Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 334
334. fundur
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd 29. fundur, 5. apríl 2006.
(Hákon Valdimarsson mætti á fundinn kl. 10.00 og vék af fundi kl. 10.25)
Umræða um umsókn Rósabergs ehf. varðandi byggingu við Fjárhúsavík. Bæjarráð samþykkir að farið verði út í vinnu við deiliskipulag á svæðinu.
Varðandi umsókn um breytingu á söluskála Skeljungs í Freysnesi vill bæjarráð benda á að ekki hafi verið tekin afstaða um framtíðarvegstæði fyrir þjóðveg 1 á þessum slóðum.
Rætt um átak í hreinsunarmálum. Nokkuð hefur verið um kvartanir frá íbúum um slæma umgengni á lóðum í þéttbýli. Bæjarráð samþykkir tillögu byggingar- og skipulagsnefndar um að gert verði átak í þessum málum.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 76. fundur 24. apríl 2006.
Rætt um dælingu í höfninni og ósk um löndunarkrana á Óslandsbryggju. Umræða skapaðist einnig um aðstöðu á Austurfjöru og óskað eftir frekari upplýsingum um málið.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd 77. fundur 24. apríl 2006 ? óundirrituð.
Nokkrar umræður sköpuðust um málþing um skapandi greinar.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 733. fundur dags. 24. mars 2006.
Til kynningar.
2. Athugasemd við breytingu á aðalskipulagi
· Friðrik S. Þórarinsson og Þórunn Óskarsdóttir, bréf dags. 9. apríl 2006.
Auglýsingu á breytingar á aðalskipulagi vegna lóðarinnar við Hvannabraut 3 ? 5 er lokið og ein athugasemd hefur borist. Hún er frá eigendum Hvannabrautar 1 skv. bréfi dags. 9 apríl síðastliðinn, þar sem þau mótmæla fyrirhugaðri breytingu úr íbúðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæði.
Bæjarráð hefur farið yfir rök eigendanna og getur fallist á sum þeirra s.s. aukning umferðar (þó ekki á öllum tímum sólarhringsins) og þess vegna meiri slysahættu. Rökin eru samt ekki talin nægjanleg af hálfu bæjarráðs til að stöðva málið og mælir með því við bæjarstjórn að aðalskipulagsbreytingin verði samþykkt.
3. Ársreikningar 2005
Ásta H. Guðmundsdóttir fór yfir niðurstöðu ársreikninga árið 2005. Bæjarráð vísar reikningunum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
4. Frumvarp um Nýsköpunarmiðstöð
Rætt um frumvarp um nýsköpunarmiðstöð. Ákveðið að taka upp málið á næstu fundum ráðsins og afla frekari upplýsinga.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Ályktun Kvenfélagsins Óskar, Suðursveit, dags. 20 apríl 2006
Bæjarráð leggur áherslu á að í Hrollaugsstöðum verði áfram aðstaða til félagsstarfa og samkomuhalds.
· Sisimiut museum, boð um farandsýningu á ljósmyndum.
Vísað til menningarmálanefndar.
· Fundarboð á aðalfund húsfélagsins Víkurbraut 30, fimmtudaginn 27. apríl 2006.
Bæjarstjóra falið umboð á fundinum.
· Hagstofa Íslands, viðmiðunardagur kjörskrár vegna sveitarstjórnarkosninga 2006, bréf dag. 18. apríl s.l.
Til kynningar.
6. Önnur mál
· Rætt um vegstæði yfir Hornafjarðarfljót.
· Ásta gerði grein fyrir úrskurði um endurgreiðslur á VSK vegna sérfræðiþjónustu. Kom fram að yfirskattanefnd hefur samþykkt kröfu sveitarfélagsins.
· Í tengslum við opinbera heimsókn forseta Íslands vill bæjarráð koma á framfæri þakklæti til þeirra sem báru hitann og þungann af skipulagningu og undirbúningi heimsóknarinnar. Sömuleiðis vill bæjarráð þakka íbúum héraðsins fyrir almenna þátttöku í dagskránni og góðar móttökur.
· Gerð grein fyrir að viðræður við félagsmálaráðuneytið eru framundan varðandi áframhald á þjónustusamningi um málefni fatlaðra.
Fundi slitið kl. 12.15


