Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 317
317. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 5. janúar 2006, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 27. og 28. desember 2005. Rætt um útboðsmál hjá höfninni. Fundargerð samþykkt. · Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 730. fundar 12. desember 2005. Til kynningar.
2. Lóðamál
· Bréf Íslandspósts dags. 29. desember 2005 um skil á úthlutaðri lóð og ósk um úthlutun og stækkun lóðarinnar Vesturbraut 6. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar að Vesturbraut 6. Vísað til tækni- og umhverfissviðs til úrvinnslu.
3. Uppgjör fyrir árið 2005 vegna háskólasetursins
Kom fram að formaður stjórnar háskólaseturs er væntanlegur í næstu viku þar sem málið verður rætt.
4. Innsend erindi og til kynningar
· Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 22. desember 2005 um Náms- og skiptinámsdvöl fyrir stjórnendur í norrænum sveitarfélögum. Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 21. desember 2005, um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 27. desember 2005 um endurútgáfu reglugerðar um fasteignaskatt. Til kynningar.
· Auglýsing um nýtt fasteignamat, sjá http://www.fmr.is. Til kynningar.
5. Önnur mál
· Rætt um ákvörðun dómsmálaráðherra um nýskipan lögreglumála sem kynnt var 3. janúar sl.
Bæjarráð samþykkti eftirfarandi bókun um málið:
„Vegna ákvörðunar um nýskipan lögreglumála áréttar bæjarráð Hornafjarðar fyrri ályktun bæjarstjórnar Hornafjarðar um málið. Þar kom m.a. fram að Austur-Skaftafellssýsla hefur landfræðilega sérstöðu í þessum málum eins og svo mörgum öðrum. Það er vandséð að íbúar á Suðausturhorninu fái betri löggæsluþjónustu undir stjórn sýslumannsins á Eskifirði. Áhyggjur varða einnig umfang sýslumannsembættisins á Höfn og að það megi ekki við því að dragast saman. Af þeirri ástæðu er mikilvægt að embættið á Höfn verði styrkt þegar kemur að tilfærslu verkefna til smærri embætta.“
· Rætt um stýrihóp um aukna hreyfingu og bætt mataræði barna og fjárhagslegan stuðning við starf hópsins. Stefáni falið að kostnaðarmeta starf hópsins og leggja fyrir bæjarráð.
· Sagt frá fyrirhugðu málþingi á Höfn fimmtudaginn 12. janúar, kl. 10.00-17.00 sem ber yfirskriftina Þjóðgarðar og ferðaþjónusta – byggðaþróun í nýju ljósi. Málþingið er hluti af NEST verkefninu sem Háskólasetrið á Hornafirði leiðir.
Fundi slitið kl. 10.55


