Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 320
320. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 26. janúar 2006, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Einar Karlsson og Björn Emil Traustason. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Guðrún Júlía Jónsdóttir.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 73. fundur 19. janúar 2006.
Einar spurðist fyrir um útboðsgögn (6. liður). Velti m.a. upp hvað ætti að gera við uppdælt efni og hver ætti að gera það. Helgi sagði að megninu af efni yrði dælt í suður yfir Óslandi og öðru efni í Standeyjarvík. Þessir staðir eru hluti af útboðsgögnum.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 67. fundur ásamt fundargerð stjórnar Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs 26. fundar 18. janúar 2006.
Fram koma að vinna við breytingar á dvalarheimili og eldhúsi og ganga mjög vel. Guðrún fór yfir skipurit HSSA og svaraði spurningum sem bornar voru upp. Sagði að fram hafi komið nokkrar athugasemdir við skipuritið frá starfsmönnum. Skipuritið verður aftur tekið fyrir í heilbrigðis- og öldrunarráði í febrúar.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 54. fundur 16. janúar 2006.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 5. fundur 18. janúar 2006.
Helgi gerði grein fyrir niðurstöðu nefndarinnar um staðsetningu sundlaugar við suðurhlið (langhlið) íþróttahúss.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um álit sveitarstjórnar á valkostum varðandi námuna Friðsæld
· Bréf Landbúnaðarráðuneytisins dags. 13. janúar 2006.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
3. Bréf vegna Þorbergsseturs
Óskað eftir að forsvarsmenn Þórbergsseturs mæti á fund bæjarráðs og geri grein fyrir erindinu.
4. Aðalskipulag
Tillögur um vegstæði yfir Hornafjarðarfljót kynntar. Lögð fram fundargerð frá fundi fulltrúa sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar frá 20. janúar sl.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
5. Kynning á skýrslu Páls Imsland um Álaugarey
Vísað til umhverfisnefndar.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 12. janúar 2006, um framlag vegna nýbúafræðslu. Til kynningar.
· Flugmálastjórn Íslands, bréf dags. 18. janúar 2006, um flugslysaæfingu. Hefur verið tekið fyrir í almannavarnanefnd.
· Vinnueftirlitið, bréf dags. 17. janúar 2006, um vinnuverndarártak í grunnskólum. Hefur verið tekið fyrir í skólanefnd.
· Atvinnu- og ferðamálafulltrúi Rangárþings og Mýrdals, bréf dags. 18. janúar 2006, um skýrslu í atvinnu- og ferðamálum.
Vísað til atvinnumálanefndar.
7. Önnur mál
· Félagsstarf aldraðra í Öræfum.
Samþykkt að veita til þess kr. 50 þús. Tekið af óráðstöfuðu.
· Bæjarráð samþykkir eftirfarandi styrki:
· Björgunarfélag Hornafjarðar 250 þús.
· Skógræktarfélag Austur-Skaft 100 þús.
· Ferðafélag Austur-Skaft. 50 þús.
· Slysavarnadeildin Kári 250 þús.
· Bær í Öræfum - forleifarannsóknir 200 þús.
· Fuglaathugunarstöð Suðausturlands 200 þús.
· Kvikmyndaefni Rafns Eiríkssonar. 150 þús.
· Modis, unglingahljómsveit 50 þús.
· Ungmennafélagið Máni vegna söguritunar 150 þús.
· Kristín spurði um vinnu við dúkaskipti á sundlaug og þann drátt sem orðið hefur á verkinu. Helgi gerði grein fyrir stöðunni en verkið hefur dregist mjög á langinn vegna þess að verktakar hafa lítið verið við frá því að verkið hófst. Einnig reyndist verkið vera nokkuð umfangsmeira en upphaflega stóð til og þá hefur veður sett strik í reikninginn.
Fundi slitið kl. 11:30


