Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 319
319. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 19. janúar 2006, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerðir
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 74. fundur 11. janúar 2006. Fundargerð samþykkt.
2. Úthlutun styrkja
Eftirfarandi umsóknir hafa borist til bæjarráðs:
· Skógræktarfélag Austur-Skaft 300 þús. · Náttúruverndarstamtök Austurlands 100 þús.
· Ferðafélag Austur-Skaft. 70 þús.
· Slysavarnadeildin Kári 300 þús.
· Bær í Öræfum - forleifarannsóknir 1 milljón og húsnæðis- og fæðiskostnaður.
· Fuglaathugunarstöð Suðausturlands 250 þús.
· Kvikmyndaefni Rafns Eiríkssonar upphæð ekki tilgreind.
· Félag aldraðra á Höfn Örn Eiríksen 500 þús.
Farið var yfir styrkumsóknir. Æskulýðs- og tómstundaráð ráð hefur ekki lokið við að afgreiða sýnar tillögur og verða allar tillögur teknar fyrir á næsta fundi bæjarráðs. Afhending styrkja verður 2. febrúar.
3. Ósk um styrk
· Bréf Handknattleikssambands Íslands, dags. 6. desember 2005. Bæjarráð getur ekki orðið við styrkbeiðni HSÍ
4. Innsend erindi og til kynningar
· Landsnet, bréf dags. 4. janúar 2006, um dreifingu raforku. Til kynningar.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 5. janúar 2006, gerð svæðisáætlana sveitarfélaga um meðhöndlun úrgangs. Til kynningar.
· Samflot, bréf dags. 10. janúar 2006, ályktun formannafundar Samflots. Til kynningar.
· KSÍ, bréf dags. 10. janúar 2006, um sparkvelli. Til kynningar.
5. Önnur mál
· Greint var frá því að Birgir Þ. Kjartansson félagsmálastjóri hafi sagt starfi sínu lausu. Uppsögn miðast við að starfslok verði um mánaðamótin apríl maí n.k.
· Bæjarráð samþykkir að fela félagsmálaráði að endurskoða reglur um fjárhagsaðstoð með það að markmiði að einstaklingar á aldrinum 18 til 24 ára geti sótt um framfærslustyrk til náms í framhaldsskóla. Halldóra Bergljót lagði fram minnisblað dags. 18. janúar varðandi málið.
· Rætt um námskeið sem menntamálaráðuneytið hyggst standa fyrir í íslensku, dönsku, ensku og stærðfræði. Ljóst er að fari kennarar á þessi námskeið kallar það á veruleg útgjöld fyrir sveitarfélögin vegna fjarveru kennara frá vinnu í námslotum, ferðakostnaðar og dagpeninga. Er það ekki í samræmi við yfirlýsingar ráðuneytisins um að endurmenntun kennara vegna fyrirhugaðra breytinga á námi til stúdentsprófs auki ekki útgjöld sveitarfélaganna. Málinu vísað til umfjöllunar í skólanefnd.
Fundi slitið kl. 11:00


