Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 328
328. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 16. mars 2006, kl. 10:00. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Björn E. Traustason, Halldóra B. Jónsdóttir,. Áheyrnarfulltrúi: Eyjólfur Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson, Helgi M. Pálsson, og Ásta H. Guðmundsdóttir
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 141. fundur, 28. febrúar 2006.
Fundargerði samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 10. fundur, 2. mars 2006; 11, fundur, 9. mars 2006. Lagt var fram minnisblað dags. 16. mars 2006 varðandi fyrstu drög að rekstrartölum.
Miklar umræður urðu um málið. Fundargerðir samþykktar.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 56.fundur, 6. mars 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd, 76. fundur, 8. mars 2006.
Fundargerð samþykkt.
2. Vatnajökulsþjóðgarður
· Lagt fram Minnisblað dags. 4. mars sl. vegna fundar í ráðgjafanefnd um Vatnajökulsþjóðgarð.
3. Frumkvöðlasamfélagið
· Minnisblað dags. 9. mars sl .frá AE og HÞV um alþjóðlegt verkefni um uppbyggingu frumkvöðlasamfélagsins.
4. Skólamál í Öræfum
§ Minnisblað frá SÓ og HÞV um fund sem haldinn var 9. mars um skólamál í Öræfum
Málinu vísað til skólanefndar.
5. Staða fjármála 30. 12. 2005
Lögð fram fyrstu drög að ársreikningi sveitarfélagsins 2005. Þar kom fram að staðan er mun betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir og munar það mestu um aukin framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga en almennur rekstur á málaflokkum er í samræmi við fjárhagsáætlun.
6. Sala og kaup á íbúðum í kaupleigukerfinu
§ Minnisblað dags. 10. mars sl.frá ÁHG varðandi sölu og kaup á íbúðum í kaupleigukerfinu.
Bæjarráð vísar málinu til húsnæðisnefndar.
7. Þórbergssetur
§ Drög að samningi við Þórbergssetur, dags. 13. mars 2005 þar kemur m.a. fram að framlag sveitarfélagsins til rekstrar er 2,4 m.kr. á ári í tvö ár. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar til endurskoðunar á fjárhagsáætlun. 8. Aðalskipulag Sýndar tillögur um ýmis vegstæði á þjóðvegi 1 frá Vegagerðinni.
9. Samningar vegna íþróttamannvirkja
Lagðir fram samningar við verkfræðistofuna VST og ASK arkitekta.
Bæjarráð heimilar að skrifað sé undir samninga.
10. Innsend erindi og til kynningar
· Sisimiut kommune, bréf dags 23. febrúar 2006, boð á 250 ára afmæli Sisimiut kommune. Starfsmönnum falið að svara erindinu.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 28. febrúar2006, um eftirlit á leiksvæðum. Til kynningar.
· Nemendafélag Menntaskólans á Egilsstöðum, bréf dags. 1. mars. s.l. um ósk um styrk vegna herfarar gegn meiðyrðum á bloggsíðum. Bæjarráð hafnar beiðninni.
· Fasteignamat ríkisins, tölvubréf dags. 9. mars v. álagningar á nýjar lóðir og ný mannvirk í Landskrá fasteigna. Til kynningar.
· Landgræðsla ríkisins, bréf dags. 2. mars 200 um verkefnið „Bændur græða landið “ Til kynningar.
· SASS, bréf dags. 9. mars 2006, um orkufrekan iðnað á Suðurlandi. Til kynningar.
· Skipulagsstofnun, bréf dags.9. mars 2006, svar vegna aðalskipulags. Til kynningar.
11. Önnur mál
Stefán óskar eftir að fá leyfi til að ganga frá samningum við talmeinafræðing og sálfræðing. Bæjarráð samþykkir beiðnina.
Fundi slitið kr. 13:05


