Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 314
314. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 1. desember 2005, kl. 10:00.
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, formaður, Reynir Arnarson og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 71. fundur 29. nóvember 2005
Rætt um bryggjuaðstöðu á Austurfjörum.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 77. fundur 23. nóvember 2005.
Rætt um bókun skólanefndar varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja. Bæjarráð óskar eftir að félagsmálaráð og heilbrigðis- og öldrunarráð veiti einnig umsögn um uppbyggingu sundlaugar og annarra íþróttamannvirkja.
Mikið rætt bókun skólanefndar þar sem óskað var eftir að skólastjórar upplýsi um fjarvistir vegna leyfisdaga kennara á haustönninni. Kristín óskaði eftir skriflegri greinargerð frá skólanefnd um það í hvaða tilgangi á að nota slíkar upplýsingar.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2006
Kom fram að niðurstaða fjárhagsáætlunar breytist lítillega við endurskoðun á fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar.
Í drögum að fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að skipulag á yfirstjórn sveitarfélagsins sem samþykkt var á síðasta ári haldist óbreytt. Bæjarráð óskar eftir umsögn menningarmálanefndar um þennan þátt.
3. Framkvæmdanefnd vegna íþróttamannvirkja
Samþykkt eftirfarandi skipun: Friðrik Þór Ingvaldsson tilnefndur af B-lista sem verður formaður, Halldóra B. Jónsdóttir tilnefnd af D-lista sem verður varaformaður, Þórgunnur Torfadóttir tilnefnd af H-lista, Ragnhildur Einarsdóttir og Stefán Ólafsson.
Bæjarráð samþykkir framlagt erindisbréf.
4. Samningur um menningarmál
Lögð fram drög að samningi á milli sveitarfélagsins, Menningarmiðstöðvar og Menningarráðs. Vísað til menningarmálanefndar til umsagnar.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Fundargerð fundar um Green globe 21 á Kirkjubæjarklaustri 24. nóvember 2005
Til kynningar.
· Fornleifavernd ríkisins, afrit af bréfi til Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu dags. 23. nóvember um deiliskipulag fyrir Haukafell á Mýrum.
Vísað til menningarmálanefndar.
6. Önnur mál
· Bæjarráð samþykkir að taka lægsta tilboði í dúk á sundlaug.
· Lagt fram bréf frá Slysavarnadeildinni Framtíðinni varðandi gjöf á radarmælitæki. Bæjarráð þakkar þessa gjöf. Vísað til tækni- og umhverfissviðs og byggingar- og skipulagsnefndar.
· Klukkan 10.30 komu nemendur og starfsfólk Hafnarskóla að Ráðhúsi og hittu bæjarráð fyrir. Tilefnið er verkefni sem þau hafa verið að vinna að og ber yfirskriftina ?Byggjum betra samfélag?. Bæjarráð þakkar fyrir heimsóknina og fagnar framtakinu.
Fundi slitið kl. 11.10


