Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 327
327. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 2. mars 2006, kl. 10:00. Mætt voru: Einar Karlsson, sem stýrði fundi, Reynir Arnarson og Björn Emil Traustason. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson og Ásta H. Guðmundsdóttir
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd 22. fundur, 21. febrúar 2006. Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 75. fundur 20. febrúar 2006. Fundargerð samþykkt.
2. Umsögn um þingsályktunartillögu um stefnumótandi byggðaáætlun 2006-2009, sjá www.athingi.is/altext/132/s/0473.html
Bæjarstjóri lagði fram drög að umsögn. Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrir 8. mars.
3. Styrkir til framboða vegna bæjarstjórnarkosninga
Samþykkt að styrkja hvert framboð um kr. 200.000.-. vegna sveitarstjórnakosninga nú í vor. Fjárhæðin verður tekin af óráðstöfuðu á fjárhagsáætlun ársins.
4. Þórbergssetur
Lögð fram drög að samningi á milli sveitarfélagsins og Þórbergsseturs ses. Drögin gera ráð fyrir að sveitarfélagið leggi bæði til stofnframlag og rekstrarframlag. Málinu vísað til menningarmálanefndar til umsagnar.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Brunamálastofnun, bréf dags. 16. febrúar 2006, ráðstefna slökkviliðsstjóra 2006.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
· Bréf frá nefndasviði Alþingis, dags. 27. feb. 2006, vegna umsagnar um frumvarp til lögreglulaga og framkvæmdavald í héraði. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ítreka fyrri athugasemdir sem settur voru fram þegar skýrsla um málið var kynnt og fylgja þeim eftir.
6. Önnur mál
§ Lagt fram svar menntamálaráðuneytisins við fyrirspurn skólanefndar, dagsett 20. febrúar 2006, við fyrirspurn skólanefndar sem samþykkt var á 78. fundi nefndarinnar. Spurt var vegna fyrirhugaðra námskeiða fyrir grunnskólakennara sem ráðuneytið hyggst gangast fyrir í tengslum við breytta námsskipan til stúdentsprófs. Eftirfarandi bókun var samþykkt samhljóða:
„Bæjarráð fagnar því að áhersla verður lögð á fjarnám sem auðveldar starfandi kennurum að stunda þetta nám og dregur einnig úr kostnaði. Þó þetta skipulag dragi úr ferðakostnaði má gera ráð fyrir að eftir sem áður muni leggjast töluverður kostnaður á sveitarfélög, einkum á landsbyggðinni. Er þar bæði um að ræða ferðakostnað á þá staði þar sem námskeið og staðbundnar námslotur fara fram og aukakostnað við kennslu ef starfandi kennarar þurfa að vera fjarverandi vegna náms á starfstíma grunnskólanna. Bæjarráð fer því fram á að menntamálaráðuneytið tryggi að námskeið og annað sem gera þarf í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á námsskipan til stúdentsprófs leiði ekki til útgjalda fyrir sveitarfélögin í landinu.“
§ Lögð fram eftirfarandi ályktun frá íbúum í Öræfum:
„Íbúafundur Öræfinga haldinn á Hótel Skaftafelli 25. febrúar 2006, mótmælir hugmyndum um breytingar á aðalskipulagi á þjóðvegi nr. 1, frá Skeiðará að Virkisá. Fundurinn leggur áherslu á að núgildandi aðalskipulag standi.“ Til kynningar.
§ Ásta lagði fram minnisblað, dags. 2. mars 2006, varðandi makaskipti á íbúðum í tengslum við fyrirhugaðar framkvæmdir á Silfurbraut 2 – 4. Bæjarráð samþykkir að selja Bjarnahól 4 0202 og kaupa Silfurbraut 4 og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samræmi við minnisblaðið. § Stefán fór yfir málefni grunnskólabarna í 8. – 10. bekk, búsett í Öræfum. Bæjarráð samþykkir að haldinn verði fundur í Hofgarði með foreldrum þessara skólabarna þar sem lagðar verði til grundvallar tillögur sem kynntar voru á fundinum.
§ Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga til samninga við Kaffihornið um framlengingu á núverandi samningi um mötuneytismál. Samið verði til eins árs. Einar vék af fundi undir þessum lið.
§ Bæjarstjóri kynnti þjónustusamning milli sveitarfélagsins og FAS/menntamálaráðuneytisins um rekstur húsnæðisins í Nýheimum. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og heimilar undirritun hans.
§ Bæjarstjóri kynnti fyrirhugaða heimsókn forseta Íslands til Sveitarfélagsins Hornafjarðar nú í vor.
Fundi slitið kl. 12.00


