Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 310
310. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 3. nóvember 2005, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson. Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð, 134. fundur, 25. október 2005. Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd, 76. fundur, dags. 26. október 2005.
Fram kom að meiriháttar viðhald er bókfært undir eignasjóð en ekki einstaka stofnanir.
Kristín tekur undir bókun skólanefndar varðandi styrk til að efla starf foreldrafélaga í leik- og grunnskóla.
Miklar umræður urðu um foreldrastarf í skólum og samþykktar voru tillögur skólanefndar um að leggja kr. 300 þús. til foreldrafélaga í leik- og grunnskólum.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2006
Ásta fór yfir breytingar milli funda.
Bæjarráð samþykkir að auka óráðstafað um 1,2 m.kr. og kr. 300 þús. til foreldrafélaga í leik- og grunnskólum.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun fyrir árið 2006 til fyrstu umræðu í bæjarstjórn.
3. Úttekt Hönnunar á Reyðarfirði vegna sundlaugar
Helgi kynnti greinargerð frá Hönnun dags. í nóvember 2005. Áætlaður kostnaður á nýrri laug með tilheyrandi mannvirkjum er 243 milljónir króna. Áætlaður kostnaður við stækkun og endurbætur á núverandi sundlaug er kr. 116 milljónir. Einnig kynnti hann hugmyndir tækni- og umhverfissviðs um staðsetningu á sundlaugarmannvirkjum við Heppuskóla.
Samþykkt var að kannaðir yrðu möguleikar hjá Vegagerðinni um að minnka þeirra lóð þannig að hægt verði að færa knattspyrnuvöll og 400 metra hlaupabraut um 20 – 25 metra til suðausturs.
4. Ósk um tilnefningu fulltrúa í nefnd um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs
· Bréf umverfisráðuneytisins, dags. 26. október 2005.
Tilnefndar eru Halldóra B. Jónsdóttir sem aðalmaður og til vara Sigurlaug Gissurardóttir.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Starfshópur ráðstefunnar „Hávaði í umhverfi barna“, bréf dags. 21. október 2005. Vísað til skólanefndar.
· Samgönguráðuneytið, dags. 26. október 2005, vegna flugsamgangna. Til kynningar
· Undirbúningshópur Listar án landamæra ,tölvubréf dags. 28. október 2005. Vísað til fræðslu- og félagssviðs.
6. Önnur mál
· Lögð fram svör Stefáns Ólafssonar við fyrirspurnum um starfsemi vinnuskólans og svör við fyrirspurn um stuðning við einstæða foreldra og aldurshópinn 18 – 24. ára.
Halldóra taldi mikilvægt að taka upp umræðu um stuðning við einstæða foreldra og aldurshópinn 18 – 24 ára, meðal annars með tilliti til möguleika þessara hópa til framhaldsnáms. Benti hún m.a. á slíka fyrirgreiðslu í öðrum sveitarfélögum. Var undir þetta tekið.
· Greint frá fundi á Egilsstöðum nk. mánudag vegna tillagna um breytingar á skipan lögregluumdæma. Fram komu efasemdir um þessar tillögur þar sem m.a. er gert ráð fyrir að yfirstjórn lögreglunnar á Hornafirði verði á Eskifirði.
· Greint frá tillögum starfshóps um stofnun Þekkingarnets Austurlands, dags. nóv. 2005.
· Greint frá fundi á Breiðdalsvík sl. þriðjudag um áframhald á menningarsamningi fyrir Austurland.
· Greint frá hækkun á gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Austurlands um 10%. Gerðar voru athugsemdir við þessa hækkun og efast um hvort hún standist.
Fundi slitið kl. 12:50


