Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 313
313. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, föstudaginn 25. nóvember 2005, kl. 14:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Guðrún Júlía Jónsdóttir. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 53,.fundur 15. nóvember 2005. Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 65. fundur 19. október og 66. fundur 16. nóvember 2005.
Rætt um flutning á eldhúsi, dagvist aldraðra, starfsmat og frekari framkvæmdir á HSSA. Þá var rætt um dvalarheimili. Bæjarráð felur starfsmönnum að hefja undirbúning að sölu á húsnæði Skjólgarðs að Hvannabraut 3-5. Guðrún Júlía vék af fundi.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2006
Bæjarráð samþykkir að skipa framkvæmda- og byggingarnefnd vegna fyrirhugaðra íþróttamannvirkja m.a. sundlaug og íþróttavöll. Nefndin skal skipuð fimm aðilum; einum fulltrúa frá hverju framboði og tveim án tilnefningar. Tillögur um nefndarskipun skal liggja fyrir á næsta bæjarráðsfundi svo og erindisbréf. Miklar umræður sköpuðust um framkvæmdir og fjármögnun þeirra.
Samþykktar 150 miljónir til framkvæmda á næsta fjárhagsári, m.a. til byggingar nýrrar sundlaugar við Heppuskóla.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn.
3. 3ja ára áætlun
Vísað til fyrstu umræðu í bæjarstjórn.
4. Fjárhagsáætlun HSSA fyrir árið 2006
Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir að heilsugæslusvið verði rekið með rúmlega 600 þús. króna halla en hjúkrunarsvið með 600 þús. kr. hagnaði. Áætlunin miðast við breyttar forsendur í rekstri dvalarheimilis og eldhúss.
Starfsmönnum falið að gera tillögu um hvernig best sé að standa að fjármögnun breytinga á dvalarheimili og eldhúsi.
5. Endurskoðun á aðalskipulagi
Lögð fram gögn vegna hugmynda um breytingu á aðalskipulagi. Mikil umræða skapaðist um aðalskipulag.
6. Norðurljósaverkefnið
Gerð grein fyrir stöðu verkefnisins og næstu skrefum.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 17. nóvember 2005 svarbréf um hraðvirkt netsamband. Til kynningar.
· Latibær, bréf dags. 16. nóvember 2005, vegna Orkuátaks 2006. Samþykkt.
· Félagsmálaráðuneytið, dags. 18. nóvember 2005, vegna höfnunar um beiðni um styrk vegna náms við tónlistarskólann í Reykjavík. Starfsmönnum falið að svara erindinu.
· Sambandi Íslenskra sveitarfélaga, ódagsett, vegna boðs á afmælisráðstefnu sambandsins þann 2. desember n.k. Til kynningar.
· Hænir, félagi stúdenta í skipulagsfræði og landslagsarkitektúr, vegna styrkumsóknar, dags. 15. nóvember 2005. Hafnað
· Stjórnarnefnd málefna fatlaðra, dags. 21. nóvember 2005, vegna úthlutunar til framkvæmda við fasteignina Silfurbraut 2-4. Starfsmönnum falið að vinna að undirbúningi framkvæmda.
· FOSS, dags, 23. nóvember 2005, vegna óskar um fund við bæjarstjórn.
Bæjarráð hefur veitt Launanefnd sveitarfélaga samningsumboð fyrir hönd sveitarfélagsins og beinir því til FOSS að leita til launanefndarinnar varðandi erindið.
· Snorraverkefnið, ódagsett, vegna stuðnings við verkefnið. Hafnað.
· Hanný Heiler, dags 22. nóvember 2005, vegna malarnámu í Friðsæld.
Bæjarráð telur að bréfritari hafi ekki heimild til að loka námunni einhliða. Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
· Kristín Jóhannesdóttur, dags. 22. nóvember, vegna hugsanlegs barnakóramóts sem haldið verði á Hornafirði í vor.
Bæjarráð fagnar framkominni hugmynd og samþykkir óskir um húsnæði og búnað.
· Haust, dags 19. nóvember 2005, vegna innheimtu fyrir heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit á Austurlandi. Til kynningar.
· Sýslumaðurinn á Höfn, dags. 22. nóvember 2005, vegna endurskoðun á samningi um leigu á eignarhlutum í Hafnarbraut 27. Bæjarstjóra falið að svara erindinu.
8. Önnur mál
· Bæjarráð felur starfsmönnum að ljúka greiðslum vegna framkvæmda við kirkjugarða við Brunnhólskirkju og Bjarnaneskirkju í samræmi við reglugerðir um kirkjugarða.
· Rætt um skipulag á borgarafundi nk. mánudag.
Fundi slitið kl. 16.15


