjarráð vísar erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar og umhverfisnefndar til umsagnar.
5. Erindi Menningarmiðstöðvar bréf dags. 19. maí 2003
· Ljósmyndasafn JVA.
Bæjarráð vísar erindini til endurskoðunar á fjárhagsáætlun í haust.
· Söfn SST og LG.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og forstöðumanni Menningarmiðstöðvar að vinna í samræmi við minnisblað frá forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar dags. 2. maí sl.
· Ráðstöfun stofnfjárveitingar frá ríkinu til Menningarmiðstöðvar.
Bæjarráð felur forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs að gera drög að áætlun um uppbyggingu Sindarbæjar sem miðstöðvar leikslistar- og tónlistarstarfsemi í sveitarfélaginu.
6. Samningur um lögfræðiþjónustu við Regula
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Regula lögmannsstofu um lögfræðiþjónustu og felur framkvæmdastjóra fjármálasviðs að ganga frá samningnum í samræmi við fyrirliggjandi drög.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Útleiga á Pakkhúsi – erindi Menningarmiðstöðvar dags. 19. maí 2003.
Kynntir voru þrír undirritaðir samningar um útleigu á pakkhúsi og drög að einum samningi. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
· Vátryggingar sveitarfélagsins – Bréf Sjóvár- Almennra dags. 16. maí 2003.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að skoða tryggingar sveitarfélagsins m.t.t. þess hvort unnt sé að ná fram hagræðingu.
· Erindi Menntamálaráðuneytis um grunnskóla dags. 12. maí 2003.
Bæjarráð vísar erindinu til skólaskrifstofu.
· Skýrsla Karls Benediktssonar vegna rannsóknarverkefni um samþættingu náttúruverndar og atvinnulífs í tengslum við Vatnajökulsþjóðgarð – skýrsla hjá Albert.
Til kynningar.
· Styrkbeiðni frá Saman - hópnum.
Bæjarráð telur sér ekki fært að verða viðstyrkbeiðninni.
8. Önnur mál
Lóðaumsókn Kirjubraut 9 Höfn.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni Kirkjubraut 9.
Skipulagning stuðningskennslu í Nesjaskóla skólaárið 2003 - 2004
Halldóra kynnti minnisblað frá framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs þar sem fram kemur þörf fyrir aukna stuðningskennslu í Nesjaskóla á næsta skólaári. Að hluta til er um að ræða tilfærslu stöðugilda stuðningsfulltrúa á milli stofnana en þó er ljóst að þessi aukning mun valda útgjaldaaukiningu sem nemur uþb. kr. 1.500.000.
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra færðslu- og félagssviðs að skipuleggja stuðningskennslu í Nesjaskóla í samræmi við fram lagt minnisblað. Erindinu vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2003.
Heppuskóli – áætlun um stofnbúnaðarkaup
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að gera úttekt á tölvubúnaði Heppuskóla með það í huga að endurbæta hann. Það sama gildir fyrir aðra grunnskóla sveitarfélagsins.
Umsóknir um styrki til sérstakra verkefna á vegum svæðismiðlana
Inga Jóna kynnti bréf frá stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs þar sem fram kemur að framkvæmdaráð sjóðsins samþykkir styrk til 5 af þeim 6 verkefnum sem sveitarfélagið sótti um. Kostnaður sveitarfélagsins, takist að manna þær stöður sem í boði eru gæti numið allt að 3.900.000 (launakostn. 2.600.000, annar kostn. 1.300.000). Bæjarráð felur framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs að vinna að málinu.
Bréf dags. 30. apríl sl. frá trúnaðarmönnum í grunn- og leikskólum sveitarfélagsins þar sem farið er fram á að laun verði ávallr greidd út síðasta virka dag hvers mánaðar.
Bæjarráð fela framkvæmdastjóra fjármálasviðs að svara bréfinu.
Landskipti á Skógeyjarsvæðinu
Bréf frá Davíð Þór Björgvinssyni dags. 23. apríl lagt fram til kynningar.
Fundi slitið kl. 12:10


