Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 332
332. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 6. apríl 2006, kl. 10:00.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, varaformaður, Reynir Arnarson, Björn Traustason. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson og Helgi M. Pálsson.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 143. fundur 28. mars 2006. Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 66. fundur3. apríl 2006.
Bæjarstjóra er falið að ræða við fasteignasala og gera minnisblað um sölu á íbúðum úr kaupleigukerfinu. Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 57. fundur 3. apríl 2006.
Kynnt var minnisblað frá Sagaplast um endurvinnslu á nokkrum flokkum úrgangs og tilboð þar af lútandi.
Samþykkt að fela tækni- og umhverfissviði að vinna málið áfram. Bæjarstjóra falið að afla upplýsinga um stöðu landgræðslumála vegna sandfoks í sveitarfélaginu. Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 77. fundur 27. mars 2006.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með forvarnarstarf skólanna sbr. 5 lið Kristín spurðist fyrir um hvort æskulýðs- og tómstundaráð hefði með rekstur Sindrabíós að gera og benti á að varaformaður nefndarinnar væri þar í forsvari. Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um niðurfellingu fasteignagjalda
Bæjarráð samþykkir ekki niðurfellingu fasteigna –og gatnagerðagjalda en samþykkir að fella niður sorpgjöld.
3. Sala á Bjarnarhól 4, nr. 218-0566
Bæjarráð samþykkir söluna.
4. Erindi foreldrafélags leikskólanna
· Bréf dags. 25. mars 2006.
Málinu vísað til skólanefndar.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Siglingastofnun bréf dags. 21. mars 2006 vegna tilboða í dýpkun. Til kynningar.
· Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 22. mars 2006, Dagur umhverfisins 25. apríl n.k.. Til kynningar. Vísað til umhverfisnefndar.
· Viðlagatrygging Íslands, bréf dags. 24. febrúar 2006, um viðlagatryggingar mannvirkja. Til kynningar.
· Haust, bréf dags. 24. mars, eftirlitsskýrsla vegna sorpstöðvar í Lóni. Til kynningar.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Samgöngunefnd Alþingis, bréf dags. 27. mars 2006, ósk um umsögn á tillögu um þingsályktun um uppbyggingu héraðsvega. Sjá slóð http://www.althingi.is/altext/132/s/0330.html.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 30. mars 2006, um kortlagningu vega og vegaslóða – akstur utan vega.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.
· “Hjólað í vinnuna” bréf dags. 27. mars 2006.
Æskulýðs og tómstundafulltrúa falið að kynna erindið fyrir stofnunum sveitarfélagsins.
6. Önnur mál
Guðrún Júlía framkvæmdastjóri HSSA mætti á fundinn og gerði grein fyrir starfi og stöðu stofnunarinnar. Ljóst er að erfið staða er í læknamálum og lýsir bæjarráð áhyggjum sínum yfir því. Brýnt er að stjórnvöld komi að þessum málum.
Fundi slitið kl. 11:30


