Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 321
321. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 2. febrúar 2006, kl. 10:00. Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
1. Fundargerðir
· Almannavarnanefnd Hornafjarðar 28. fundur 25. janúar 2006. Halldóra Bergljót felur bæjarstjóra að kanna viðbúnað ef fuglaflensa kemur upp.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 137. fundur 13. desember 2005 og 138. fundur 10. janúar 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 78. fundur 25. janúar 2006. Bæjarráð tekur undir með skólanefnd um fyrirspurn til menntamálaráðuneytisins vegna breyt inga á námsskipan til stúdentsprófs.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 75. fundur 23. janúar 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Haust 59. fundur 18. janúar 2006 Til kynningar.
2. Heimsókn Flugmálastjórnar
Þorgeir Pálsson, Flugmálastjóri, Haukur Hauksson framkvæmdastjóri og Ingólfur Arnarson umdæmisstjóri Austurlands mættu á fundinn undir þessum lið. Þorgeir fór yfir stöðu flugmála á Íslandi og ræddi um breytingar á síðustu árum. Til dæmis ræddi hann um að þeir fjármunir sem Flugmálastjórn hefur til umráða fara núna í auknum mæli í framlög til reksturs og því séu ekki eins miklir fjármunir til framkvæmda.
Spurt um stefnu Flugmálastjórnar varðandi flugvöllinn í Árnanesi. Haukur sagði að tillaga lægi fyrir um að setja ralomak á brautina í sumar, bæta tækjakost á vellinum og setja upp vararafstöð á flugvöllinn.
Ingólfur fór yfir þróun í áætlunarflugi á Hornafirði og sýndi tölur sem m.a. lýsa þróun í fjölda lendinga, fjölda farþega, fjölda niðurfellinga á flugi á Hornafjarðarflugvelli.
Halldóra ræddi um yfirborð flugvallarins, aðflugsbúnað og þverbrautina. Hún óskaði eftir upplýsingum um af hverju gamla þverbrautin hafi verið lögð af. Einnig spurði hún um reglur um útboð í verk hjá Flugmálastjórn.
Fulltrúar Flugmálastjórnar svöruðu spurningum. Þar kom fram að ætíð sé farið eftir útboðsreglum hjá Flugmálastjórn. Öll verk sem kosta yfir 5 miljónir fara í útboð og því hafi verið fylgt á Hornafjarðarflugvelli sem annar staðar. Þá var gerð grein fyrir að þverbrautin gamla hafi leyst lítinn vanda m.a. vegna þess að lega brautarinnar var slæm. Gerð grein fyrir stöðu varðandi aðflugsbúnað og að Flugmálastjórn hafi sett upp þennan búnað sem valkost fyrir flugfélög.
3. Þórbergssetur
Þorbjörg Arnórsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir stöðu á fjármögnun og framkvæmdum á Þórbergssetri, sagði hún að Þórbergssetur verði opnað á Hala 1. júlí n.k.
4. Umsókn um lóð
· Umsókn Lárusar Óskarssonar dags 13. janúar 2006.
Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs til úrlausnar.
5. Ósk um styrk
· Bréf frá Geirlaugu Jóhannsdóttur dags. 25. janúar 2006 vegna námskeiðsins Máttur kvenna fyrir konur á Austurlandi. Óskað eftir frekari upplýsingum.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Nordjobb, bréf dags. 23. janúar 2006, beiðni um stöður á Hornafirði. Starfsmönnum falið að afla frekari upplýsinga.
· Vegagerðin, bréf ódagsett um vegagerð. Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 26. janúar, vegna úthl. framlags vegna fatlaðra nemenda. Til kynningar.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, bréf dags. 26. janúar 2006, um samráðsfund sambandsins og Landssamsands sumarhúsaeigenda. Til kynningar.
7. Önnur mál
§ Lögð fram samþykkt Launanefndar sveitarfélaga vegna stéttarfélaga sem samið hafa um starfsmat við nefndina, dags. 28. janúar 2006. Samþykkt að taka málið upp á næsta fundi.
§ Lögð fram tillaga að reglum um afslátt að fasteignaskatti. Samþykkt.
§ Rætt um sölu á Skjólgarði. Kom fram að tveir aðilar hafi áhuga á húsinu. Samþykkt að opna tilboð aðilana samtímis.
Fundi slitið kl. 12.00


