Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 316
316. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 29. desember 2005, kl. 10:15.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 75. fundur 5. desember 2005. Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki 2. fundur 15. desember og 3. fundur 22. desember 2005 til kynningar. Fundargerðir samþykktar.
2. Áætlaðar skatttekjur sveitarfélagsins 2005
Lagt fram yfirlit dags. 29. desember 2005.
3. Styrkumsóknir
· Bréf frá Bjarna F. Einarssyni, dags. 15. des. 2005. Vísað til úthlutunar styrkja í bæjarráði.
· Umsókn Brynjúlfs Brynjúlfssonar f.h. Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands, ódags. Vísað til úthlutunar styrkja í bæjarráði.
· Bréf frá HSSA vegna fjársöfnunar fyrir nýjum röntgentækjum, dags. 7.desember 2005.
Óskað eftir frekari upplýsingum varðandi málið.
· Umsókn Ræmanna dags. 9. nóvember 2005.
Vísað til menningarmálanefndar.
4. Vaxtarsamningur
Lagðar fram tillögur sem unnar hafa verið á Hornafirði í tengslum við vaxtarsamning.
5. Lögreglusamþykkt
Samþykkt. Vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn
6. Starfsmannastefna
Gerð grein fyrir hugmyndum um endurbætur á starfsmannastefnu.
Bæjarráð felur starfsmönnum að hefja undirbúning að endurskoðun.
7. Jöklasetur ses.
Farið yfir drög að rekstraráætlun. Bæjarráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti.
8. Innsend erindi og til kynningar
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 9. desember 2005 vegna endurgreiðslu vegna refa- og minkaveiða.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um hvernig endurgreiðslu er háttað m.a. varðandi bílastyrk.
· Skipulagsfræðingafélag Íslands, bréf dags. 6. desember 2005, um Skipulagsverðlaun 2006. Til kynningar.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 21. desember 2005, um rannsóknina Ungt fólk 2004. Til kynningar.
9. Önnur mál
· Lagt fram bréf frá Hornafjarðardeild RKÍ varðandi gjöf til Sveitarfélagsins til kaupa á römpum fyrir ungmenni.
Bæjarráð þakkar gjöfina.
· Upplýst um gang mála varðandi Silfurbraut 2 og 4.
Fundi slitið kl. 11.30


