Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 330
330. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 30. mars 2006, kl. 10:00. Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, varaformaður, Reynir Arnarson og Einar Karlsson Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi M. Pálsson.
1. Fundargerðir
· Skólanefnd Hornafjarðar 80. fundur 22. mars 2006.
Stefán gerði grein fyrir fundi með foreldrum skólabarna í Öræfum sem haldinn var í Hofgarði 10. mars sl. Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 76. fundur 27. mars 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki 12. fundur 22. mars 2006 og 13. fundur 29. mars 2006.
Ný tillaga að áfangaskiptingu gerir ráð fyrir breytingum á 1. áfanga þannig að byrjað verði á þeim hluta búningsklefa sem til þessa hefur fallið undir 2. áfanga, sbr. fram lagða teikningu dags. 29. mars sl.. Áætlaður kostnaður hönnuðar gerir ráð fyrir um kr. 350 millj. Bæjarráð samþykkir að unnið verði eftir þeirri teikningu og að miðað verði við að heildarkostnaður við 1. áfanga verksins fari ekki fram yfir kr. 330 millj.
Bæjarráð samþykkir að bjóða jarðvegsskipti út í heimabyggð.
Fundargerðir samþykktar.
· Stjórn Sambands ísl. Sveitarfélaga 732. fundur 24. febrúar 2006.
Til kynningar.
2. Lóðarumsókn
· Erindi Rósabergs ehf. dags. 21. mars 2006.
Starfsmönnum falið að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum og vísar erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar.
3. Lífeyrisskuldbindingar sveitarfélagsins
· Bréf Talnakönnunnar hf. dags. 12. mars 2006.
Til kynningar
4. Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis
· Bréf sýslumannsins á Höfn v.Ferðaþjónustunnar Litla-Hofi, dags. 16. mars 2006.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
5. Innsend erindi og til kynningar
· SSA, bréf dags,. 10. mars 2006, tilkynning um 40. aðalfund SSA á Hornafirði 6. og 7. október n.k.
· Bréf SAMAN-hópsins, dags. 15. mars 2006, ósk um styrk. Bæjarráð vísar málinu til fræðslu- og félagssviðs.
· Landsskrifstofa Staðardagskrár 21 á Íslandi, bréf dags. 16. mars 2006, um nýjan bækling um jafnrétti og sjálfbæra þróun.
Til kynningar. Bæjarráð vísar málinu til umhverfisnefndar.
· Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 17. mars 2006, um breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar 1998-2018. Til kynningar.
· Alþjóðahúsið, tölvupóstur dags. 22. mars 2006 um: Rannsóknir á málefnum innflytjenda á Íslandi Reynsla – Menntun Norræna húsinu 31. mars 2006. Til kynningar.
· Kirkjubæjarstofa, tölvupóstur dags. 22. mars 2006, viðburðardagskrá í apríl 2006. Til kynningar.
· Glax-Viðskiparáðgjöf, ódags.bréf, um ráðstefnu um árangurstjórnun í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Til kynningar. Bæjarráð vísar málinu til heilbrigðis- og öldrunarráðs og félagsmálaráðs.
6. Önnur mál
Bæjarráð tilnefnir Albert Eymundsson og Hauk Þorvaldsson í starfshóp vegna heimsóknar forseta Íslands til Hornafjarðar. Gert er ráð fyrir að sýslumaður vinni með þeim.
„Vegna umræðna um þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og brottför þyrlusveitar varnaliðsins af landinu vill bæjarráð Hornfjarðar benda á að björgunarþyrlur hafi oft þurft að athafna sig á Hornafirði í björgunarleiðöngrum. Bæði er skipaumferð fyrir Suðausturlandi mikil og fjöldi ferðamanna á svæðinu sem m.a. hafa lent í vandræðum á Vatnajökli og þá eru þyrlur oft nauðsynlegar við björgunaraðgerðir. Ef farið verður að staðsetja þyrlusveitir víðar um landið minnir bæjarráð á mikilvægi Suðausturlands í því samhengi. “
Stefán gerði grein fyrir viðræðum við Ingólf Einarsson, eiganda Kaffihornsins, um nýjan samning um sölu á mat fyrir nemendur og starfsfólk Hafnarskóla og Heppuskóla. Bæjarráð samþykkir að fela Stefáni að ganga til samninga við Kaffihornið í samræmi við umræður á fundinum. (Einar tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.)
Ásta lagði fram tilboð dags. 28. mars sl. sem borist hefur í greiðslumark sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tilboð.
Lagt fram bréf frá Flugmálastjón Íslands dags. 23. mars 2006 varðandi umsögn um veglínur í nágrenni Hornafjarðarflugvallar. Til kynningar.
Bæjarráð óskar eftir því að Ómar Bjarki Smárason komi á næsta fund bæjarráðs og geri grein fyrir stöðu mála varðandi jarðhitaleit.
Fundi slitið kl. 11:43


