Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 333
333. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar 333. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 19. apríl 2006, kl. 11:00.
Mætt voru:Elín Magnúsdóttir formaður, Halldóra B. Jónsdóttir varaformaður og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson og Helgi M. Pálsson.
1. Fundargerðir
· Almannavarnarnefnd Hornafjarðar 29. fundur, 5. apríl 2006.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um tilnefningu í aðgerðarstjórn almannavarna á Hornafirði
· Bréf sýslumannsins á Höfn dags. 6. apríl 2006.
Helgi Már Pálsson skipaður aðalmaður og Össur Imsland til vara.
3. Ósk um umsögn á útgáfu veitingaleyfis
· Bréf sýslumannsins á Höfn dags. 5. apríl 2006.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
4. Innsend erindi og til kynningar
· Póst og fjarskiptastofnun bréf dags. 3. apríl 2006 um uppbyggingu háhraðatengingar.
Til kynningar.
· Lánasjóður sveitarfélaga, bréf dags. 5. apríl 2006 um vaxtabreytingu.
Til kynningar.
· Þroskahjálp, tölvubréf dags. 7. apríl 2006, um málþing í tilefni af 30 ára afmæli Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið bréf dags. 12. apríl 2006 um uppbyggingu háhraðatengingar í dreifbýli.
Til kynningar.
· Landbúnaðarráðuneytið, bréf dags. 11. apríl 2006, vegna malarnáms í Friðsæld.
Til kynningar.
· Umhverfisstofnun, tölvubréf dags. 12. apríl 2006, vegna komu norskra sveitarstjórnarmanna til Íslands 8-14. maí n.k.
Til kynningar.
· Bjarni F. Einarsson tölvubréf dags. 17. apríl 2006, ósk um styrk til uppgraftrar á Bæ í Öræfum.
Hafnað.
· Friðrik S. Þórarinsson og Þórunn Óskarsdóttir, bréf dags. 9. apríl 2006, athugasemd við breytingu á aðalskipulagi vegna Hvannabrautar 3-5.
Málið tekið fyrir á næsta fundi.
5. Önnur mál
· Bréf Örnu Ósk Harðardóttur og Þórhalls Einarssonar vegna frestunar á niðurrifi gripahúss og ósk um að fá að bera á og heyja túnin við Byggðasafnið, dags. 4. apríl 2006. Samþykkt.
Fundi slitið kl. 11.30


