Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 329
329. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 23. mars 2006, kl. 10:00. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Björn E. Traustason, Halldóra B. Jónsdóttir,. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi M. Pálsson.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 76. fundur 16. mars. 2006.
Helgi kynnti útboð í dælingu en tilboðin voru opnuð 21. mars sl.
Varðandi samkomulag um aðgengi að Friðsæld gerir Björn Traustason ekki ágreining á þessum fundi og tekur ekki þátt í afgreislu málsins en áskilur sér rétt til að gera grein fyrir afstöðu sinni þegar málið kemur fyrir bæjarstjórn. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag dags. 21. mars 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 69. fundur, 15. mars 2006.
Halldóra B. Jónsdóttir óskar eftir nánari upplýsingum um rekstur og þjónustu HSSA 2005. Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs, 28. fundur 15. mars 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerðir stýrihóps vegna skólastefnu
Fundargerðir samþykktar.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands, 60. fundur, 8. mars 2006.
Til kynningar.
Rætt var um stöðu heilbrigðisfulltrúa á Hornafjarðarsvæðinu.
2. Samþykktir fyrir Félagsmálaráð Hornafjarðar
· Erindi félagsmálastjóra f.h. félagsmálaráðs dags. 14. mars 2006.
Farið var yfir:
Verklag starfsmanns barnaverndarnefndar Hornafjarðar við könnun máls vegna gruns um kynferðisofbeldi gegn börnum.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
Verklagsreglur um tilkynningarskyldur starfsfólks Leikskólanna Lönguhóla og Krakkakots og starfandi dagforeldra á Hornafirði til barnaverndarnefndar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
Tillögur félagsmálaráðs Hornafjarðar um veitingu námsstyrkja vegna sérstakra aðstæðna.
Bæjarráð vísar tillögu um námstyrki með áorðnum breytingum til afgreiðslu í bæjarstjórn og til kynningar í félagsmálaráði.
3. Ósk um breytinga á aðalskipulagi
· Bréf Glámu-Kím dags. 1. mars 2006 um Hoffellsstofu. Bæjarráð vísar málinu til byggingar- og skipulagsnefndar.
4. Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis
· Bréf sýslumannsins á Hörn dags. 16. mars 2006. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við rekstarleyfið.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 14. mars 2006, vegna sveitarstjórnarkosninga. Til kynningar
· Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 16. mars 2006, vegna varna gegn mengun hafs og stranda. Til kynningar
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 9. mars 2006,um vanir gegn mengun sjávar. Til kynningar Bæjarráð vísar málinu til umhverfisnefndar og hafnarstjórnar.
6. Önnur mál
· Farið yfir minnisblað Rögnvaldar Ólafssonar og Stefáns Ólafssonar dags. 19. mars 2006 vegna háskólasetursins.
· Kynnt tillaga að greiðslum fyrir fundarsetu í lýðheilsuhópi.
Bæjarráð leggur áherslu á að hópurinn ljúki störfum á þessu ári og komi með tillögur um úrbætur í þessum málaflokki. Eftir það muni þessi mál falla undir viðkomandi stofnanir og nefndir, svo sem skóla, heilbrigðisstofnun, félagasmálaráð og æskulýðs- og tómstundaráð. Bæjarráð samþykkir að leggja 120.000 kr. til að greiða fyrir nefndarstörf.
· Á fjárlögum ríkisins er heimild til að selja Garðsbrún 2. Bæjarráð heimilar sölu á Garðsbrún 2 er sveitarfélagið á 15% í húseigninni.
· Lagt fram minnisblaðfrá Tækni og umhverfissvið dags 21. mars um meiriháttar viðhaldi á Ráðhúsi bæði innan og utanhúss.
· Lagt fram minnisblað dags. í mars 2006 varðandi fjáröflun um reksturs Jöklasýningar.
Fundi slitið kl. 11:30


