Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 318
318. fundur
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
1. Óskir um umsagnir á endurnýjun rekstrarleyfa
· Bréf sýslumannsins á Höfn dags. 4. janúar vegna reksturs hótels að Lindarbakka - Fosshótels Vatnajökuls, gistiskála og veitingastofu að Vagnsstöðum og gistiskála að Svínafelli í Öræfum.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að leyfin verði endurnýjuð.
2. Deiliskipulagstillaga fyrir skógræktarsvæðið Haukafell á Mýrum
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
3. Green globe verkefnið
Bæjarráð Hornafjarðar tekur ekki endanlega afstöðu til þátttöku í Green Globe verkefninu á Suðurlandi á þessu kjörtímabili. Verkefnið er þess eðlis að það krefst töluverðrar vinnu bæði af starfsfólki sveitarfélagsins svo og sveitarstjórnarfólkinu sjálfu. Af þeirri ástæðu telur bæjarráð eðlilegast að ný bæjarstjórn sem tekur við að loknum kosningar í vor ákveði hvernig hún vill haga þessum málum á næstu árum.
4. Innsend erindi og til kynningar
· SSA, bréf dags. 27. desember 2005, vegna ýmissa málefna sambandsins.
Umfjöllun í bréfi SSA um jarðgöng á Austurlandi er vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Logos, lögmannsstofa, afrit bréfs til Vegagerðarinnar, dags. 2. janúar2006, um vegagerð og efnistöku í Hvalness- og Þvottárskriðum.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· FOSS, bréf dags. 3. janúar 2006, kynningarefni um ágreiningsmál LS og Samflots.
Til kynningar.
· Haust, afrit bréfa dags. 3. janúar 2006, vegna starfsleyfa vatnsveitna í sveitarfélaginu.
Til kynningar.
· Varasjóður húsnæðismála, bréf dags. 4. janúar 2006 um breytingu á lögum og reglugerð um sjóðinn.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 5.janúar 2006, um tekju og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 5. janúar 2006, um viðmiðunarfjárhæð eignamarka við útreikning húsaleigubóta.
Til kynningar.
5. Önnur mál
· Lagt fram tölvubréf frá Aðalheiði Fanney Björnsdóttir fh. fjarnema í leikskólafræðum, dags. 8. janúar 2006, vegna fjarnáms í leikskólafræðum. Bæjarráð samþykkir að fjarnemar í leikskólafræðum njóti sambærilegra réttinda og fjarnemar í grunnskólafræðum.
· Lagður fram tölvupóstur frá Margréti Ingólfsdóttur, dags. 9. janúar 2006, varðandi umsókn á leikskóla frá aðilum sem eru með lögheimili annar staðar en í sveitarfélaginu. Lagt fram bréf frá Guðrún Júlíu Jónsdóttir, dags. 11. janúar 2006, vegna umsóknar um tímabundna leikskólavistun. Bæjarráð heimilar að gerðar séu undanþágur frá reglum um inntöku barna þegar um sérstakar og tímabundnar aðstæður er um að ræða.
· Lagt fram minnisblað um fjármögnun vegna breytinga á HSSA, dags. 12. janúar 2006. (Guðrún Júlía Jónsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið). (Halldóra vék af fundi kl. 9.30). Bæjarráð samþykkir.
· Rætt um launaráðstefnu Sveitarfélaganna þann 20. janúar n.k. Samþykkt að Elín Magnúsdóttir og Albert Eymundsson fari með umboð sveitarfélagsins á þeirri ráðstefnu.
· Lögð fram ályktun frá fundi leikskólakennara á Austurlandi haldinn á Hótel Héraði 10. janúar 2006.
Fundi slitið kl. 9.45


