Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 315
315. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 13. desember 2005, kl. 15:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 136. fundur 29. nóvember 2005. Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 73. fundur 7. desember 2005. Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki 1. fundur 8. desember 2005.
Kom fram að fyrirhuguð er kynnisferð á Suðurland og Vesturland n.k. fimmtudag og föstudag. Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 58. fundur 30. nóvember 2005. Til kynningar.
2. Lögreglusamþykkt
Frestað.
3. Styrkir til starfsemi félaga og félagasamtaka.
Vísað til viðeigandi nefnda.
4. Tilnefning tveggja fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn Starfsmenntasjóðs félagsmanna Vökuls stéttarfélags hjá Sveitarfélaginu Hornafirði
Gerð tillaga um Elínu Magnúsdóttir og Hjalta Þór Vignisson. Samþykkt.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Sjóvá ódagsett bréf um tryggingaskilmála. Til kynningar.
· Deloitte, bréf dags. 5. desember 2005, um endurskoðun reikninga sveitarfélagsins. Til kynningar.
· Kennarasamband Íslands, bréf dags. 5. desember 2005, vegna námslauna. Til kynningar.
· Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, bréf dags. 9. desember 2005, ályktun um umboð Launanefndar sveitarfélaga. Kom fram að fundur verður í Launanefnd sveitarfélaga 14. desember 2005.
6. Önnur mál
§ Rætt um búsetusamninga milli Búmanna og Sveitarfélagsins, dags 13. desember 2005. Um er að ræða íbúð með fastanúmer 221-8083 og íbúð með fastanúmer 221-8092. Bæjarstjóra veitt heimild til að undirrita samninginn. Óskað eftir að lagt verði fram minnisblað þar sem valkostir varðandi fjármögnun eru settir fram og stöðu Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs.
§ Lagt fram bréf vegna kynningarfundar um Þekkingarnet Austurlands.
§ Gerð grein fyrir viðræðum um Háskólasetrið, m.a. hvenær eigi að auglýsa eftir forstöðumanni, kröfur til stöðuhafa, um verkefni setursins og uppbyggingu stjórnar þess. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu. Rætt um mikilvægi þess að koma setrinu inn á föst fjárlög. Fundi slitið kl. 15.55


