Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 325
325. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 23. febrúar 2006, kl. 10:00. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Björn Emil Traustason og Einar Karlsson.
Áheyrnarfulltrúi: Eyjólfur Guðmundsson.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Guðrún Júlía Jónsdóttir, vék af fundi 10:30.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð, 140. fundur, 14. febrúar 2006 Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 68. fundur 15. febrúar 2006.. Fundargerð samþykkt.
· Gjafasjóður Skjólgarðs, 28. fundur 15. febrúar 2006 ? lagt fram á fundinum. Ásta fór yfir stöðu sjóðsins 31.12. 2005. Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 4. fundur 5. janúar 2006, 6. fundur 2. febrúar 2006, 7. fundur 7. febrúar 2006, 8. fundur 9. febrúar og 9. fundur 16. febrúar 2006.
Helgi fór yfir tillögu F. varðandi byggingu sundlaugar og sagði að arkitektar væru að teikna og málsett teikning lægi fyrir í næstu viku, Eyjólfur spurði um fjármögnun og rekstur. Miklar umræður urðu um málið. Fundargerðir samþykktar
· Fundargerð Skólanefndar Hornafjarðar 79. fundur 22. febrúar 2006
Eftirfarandi bókun var gerð:
Skólanefnd leggur til að skóli verði ekki starfræktur á Hrollaugsstöðum á næsta skólaári. Þau börn sem nú eru í skólanum sæki sitt nám í Nesjaskóla og Hafnarskóla. Skólanefnd telur að endurskoða megi þetta í framtíðinni ef breyting verður á búsetu í Suðursveit þannig að börnum á grunnskólaaldri, 1. ? 7. bekk, fjölgi umtalsvert fram yfir það sem nú er. Jafnframt tekur skólanefnd undir óskir foreldra skólabarna með búsetu í Suðursveit að sérstakur skólabíll aki með þau börn í Nesjaskóla og Hafnarskóla með Flatey á Mýrum sem austasta viðkomustað.
Bæjarráð samþykkir bókun skólanefndar. Fundargerði samþykkt.
2. Skipurit HSSA
Guðrún Júlía mætti undir þessum lið og lagði hún til að ákvörðun um skipurit verði frestað. Bæjarráð sammála því.
3. Umsögn vegna endurskoðunar laga um heilbrigðisþjónustu
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma með tillögu að bókun og umsögn um málið.
4. Innsend erindi og til kynningar
· Ráðstefna um staðardagskrá, bréf Stefáns Gíslasonar dags. 14. febrúar 2006 Vísað til umhverfisnefndar.
· Ársfundur íslenskra orkurannsókna, bréf Ólafs G. Flóvenz, dags 14. febrúar 2006. Vísað til atvinnumálanefndar.
· Bréf Gunnars Más Haukssonar, dags 14. febrúar vegna mynda Jóns Þorleifssonar,. Vísað til menningarmálanefndar.
· Bréf Kristínar Guðmundsdóttur, ódagsett, vegna Hafnarnes. Málinu vísað til tækni og umhverfissviðs til umsagnar.
· Skráning á lista Skipulagsstofnunar yfir byggingarfulltrúa, dags. 13. febrúar 2006. Til kynningar.
· Bryggjuaðstaða á Austurfjörur, bréf Siglingastofnunar, dags. 13. febrúar 2006.
Undir þessum lið kynnti bæjarstjóri tilboð hafnarstjórnar til Litla Horns ehf. um samstarf varðandi byggingu hafnaraðstöðu á Austurfjöru sem gert var með fyrirvara um samþykki bæjarráðs. Málið verður formlega á dagskrá síðar. Til kynningar.
· 11. Norræna sveitarstjórnarráðstefnan 14.-16. maí nk. í Svíþjóð, bréf Önnu G. Björnsdóttur, dags. 10. febrúar 2006. Til kynningar.
5. Önnur mál
§ Lagt fram bréf frá Þorsteini Sigjónssyni og Vilborgu Jónsdóttur dags. 20. febrúar sl. vegna umsagnar um kaup á jörðinni Bjarnanes. Starfsmönnum falið að svara erindinu.
§ Gerð grein fyrir umsækjendum í stöðu félagsmálastjóra. Stefán upplýsti að þrjár umsóknir hefðu borist um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Bæjarráð felur bæjarstjóra og framkvæmdastjóra fræðslu- og félagsmálasviðs að ræða við xxx um ráðningu í starfið.
§ Albert gerði grein fyrir samtali við sóttvarnarlækni vegna viðbragðsáætlunar um fuglaflensu og Guðrún Júlía sagði frá námskeiði sem hún sótti varðandi málið ef faraldur breiddist út.
§ Lagt fram bréf frá Halldóri Birgissyni f.h. Ránarslóðar ehf. dags. 19. febrúar varðandi leyfi til að reka gistiheimili að Hvannabraut 1 ? 3. Bæjarráð felur tækni- og umhverfissviði að annast framkvæmd málsins.
§ Bæjarstjóri gerði grein fyrir fyrirspurn um hvort til greina kæmi að leigja aðstöðu í Nýheimum fyrir fyrirtæki í almennum samkeppnisrekstri. Bæjarráð ítrekar fyrri samþykktir um að fyrirtækjum í almennum samkeppnisrekstri verði ekki leigt húsnæði í Nýheimum.
Fundi slitið kl. 12.00


